Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 254
254 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
Þín starfsemi skiptir okkur öll miklu máli
Skerpa, stofnuð: 1989
Fjöldi starfsmanna: 4
Snúningar á dag: 7200
Kaffitími: 15 mín.
Minni og meðalstór fyrirtæki gegna
þýðingarmiklu hlutverki í íslensku
viðskiptalífi
Landsbankinn hefur á að skipa um
150 sérhæfðum starfsmönnum
í fyrirtækjaþjónustu sem kappkosta
að veita viðskiptavinum framúrskarandi
þjónustu og trausta fjármálaráðgjöf.
Þannig er minni og meðalstórum
fyrirtækjum gert kleift að dafna og ná
settu marki og á sama tíma stuðlum
við saman að fjölbreyttu og kraftmiklu
viðskiptalífi á Íslandi.
Landsbankinn er með víðtækasta útibúa-
net á landinu. Það tryggir viðskiptavinum
okkar frábæra þjónustu og persónulega
ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers
og eins.
Hafðu samband í síma 410 4000
eða með tölvupósti
á fyrirtaeki@landsbanki.is
og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
39
40
1
10
/0
7
Þegar gengið er um götur Qingdao í Kína er borgin svo vestræn að útlend-ingar segja sem svo: Hvar ætli Kína-hverfið sé í þessari borg?
Það er einmitt þessi tæplega 8 milljóna
manna borg við Gulahafið sem 340 Íslendingar
sóttu nýlega heim til að fagna vígslu Eimskips á
nýrri frystigeymslu, þeirri stærstu í Asíu. Eim-
skip er leiðandi í slíkum rekstri í heiminum og
með 180 frystigeymslur víðs vegar um heim og
15% hlut á heimsvísu. Það fyrirtæki sem næst
kemur í röðinni er með um 7% hlutdeild.
En um hvað snýst viðskiptamódel Eimskips
í Kína? Ef vel tekst til í Qingdao opnar það dyr
annars staðar í Kína – á öðrum efnahagssvæðum
– þar sem hægt yrði að byggja og reka sams
konar frystigeymslur.
Það er eftir miklu að slægjast á markaði
frystigeymslna. Baldur Guðnason, forstjóri Eim-
skips, segir að vaxandi eftirspurn sé um allan
heim eftir frosnum matvælum sem haldist fersk
með þessari geymsluaðferð.
Talið er að hillupláss fyrir frosin matvæli eigi
eftir að aukast um 25% í stórmörkuðum á næstu
tíu árum. Þá segir Baldur að mikil verðmæta-
sköpun sé í þessum viðskiptum – en í virðiskeðj-
unni sé um 50% af verði frosinna matvæla vegna
geymslu og dreifingar.
Eimskip sér ekki aðeins um geymsluna heldur
annast það líka dreifingu á þessum vörum í Evr-
ópu og innan Asíu. Það skiptir við ýmis skipa-
félög ásamt því að vera með skip á leigu. Kína
er því stökkpallur Eimskips til stóraukinna við-
skipta inna Asíu og flutningar til Íslands koma
þar sáralítið við sögu.
Það ríkti þjóðhátíðarstemmning þegar
íslenski hópurinn kom í mörgum hópferða-
bílum inn á hafnarsvæðið í lögreglufylgd.
Móttökur Kínverja voru einstakar og það vakti
mikla athygli hvað þeir gerðu íslenska hópnum
hátt undir höfði.
Klippt á borðann. Frystigeymslan vígð.
Marel Food Systems opnaði skrifstofu
í Qingdao í Kínaferð Eimskips. Samn-
ingur Marels fyrr á árinu við Pacific
Andes, stærsta sjávarafurðafyrirtæki
Kína, er grunnurinn að opnun skrifstof-
unnar og þjónar hún eingöngu Pacific
Andes fyrst um sinn. Gert er ráð fyrir
miklum vexti í matvælaiðnaði í Kína
og möguleikar Marels eru því miklir.
Marel Food Systems er með dótturfélög
eða útibú í Taílandi, Víetnam, Singapúr,
Bangladesh og Indlandi. Á myndinni eru
Sigurjón Elíasson, svæðisstjóri Marels í
Asíu, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, og borgarstjórinn í Qingdao að
klippa á borðann.
Marel Food Systems
Litlum pappírsmiðum var skotið úr fallbyssum og rigndi þeim yfir gesti.