Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 33
D A G B Ó K I N
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7 33
Það eru ekki mörg fyrirtæki
sem hafa það á ferilskrá sinni
að hafa bylt borgarstjórnum.
Umtalaðasta fyrirtæki landsins
þennan mánuðinn, Reykjavik
Energy Invest (REI), dótturfélag
Orkuveitu Reykjavíkur, er hins
vegar eitt þeirra.
Miðvikudaginn 3. októ-
ber hófst mikið moldviðri
þegar tilkynnt var um sam-
einingu Reykjavík Energy
Invest og Geysis Green
Energy undir merkjum hins
fyrrnefnda fyrirtækis (REI).
Þeirri atburðarás sem þá fór
í gang lyktaði með því að
samstarf Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks brast.
Fulltrúi Framsóknarflokks, Björn
Ingi Hrafnsson, gekk út úr
samstarfinu og myndaði nýjan
meirihluta með Samfylkingu,
Vinstri grænum og Óháðum.
Sjálfstæðismenn misstu
því borgina. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson hætti sem borgar-
stjóri en Dagur B. Eggertsson
tók við.
En lítum betur á málið.
Í hinu nýja sameinaða fyrir-
tæki REI voru helstu hluthafar
þessir: Orkuveita Reykjavíkur
(35,5%), FL Group (27,0%),
Atorka (20,0%), Glitnir (7,0%) og
aðrir (11,3%) en á meðal þeirra
voru Bjarni Ármannsson, stjórn-
arformaður REI, Guðmundur
Þóroddsson, forstjóri REI, Jón
Diðrik Jónsson, sérstakur ráð-
gjafi REI, og ýmsir starfsmenn
sem áttu að fá kaupréttarhluti.
Bjarni Ármannsson hafði í
upphafi sem stjórnarformaður
fengið að kaupa 7% hlut í
Reykjavik Energy Invest af
Orkuveitunni þannig að borgin
átti um 93% hlut í fyrirtækinu
þegar ákveðið var að sameina
það við Geysi Green Energy.
Þegar samstarf Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks
hófst í borginni í fyrravor varð
Guðlaugur Þór Þórðarson
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur. Undir hans stjórn
var ákveðið að stofna dóttur-
félagið Reykjavik Energy Invest
og átti það að halda utan um
eignarhluti Orkuveitunnar í
ýmsum verkefnum en þó fyrst
og fremst að skoða ýmsa kosti
tengda útrás í orkugeiranum.
Fengu sjálfstæðismenn Bjarna
Ármannsson sem stjórnarfor-
mann í fyrirtækinu.
Til að gera langa sögu
stutta þá varð allt vitlaust
í borgarstjórnarflokki Sjálf-
stæðisflokksins þegar tilkynnt
var um sameininguna við Geysi
Green Energy hinn 3. október
og að útvaldir starfsmenn ættu
kost á að kaupa stærri hlut en
aðir. Varð þetta til þess að sex
borgarfulltrúar flokksins fund-
uðu á laun og gættu þess að
hafa foringja sinn Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóra ekki
með á þeim fundum.
Sjálfstæðismenn sögðu
þetta: 1) Orkuveitan á ekki að
eiga hlut í fyrirtæki sem stendur
í áhættusamri útrás og fjárfest-
ingum erlendis. 2) Það er ekki
eðlilegt að blanda saman opin-
berum rekstri og einkarekstri
í slíkum verkefnum. 3) Ekki er
rétt að Orkuveitan standi að
gerð sérstakra kaupréttarsamn-
inga við útvalda starfsmenn
REI. 4) Orkuveitan á að sinna
orkumálum á höfuðborgarsvæð-
inu en ekki að vera með glýju
í augum og leika áhættufjár-
festa sem telja sig geta tvö- til
þrefaldað virði fyrirtækisins á
næstu árum.
Fulltrúi Framsóknarflokksins,
Björn Ingri Hrafnsson, setti það
á oddinn að Orkuveitan ætti
áfram 35,5% hlut sinn í hinu
nýja sameinaða fyrirtæki REI
og tæki áhættu á að hlutur-
inn tvö- til þrefaldaðist í verði.
Sjálfstæðisflokkurinn vildi að
þessi hlutur yrði seldur strax,
eða að minnsta kosti settur í
söluferli strax.
Um þetta urðu ekki sættir.
Borgarstjórninni var bylt af
Birni Inga Hrafnssyni. Biti
Orkuveitunnar í Reykjavik Energy
Invest reyndist of stór biti eftir
allt saman. Vika er langur tími í
pólitík.
3. október til 11. október
REYKJAVÍK ENERGY INVEST
BYLTI BORGARSTJÓRNINNI Moldviðrið í kringum Reykjavik Energy Invest varð til þess að borgar-
stjórninni var bylt og nýr meirihluti í borginni er tekinn við.