Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 152
152 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
300 STÆRSTU
Á rið hefur að mörgu leyti verið afar gott, reksturinn hefur gengið vel og mikill hagnaður verið af bankanum,“
segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaup-
þings. „Þá hefur orðið viðsnúningur á rekstri
Kaupthing Singer & Friedlander og má segja
að samþættingu bankans við Kaupþingssam-
stæðuna sé nú lokið. Yfirtaka á hollenska
bankanum NIBC, sem er stærsta yfirtaka
okkar frá upphafi, stendur einnig upp úr,
en með henni kemst Kaupþing í hóp 100
stærstu banka heims. Jafnframt höfum við
fundið mjög fyrir því að stórir alþjóðlegir
fjárfestar eru byrjaðir að fylgjast vel með
okkur. Það kemur í kjölfar þess að stórir
alþjóðlegir bankar hófu að birta greiningar
reglulega um Kaupþing í byrjun árs,“ segir
hann.
„Styrkur Kaupþings felst fyrst og fremst í
öflugri heild,“ segir Hreiðar Már ennfremur.
„Okkur hefur tekist að mynda sterkt lið
og skapa fyrirtækjamenningu sem gerir að
verkum að heildin er sterkari en einingarnar
sem hana mynda. Eftir yfirtökuna á NIBC
erum við með starfsemi í 16 löndum, hún
er því mun dreifðari en áður var og þar með
áhætta bankans. Ekkert land gnæfir nú yfir
önnur í starfseminni, líkt og Ísland gerði
fyrir nokkrum árum. Síðast en ekki síst er
rétt að halda því til haga að bankarekstur
byggist á einstaklingum.“
Hreiðar Már segir afkomu Kaupþings
mjög góða og að allar helstu starfsstöðvar
bankans hafi gengið betur en áætlanir hafi
gert ráð fyrir. „Undanfarið höfum við lagt
mikla áherslu á að auka þóknanatekjur í
bankanum og hefur sú áhersla skilað sér
ríkulega. Meginmarkmið Kaupþings er nú
sem fyrr að reka öflugan og skilvirkan banka
sem skilar góðum arði til eigenda sinna, með
því að bjóða viðskiptavinum framúrskarandi
þjónustu á samkeppnishæfum kjörum. Við
erum með tækifærissinnaða stefnu sem þýðir
að við lokum engum möguleikum og lögum
okkur að markaðsaðstæðum á hverjum tíma.
Okkar markmið er að vaxa hraðar en keppi-
nautarnir, en við leggjum áherslu á að efla
starfsemi okkar í Norður-Evrópu, sem við
skilgreinum sem heimamarkað bankans.“
Næstu misserin verður lögð áhersla á að
samþætta NIBC rekstri Kaupþings. „Þetta er
gríðarstórt verkefni en ég er ekki í nokkrum
vafa um að það muni takast vel. Jafnframt
stefnum við að því að auka vægi Þýskalands
í rekstrinum, en NIBC er þar með starfsemi
sem við stefnum að því að efla verulega.
Framundan er jafnframt að efla starfsemi
okkar á Norðurlöndum, en þar getum við
bætt okkur á mörgum sviðum. Þá má ekki
gleyma því að við erum að byggja upp starf-
semi í Mið-Austurlöndum, nánar tiltekið
Qatar og Dubai, og svo höfum við nýlega
keypt okkur inn í starfsemi á Indlandi. Ég
er sannfærður um að þarna séu umtalsverðir
möguleikar fyrir okkur til lengri tíma litið,“
segir Hreiðar Már.
KAUPÞING • HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON
„Við erum með tækifærissinnaða stefnu sem þýðir að við lokum engum
möguleikum og lögum okkur að markaðsaðstæðum á hverjum tíma.“
GENGI ALLRA
STARFSSTÖÐVA
BANKANS UMFRAM
ÁÆTLANIR Á ÁRINU
TEXTI: HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR • MYND: ARI MAGG