Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 57
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7 57
Vörur í háum gæðaflokki
Frá upphafi hefur Áltak verið að bjóða efni og vörur sem standast
íslenskar aðstæður og hefur endingartíminn verið mældur í áratugum.
Þá hefur Áltak verið hönnuðum innan handar við útfærslur og lausnir
á utanhúsklæðningum. „Við erum í góðu samstarfi við hönnunar-
deildir okkar birgja og getum í samvinnu við þá komið með tillögur
að lausnum á nánast hvaða útfærslu sem er. Við erum viðskiptavinum
innan handar með þolútreikninga og getum útvegað verklýsingar og
teikningar með ótal lausnum.“
Meðal stórra verka sem Áltak hefur verið þátttakandi á undan-
förnum misserum er Akra- og bryggjuhverfin í Garðabæ, blokkir sem
verið er að reisa í Skipalóni í Hafnarfirði, Norðurbakkinn þar meira
og minna, Nesvellir í Reykjanesbæ, Norðurál og Hellisheiðarvirkjun.
Samlokueiningar
Þegar kemur að því að velja byggingarefni í framtíðarhúsið sitt eða ef
verið er að endurnýja og bæta það gamla, standa menn frammi fyrir
erfiðu vali. Ótal þættir hafa áhrif á valið, fegurðarskyn, gæði og verð
eru á meðal þeirra áhrifamestu. Eitt af því sem Áltak býður viðskipta-
vinum sínum eru samlokueiningar, svokallaðar yleiningar sem eru án
efa með hagkvæmustu lausnum sem fáanlegar eru hvað varðar útveggi
og þök. Með einni einingu, sem skrúfuð er á stál- eða tréburðargrind
er kominn fullbúinn útveggur eða þak, jafnt að innan sem utan.
Einingarnar eru byggðar upp af stálklæðningu að utan, einangrunar-
kjarna og fullbúnu innra byrði úr stáli. Hægt er að velja úr fjölda lita
og litakerfa bæði að utan og innan.
Fram að þessu hafa samlokueiningar þótt afar hagkvæmur kostur
varðandi iðnaðarhúsnæði, lagerhús og stórverslanir. Samlokueining-
arnar geta einnig verið mjög hagkvæmar í íbúðar- skrifstofu- og
verslunarhúsnæði.
Áltak býður upp á gæðamerki
í kerfisloftum, kerfisveggjum,
innihurðum, felliveggjum, ýmsum
eldvarnarlausnum, verslunar-
lokunum, tölvugólfum o.fl. Meðal
vörumerkja eru:
Ecophon glerullarplötur,
fyrir kerfisloft og veggjapanel.
ABCD kerfisveggir.
Geipel strimlaloft og kassettuloft,
gipsgrindur, gipsplötur.
OWA hvítullarplötur fyrir kerfisloft.
Nordprofil – Strimlaloft og kassettu-
loft (ál og stál).
Nordic steyptur panill
(fyrir t.d. sundlaugar).
Meta strimlaloft og kassettuloft
PTO felliveggir og lokanir
Scan Mikael glerfelliveggir
og fastir glerveggir.
Previs eldvarnartjöld, reyktjöld, mötu-
neyta og verslana-brunalokanir.
Colt eldvarnartjöld og reyktjöld.
CM eldvarnar og reyktjöld.
Torlit eldvarnar hurðir, kæli og frysti.
ThyssenKrupp kælihurðar
Mero tölvugólf.
Multiwal Bv felliveggir.
Kokema öryggis og verslanalokanir.
Huga innihurðar.
Stórhöfða 33 • Reykjavík
Sími 577 4100 • Fax: 577 4101
altak@altak.is • www.altak.is
Hluti af starfsfólki Áltaks.
Sérhæft starfsfólk Áltaks er ávallt til reiðu varð-
andi útfærslur og lausnir á hinum ýmsu bygging-
arhlutum. Við leggjum metnað okkar í að bjóða
heildarlausnir, við seljum því allt sem þarf til að
ljúka verkinu á réttan hátt þannig að tryggt sé að
öll efni eigi rétt saman og ekki komi til tæringar
eða skemmda síðar vegna rangrar efnisnotkunar.
Ör vöxtur
Magnús segir mikinn vöxt og aukn-
ingu verkefna hafa verið í fyrir-
tækinu á síðustu árum. „Það er
búið að sanna sig á Íslandi að þessi
klæðning, sem við erum með, er
ein af fáum sem stendur sig vel.
Þegar við stofnuðum Áltak 1997
vorum við að flytja inn 40 tonn
af áli á ári, í dag er það um 2500
tonn. Veltuaukning er einnig mikil.
Í ár verður veltan sennilega 1,3
milljarðar, en var árið 2005 eitt-
hvað um 350 milljónir. Aukin starf-
semi hefur gert það meðal annars
að verkum að við erum búnir að
sprengja utan af okkur húsnæðið
sem við erum í þrátt fyrir að hafa
stækkað það í fyrra.“