Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 267
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7 267
Lífsstíll
bekk) en þó enn betur ef þeir
eru aðeins tveir og geta haft arm-
hvíluna á milli sín. – En er það
virkilega rétt að ekki sé hægt að
stilla bakhalla á aftursætinu?
Aksturseiginleikar
Fjöðrun hefur þegar verið lýst
nokkuð en eftir að geta þess
að á smáholóttum vegi er hún
frekar hörð. Vinnsla er yfirdrifið
nóg í hvorri vélinni sem er og
reglulega gaman að aka þessum
bíl. Ég myndi sennilega ekki
halda ökuskírteininu lengi ef
X5 væri heimilisbíllinn minn
– þó lítill vegur væri hann með
skriðstilli sem í þessi tilviki væri
til að halda aftur af hrossunum.
– Við þröngar aðstæður mætti
hann leggja örlítið betur á.
Sjónarhorn aftur úr bílnum er í
þrengra lagi og mér fannst ekki
auðvelt að bakka honum með
nákvæmni í stæði eða upp að
hindrun. Dísillinn var með bakk-
vörn sem auðveldaði þetta til
muna, en sá munaður er auka-
búnaður.
Verð/virði
Verð á X5 byrjar í tæplega 6,5
milljónum. Fæstir láta sér duga
útfærslu fyrir minna en milljón
meira, eða kannski rúmlega það.
Miðað við aðra bíla jafnstóra og
jafnvandaða er það ekki blöskr-
anlegt, en óneitanlega nokkuð
margar krónur samt.
Að mínum dómi er ný
kynslóð X5 stórt stökk fram á
við. Miðað við gerð, frágang og
búnað nýja X5 væri hann ofar-
lega á blaði hjá mér ef ég ynni
einhvern tíma í Víkingalottóinu
og vildi fá mér skemmtilegan,
öflugan og öruggan trölljepp-
ling.
SHH
Frá þessu sjónarhorni er X5 hvað snotrastur – og ekki spillir
umhverfið fyrir.
Kostir:
+ Rými
+ Góð vinnsla
+ Nett eldsneytisnotkun
miðað við stærð
Ókostir:
– Ekki hægt að stilla
bakhalla á aftursæti
– Ekki auðvelt að sjá aftur
úr (bakka)
– Tiltölulega stór
beygjuradíus
Svo mörg voru þau orð
„Það er algengur misskilningur að samningsaðilar þurfi að
vera sammála um staðreyndir málsins til að ná samkomulagi.
Staðreyndin er sú að þeir þurfa ekki að vera sammála um hvort
glasið sé hálft, fullt eða tómt, ekki um virði vörunnar, hvað hafi
gerst í fortíðinni, hvað muni gerast í framtíðinni, hver sagði hvað
eða hver gerði hvað... ...það eina sem þeir þurfa að vera sammála
um er hvernig þeir lenda samningsatriðunum. Stundum er það
beinlínis til trafala að vera sammála. Líkurnar á að það náist sam-
komulag sem báðir aðilar eru ánægðir með geta beinlínis aukist
við það að aðilar eru ósammála!“
Aðalsteinn Leifsson, lektor og forstöðumaður MBA-náms í
Háskólanum í Reykjavík þar sem hann kennir samningatækni.
Markaðurinn, 26. september.
„Fyrirtækin sem standa að MANNAUÐI vita hvað það kostar að
fara ekki vel með dýrmætustu auðlind fyrirtækisins, mannauðinn.
Fyrir fámennt samfélag eins og Ísland er verkefnið sérstaklega
brýnt. Samfélagið er of lítið og verkefnin of stór til þess að við
megum við því að nýta ekki allan þann kraft sem að við höfum
meðal einstaklinganna í landinu.“
Margrét Jónsdóttir, framkvæmdastjóri verkefnisins Mannauður.
Morgunblaðið, 27. september.
Æskumyndin:
Æskumyndin er af Þórólfi
Árnasyni, forstjóra Skýrr. Myndin
var tekin sumarið 1966 þegar
hann var níu ára en þá bjó hann
í Söðulsholti á Snæfellsnesi.
,,Sænskur ljósmyndari kom í
heimsókn og vildi taka myndir af
okkur krökkunum, beint úr hey-
skapnum. Við fengum ekki einu
sinni að greiða okkur.
Í endurminningunni er
þetta eitt af betri sólar-
sumrum æskunnar. Árni Páll
bróðir var nýfæddur, Anna
Katrín systir þriggja ára, og við
Hlynur bróðir, sem var 12 ára
þá, hlustuðum öll kvöld á BBC
á beinar útsendingar frá heims-
meistarakeppninni í fótbolta.
Englendingar unnu, sællar minn-
ingar.
Líklegast hef ég lært ensku
þetta sumar, án þess að vita
af því.
Sem sagt, eintóm hamingja
og gleði.“