Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 246
246 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
fyrir hertogann að vændiskonan sagði hann
hafa gortað af því að vita að Osama bin
Laden byggi í þorpi í Pakistan – annars sagði
stúlkan hertogann frekar leiðinlegan því
hann talaði bara um herinn.
Líklega hefur þessi umferð í vor í þeyti-
vindu fjölmiðlanna ýtt á hann að hugsa líf
sitt upp á nýtt. Þó hann hætti sem yfirmaður
heimavarnarliðsins gat hann ekki slitið sig frá
herlífinu og hefur nú gerst óbreyttur með-
limur elstu ensku herdeildarinnar. Hann er í
þjálfun þar en helsta hlutverk deildarinnar er
að senda ríðandi lið til að taka þátt í ýmsum
merkisatburðum eins og landbúnaðarsýn-
ingum og pólókeppnum sem fara fram á
hestbaki og eru stundaðar af fyrirmönnum
eins og Karli Bretaprins. Grosvenor hefur
einnig hætt sem stjórnarformaður Grosvenor
Group.
Leiðir hertogans og konungsfjölskyld-
unnar liggja oft saman, varla sá viðburður
í fjölskyldunni að hertoginn sé ekki við-
staddur. Hann hefur verið nokkurs konar
fóstri prinsanna og eytt miklum tíma með
þeim.
Hann hefur sagt frá því að fyrir nokkrum
árum hafi hann fengið snert af taugaáfalli
– hann vaknaði einn morguninn, komst ekki
fram úr rúminu, hélt sér myndi líða betur
daginn eftir en leið þá bara enn verr. Í stað
þess að fara í meðferð og á geðlyf axlaði hann
sín skinn og fór einn síns liðs til Madrid. Í
þrjá mánuði las hann, hugsaði og rölti um
borgina, komst yfir vanlíðan sína en segir,
eins og margir sem hafa lent í svipuðum
hremmingum, að þessi reynsla hafi aukið
skilning sinn á aðstæðum annarra. Auk þess
þakkaði hann fjölskyldu sinni fyrir að standa
dyggilega við hlið sér.
Grosvenor kvæntist 1978 Nataliu Ayesha
Phillips, fæddri 1959. Einn forfeðra hennar
var rússneska skáldið Aleksandr Púsjkin en
hún er líka af aðalsættum, skyld konungs-
fjölskyldunni, og fjögur börn þeirra hjóna,
þrjár dætur og sonur sem fædd eru á árunum
1979-1992, eru því fræðilega séð erfingjar
krúnunnar þó býsna margir þurfi að deyja
áður en röðin komi að þeim. Heimili fjöl-
skyldunnar er á sveitasetri í Cheshire þar sem
börnin hafa gengið í skóla. Grosvenor var
áfram um að börnin ættu skemmtilegri æsku
en hann sjálfur þó honum hafi ekki tekist að
hlífa þeim við leiðindauppákomum eins og
vændiskvennasögunni.
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
Grosvenor félagið
Grosvenor félagið á skrifstofubygg-
ingar í Brisbane og hefur byggt lúxus-
íbúðir í Sjanghæ. Félagið hefur áhuga
á að bæta við sig í Bandaríkjunum
en stefnir líka á að bæta við sig skrif-
stofu- og iðnaðarhúsnæði í Ástralíu
og lúxushúsakynnum í Tokýó og Hong
Kong. Auknar fjárfestingar í verslunar-
húsnæði í Englandi og Frakklandi eru
einnig í sigtinu.
Lóðir og fasteignir haldast í
fjölskyldum því að hér hafa
erfðalög veitt tækifæri til
að láta elsta son erfa allt
svo eignunum hefur ekki
verið skipt upp í aldanna
rás. Þetta gerir eignarhald
á lóðum í London algjörlega
einstakt.
Búið er að setja í sölu einhverja dýrustu eign sem hér hefur fréttst um, hús við Grosvenor torg í Mayfair. Húsið er í eigu kanadísku stjórnar-
innar en fer líklega á 300 milljónir punda. Sá sem á hins vegar lóðina er hertoginn og eignarhaldsfélag hans, Grosvenor Estate!