Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 266
266 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
Lífsstíll
Hvers vegna að prófa
þennan bíl?
BMW er óumdeilanlega klassa-
bíll. Framleiðandanum hefur
tekist að byggja inn í hann
einhverja sérstaka tilfinningu
sem gamlir BMW-jaxlar finna
þó þeir geti ekki skilgreint
hana nákvæmlega. Sambland af
akstursgleði og öryggi.
Ég var með fyrstu Íslend-
ingum á sínum tíma til að prófa
fyrstu kynslóð X5 og get ekki
sagt að ég hafi komist í takt við
hann. Þess vegna, meðal ann-
ars, var spennandi að prófa nýja
kynslóð X5 sem kynnt var hér á
landi síðastliðið vor.
Vél- og tæknibúnaður
Aðallega var reyndur bíll með
6 strokka línuvél, 272 hö. Frísk
vél og skemmtileg og merkilegt
að eldsneytisnotkun reyndist
aðeins 12,6, í mjög blönduðum
akstri, koldíoxíðmengun skv.
bókinni 260 gr/km. Aðeins var
líka gripið í dísilvélina sem er
líka 6 strokka, 235 hestafla, í
línu sem var ekki síður skemmti-
leg. Hún var aðeins prófuð í
langkeyrslu og eyðslumælirinn
stóð í 10,6 þegar bílnum var
skilað (koldíoxíðmengun 231
gr/km). Hvort tveggja er afar
góð útkoma fyrir bíl sem er á
þriðja tonn að eigin þyngd.
Hvor tveggja bílanna var
með 6 gíra sjálfskiptingu með
valskiptingu. Skringilegt að
BMW skuli ekki hafa stýr-
ingu sjálfskiptingar með hefð-
bundnum hætti, en hérna er P
á sérstökum rofa – sem er út
af fyrir sig ágætt, en svo dettur
skiptingin beint í D þegar
byrjað er að hreyfa stöngina.
Heima hjá mér háttar svo til
að ég byrja yfirleitt á að bakka
smáspotta. Þá verð ég að setja
í D (einn kippur aftur) og svo
strax tvo kippi fram til að stilla
á R. Það er vont en það venst.
X5 er jepplingur með svo-
kallaðan xDrive búnað, sem í
stuttu máli felst í því að bíllinn
finnur sjálfur hvernig hann
fær besta spyrnu og hagar sér
samkvæmt því. Þetta, ásamt
öllu stafrófinu af hjálparbún-
aði, DSC, ABS, CBC, DTC,
HDC, EDC og hvað þetta
allt saman heitir, ásamt þraut-
reyndri fjölliðafjöðruninni,
gerir bílinn einstaklega stöð-
ugan og rásvissan.
Vinnuumhverfi
ökumanns
Sætis- og stýrisstillingar eru allar
í rafmagni og auðveldar eftir
því, það fer afar vel um öku-
mann X5 og hann hefur allt
við höndina í aðgerðastýrinu
eða á miðstokknum. Þar er líka
iDrive stýringin sem stýrir ýmsu
því sem áður var með fjölda
takka, frá útvarpi um miðstöð
að aksturstölvu. Ökumanni
X5 hlýtur að líða vel við flestar
kringumstæður.
Rými
Bíllinn er stór og virkar stór,
rými hvarvetna gott. Reynslu-
bílarnir voru báðir fimm manna
en hægt er að fá X5 með þriðja
bekkinn og þá sjö manna. Vel
fer um alla þrjá í aftursæti (mið-
BMW X5
3,0si og 3,0d
Finnur bestu spyrnu og hagar sér eftir því
Að útliti er nýja kynslóðin af BMW X5 ekki mjög frábrugðin þeirri eldri og spurning hvort ekki hefði mátt fá
hann enn sportlegri með meiri breytingu, sérstaklega á hliðarlínu á framenda (að B-pósti).
Skottlok X5 er tvískipt og opnast efri hlutinn upp.
Þurfi að flytja þunga hluti eða fyrirferðarmikla er
auðvelt að leggja neðri hlutann niður og má þá
einnig nýta til að tylla sér á – þolir 250 kg þyngd!
Akstursumhverfi ökumanns er eins og best
verður á kosið. Fyrir miðju má sjá skjáinn
með iDrive upplýsingum, sem stjórnað er
með hnappi við hlið gírstangarinnar.
X5 er á svonefndum „runflat“ dekkjum
sem þýðir að þó að springi á að vera að
skaðlausu hægt að aka nokkra tugi km á
sprungna dekkinu, ef ekki er farið yfir 80 km
hraða. Um ágæti þessara dekkja er deilt,
enda hefur X5 ágætt rými undir gólfi farang-
ursgeymslu fyrir varahjól fullrar stærðar og
annað sem með þarf.
BÍLAR: SIGURÐUR HREIÐAR