Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 256
256 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is
AR
GU
S
07
-0
56
0
Nú er tækifærið!
SPRON, í samstarfi við Þróunarbanka Evrópu CEB og Norræna fjárfestingarbankann NIB, býður konum með
mótaða og samkeppnishæfa viðskiptaáætlun, hagstætt athafnalán* til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
Fáðu aðstoð hjá viðskiptastjórum SPRON og draumurinn gæti orðið að veruleika!
*Háð útlánareglum SPRON
Hinn mikli viðbúnaður í borginni skýrðist
auðvitað fyrst og fremst af því að forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, var á vígsluhátíðinni
– auk þess sem íslenski hópurinn var þarna á
vegum borgaryfirvalda.
Forseti Íslands og sterk tengsl hans við forseta
Kína, Hu Jintao, hafa mikla vigt fyrir íslensku
fyrirtækin sem eru að taka sín fyrstu skref í Kína.
Forsetinn kom frá Sjanghæ þar sem hann hafði
opnað skrifstofu Össurar en nokkrum dögum
áður hafði hann fundað með forseta Kína, Hu
Jintao, og setið við hlið hans við opnun ólymp-
íuleika fatlaðra.
Í hinni formlegu opnun frystigeymslunnar
höfðu um 120 kínverskir starfsmenn Eimskips
í kæligeymslunum, sem og starfsmenn hafnar-
innar, stillt sér upp og myndað raðir líkt og á her-
sýningu væru. Þetta var tignarleg sjón. Þá bætti
það mjög á stemmninguna að öflug sveit trumbu-
slagara lék af miklum krafti – og á als oddi.
Þeir Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips,
og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
fluttu ávörp við vígsluna af hálfu Íslendinga. Að
ræðum loknum var klippt á borðann og eftir
það var litlum pappírsmiðum skotið yfir gesti
úr fallbyssum.
Í ávarpi sínu sagði Baldur Guðnason, for-
stjóri Eimskips, að upphaf viðskipta Eimskips í
Qingdao mætti rekja til ferðar forseta Íslands og Skrifað var undir formlegt samstarf Faxaflóahafna og hafnarinnar í Qingdao. Glæsilegur fundur í glæsilegum salarkynnum.
Íslenska líftæknifyrirtækið ORF Líf-
tækni skrifaði undir samkomulag í
Qingdao við stærsta lyfjafyrirtækið í
Kína, Sinopharm, um samstarf í þróun,
framleiðslu og sölu á líftæknilyfjum.
ORF Líftækni hefur þróað aðferð til að
framleiða sérvirk prótein í lyfjaþróun og
lyfjagerð á mun öruggari og ódýrari hátt
en áður hefur þekkst.
Fremst á myndinni eru Björn Lárus
Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líf-
tækni, og Yin Xiaohong frá Sinopharm
sem handsöluðu samninginn. Í aftari
röð eru Júlíus Kristinsson, stjórnarfor-
maður ORF, Gunnar Snorri Gunnars-
son, sendiherra í Kína, Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, Jón Ásbergs-
son, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs,
og fulltrúar Sinopharm.
ORF Líftækni