Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 270
270 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
Verkefnalausnir er ungt fyrirtæki sem býður upp á hagnýtar lausnir
á sviði verkefnastjórnunar.
Framkvæmda stjóri er Elín Þ.
Þorsteinsdóttir: „Ég stofnaði
Verkefnalausnir í lok árs 2005 og
hafði þá verið viðloðandi verk-
efnastjórnun innan fyrirtækja og
stofnana og stýrt stærri verk-
efnum á landsvísu. Fyrirtækið
er stofnað í kringum hugbún-
aðinn Mind Manager sem ég
kynntist um það leyti sem ég
lauk námi í Verkefnastjórnun
og leiðtogaþjálfun frá HÍ. Ég var
í upphafi eini starfsmaðurinn,
en í dag störfum við fimm við
fyrirtækið, þar af erum við tvær
eigendur, og hefur veltan og
umsvifin aukist mikið á tveimur
árum. Starfsemin er þríþætt;
sala á MindManager ásamt fleiri
hugbúnaðarlausnum sem vinna
með MindManager, í öðru lagi
fræðsla og þjálfun, annars vegar
kennsla í notkun Mind Manager
og hins vegar námskeið í sím-
svörun og símafærni. Í þriðja
lagi tímabundin stjórnun verk-
efna fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Auk þess að gegna starfi fram-
kvæmdastjóra hef ég sinnt verk-
efnastjórnun síðustu mánuðina
en stefni á að draga úr því til að
verja meiri tíma í vöruþróun og
daglega stjórnun.“
Elín er iðnrekstarfræðingur
frá Tækniháskóla Íslands og
hefur einnig lokið námi í verk-
efnastjórnun og leiðtogaþjálfun
frá Háskóla Íslands. „Þegar ég
hafði lokið iðnrekstarnáminu fór
ég að starfa hjá Iceland Seafood
og var þar í níu ár sem markaðs-
stjóri og gæðastjóri, síðast á sölu-
skrifstofu fyrirtækisins í Hull við
sölu- og markaðsetningu. Þegar
ég kom heim ákvað ég að söðla
um og starfaði sem deildarstjóri
í gæðadeild hjá Íslandsbanka og
stýrði þar ýmsum hugbúnaðar-
verkefnum. Ég starfaði einnig
sjálfstætt við verkefni á borð við
landssafnanir. Eftir að ég lauk
náminu í HÍ fyrir fjórum árum
fór ég eingöngu að vinna sjálf-
stætt.“
Eiginmaður Elínar er Gísli
Willardsson, sölumaður hjá
Veiðar færasölunni Dímon, og
eiga þau tvo drengi, Davíð Þór
og Elías Orra. „Strákarnir eru
19 og 12 ára og eru virkir í
íþróttum, hafa verið í fótbolta
og körfubolta og snýst lífið í
fjölskyldunni mikið um íþróttir
og líkamshreyfingu enda erum
við hjónin bæði í líkamsrækt,
skokkum, göngum og syndum
og svo förum við öll á skíði
saman, þannig að segja má að
lífsstíll fjölskyldunnar sé að
hreyfa sig mikið.
Við hjónin höfum gaman
að ferðast bæði innanlands og
utan. Við förum í skíðaferðir og
einni g er vinsælt hjá fjölskyld-
unni að fara til Flórída. Þá erum
við í ferða- og matarklúbb með
nokkr um fjölskyldum sem er
mjög skemmtilegt og lífgar upp á
tilveruna. Þá má geta þess að við
erum að byggja okkur heilsárs-
hús í Grímsnesinu sem verður í
framtíðinni okkar athvarf frá erli
dagsins.“.
framkvæmdastjóri Verkefnalausna
ELÍN Þ. ÞORSTEINSDÓTTIR
„Segja má að
lífsstíll fjöl-
skyldunnar
sé að hreyfa
sig mikið.“
Nafn: Elín Þ. Þorsteinsdóttir.
Fæðingarstaður: Keflavík,
29. desember 1961.
Foreldrar: Helga
Þorkelsdóttir og Þorsteinn
Kristinsson.
Maki: Gísli Willardsson.
Börn: Davíð Þór 19 ára,
Elías Orri, 12 ára.
Menntun:
Iðnrekstarfræðingur.
Fólk