Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 240
240 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
Við ökum
inn í vistvænni
framtíð Eitt af markmiðum Orkuveitu Reykjavíkur er að taka tillit til umhverfismála í allri starfsemi sinni og stuðla þannig að betra umhverfi. Til marks um það þá mun Orkuveita Reykjavíkur stuðla að aukinni notkun vistvænna ökutækja og vinnuvéla í daglegu starfi sínu.
Á þessu ári eru 15% bílaflota OR vistvæn og árið 2013 verður hlutfallið komið upp í 55%. Í lok þessa árs mun OR nota 21 metanbíl,
4 tvinn-vetnisbíla,1 rafmagnsbíl og 1 vetnisbíl. OR varðar veginn inn í umhverfisvænni framtíð.
• Í allri starfsemi OR er gengið út frá umhverfismálum — Orkuvinnsla í sátt við umhverfið www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
3
91
67
0
9/
07
hreinlætisvörum, ytri fatnaði, öðrum vefn-
aðarvörum og búsáhöldum, og á bensíni.
Skammtur hvers einstaklings af matvöru var
sem hér segir frá 1. október til ársloka: Korn-
vörur 15 kg, sykur 4,5 kg, kaffi (óbrennt)
1,2 kg. Að því er hreinlætisvörur snertir, fékk
hver einstaklingur 4 skömmtunarreiti, og gaf
hver þeirra rétt til kaupa á ½ kg af blautsápu
eða 2 kg af þvottadufti eða 1 stk. af handsápu
eða 1 stk. af stangarsápu. Af ytri fatnaði var
skammturinn til ársloka 1948 ákveðinn einn
alfatnaður karla, eða ein yfirhöfn karla og
kvenna, eða annar jafngildur ytri fatnaður,
eða efni í hann. Af skófatnaði var skammtur-
inn 1 par á tímabilinu 15. ágúst 1947 til 30.
apríl 1948. Inniskór og gúmmískófatnaður
var undanþeginn skömmtun. Til kaupa á
vefnaðarvöru og búsáhöldum sameiginlega,
eftir frjálsu vali, var úthlutað miðum fyrir
100 kr. sem giltu þrjá síðustu mánuði ársins.
Upphaflega náði skömmtunin jafnt til svo að
segja allrar vefnaðarvöru og fatnaðar, en brátt
voru prjónavörur úr íslenzku efni undan-
þegnar henni. – Skömmtunin á erlendu
smjöri, sem er sérstaks eðlis, hélzt óbreytt, 1
kg á mann á ársfjórðungi. Nokkurn tíma um
sumarið var íslenzkt smjör selt gegn skömmt-
unarseðlum, í stað erlends smjörs. – Bensín-
skammturinn til 5–7 manna leigubifreiða var
ákveðinn 625 lítrar á mánuði, og 60 lítrar
til einkabifreiða af sömu stærð, og er þetta
nefnt til dæmis um skömmtunina. Síðar um
haustið var skammtur vörubifreiða og leigu-
bifreiða til mannflutninga aukinn um 50%.
Skömmtunin á bifreiðagúmmíi, sem tekin
var upp aftur 1946, hélzt óbreytt á árinu.
Þessi vöruskömmtun hélzt mikið til
óbreytt árið 1948, bæði hvað snertir til-
högun, umfang og skammtað magn. Þó
var veittur aukaskammtur til sláturgerðar,
hinn sami og á stríðsárunum. Ekki var um
að ræða neina viðbót við skammtinn af ytri
fatnaði, sem ákveðinn var 1947 og látinn var
gilda til ársloka 1948. Aukaskammtar voru
veittir vegna stofnunar heimilis og vegna
barnshafandi kvenna o.fl. Á tímabilinu 15.
ágúst 1947 til 30. apríl 1948 voru hverjum
einstaklingi heimiluð kaup á einu pari af
götuskóm. Einnig var hafin skömmtun á
inniskóm.“
(Kaupmaður á hverju horni bls. 23-25)
S A G A V E R S L U N A R Á Í S A F I R Ð I
Forsjárhyggjan snerti einnig hina framliðnu.
Skömmtunarseðlar og skömmtunarbók.
„Nú geta landsmenn valið
úr meira en 500 tegundum
mjólkurvara og osta, en við
upphaf tímabilsins urðu menn
að láta sér nægja 7-8 tegundir
og þannig mætti lengi telja.“
Algengt var að fólk skipaði sér í biðraðir kvöldið áður en verzlanir voru opnaðar og biði alla
nóttina, þegar fréttist að komnar væru vörur sem fólk vanhagaði um. Bomsuslagurinn á
Ísafirði 27. apríl 1948 var dæmi um slíkt.