Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 234
234 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
300 stærstu
eru stærstir vegna þess
að þeir kunna að notfæra sér
tækifærin sem bjóðast
Flugkort Flugfélags Íslands
fyrir þá sem eru – og hina sem vilja vera!
flugkort@flugfelag.is | www.flugfelag.is | 570 3030
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
F
L
U
3
94
35
1
0/
07
Eplin koma fyrir jól!
Í skrifstofu Innflytjendasambandsins var
Morgunblaðinu skýrt svo frá í gær, að eplin
á jólaborðið myndu koma til landsins um
miðjan desember n.k. Tími vinnst þá til að
senda út um land þann hluta af pöntuninni
er þangað á að fara. Eplin eru keypt í Sviss.
Hjer er um að ræða 20 þúsund kassa.
Því miður horfir ekki jafn vænlega með
appelsínurnar. Þær koma alla leið frá Palest-
ínu, en í pöntun þessari verða 15 þús. kassar.
Frá Palestínu verða þær fluttar til Antwerpen
og mun skipið lesta í lok þessa mánaðar, en
ekki er vitað hvenær það kemur á ákvörðunar-
stað.
(Morgunblaðið 23. nóvember 1946
– Kaupmaður á hverju horni bls. 14)
Ekki vor í lofti
þegar Stefanía tók við
„Þjóðin hefur ekki lengur efni á að eyða fjár-
munum í afurðir frumskóganna“
Á árinu 1947 fór að bera á vöruþurrð í verzl-
unum vegna gjaldeyriserfiðleika, en bank-
arnir höfðu þá sett hömlur á allar yfirfærslur
til vörukaupa. Í skýrslu Landsbanka Íslands
1947 er ástandinu lýst þannig:
…og var á síðara helmingi ársins tekin upp
skömmtun á mörgum nauðsynjum, til þess
að spara gjaldeyri og koma í veg fyrir ójafna
dreifingu á þeim vörum, sem keyptar voru
til landsins. Verzlunin átti, þegar á árið leið,
við erfiðleika að etja vegna vöruþurrðar, og
hráefnisskortur var mikill í sumum greinum
iðnaðarins. Á sviði fjárfestingarinnar olli gjald-
eyrisskorturinn töfum á framkvæmdum, sem
þegar höfðu verið hafnar, og af sömu ástæðu var
horfið frá áformum um ýmis verkleg fyrirtæki, í
bili eða fyrir fullt og allt.
Í bókinni Kaupmaður á hverju horni
kemur fram að ný ríkisstjórn Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks undir
forsæti Stefáns Jóhanns Stefánssonar hafi
tekið við völdum í byrjun febrúar 1947. Var
sú stjórn í daglegu tali nefnd ,,Stefanía“. Nýja
stjórnin stóð frammi fyrir miklum efnahags-
vanda. Gjaldeyrissjóðir þjóðarinnar voru á
þrotum, yfirvofandi voru vinnudeilur, vax-
andi dýrtíð blasti við og fyrirsjáanlegir voru
erfiðir viðskiptasamningar um sölu útflutn-
ingsafurðanna, en á þessum árum voru nán-
ast allar útflutningsafurðir landsmanna seldar
fyrir beina milligöngu stjórnvalda. Það var
því sannarlega ekki vor í lofti, þegar Stefanía
tók við völdum.
S A G A V E R S L U N A R Á Í S A F I R Ð I
„Við upphaf þessa tímabils voru
landsmönnum skömmtuð 6 kíló af
ávöxtum fyrir jólin, en nú neytir
hvert mannsbarn 48 kílóa á ári.“
Götumynd frá Ísafirði við upphaf þess tímabils er bókin fjallar um.