Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 34
D A G B Ó K I N
34 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
TVG_URVALS_FV.fh9 3.10.2007 9:27 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
flugi miðað við háflug áður.
En það varð til þess að
Hannes Smárason, forstjóri
FL Group, sendi stjórn AMR
Corporation bréf þar sem hann
hvatti stjórnina til aðgerða
til að rétta hag félagsins við.
Hannes lagði til að vildarklúbbur
félagsins yrði seldur en verð-
mæti hans eru 6 milljarðar doll-
ara, gegnsæi verði aukið með
bættu upplýsingastreymi og við-
halds- og viðgerðardeildir verði
aðskildar frá rekstri félagsins.
Þetta bréf hafði nokkur áhrif
og fram kom í bandaríska við-
skiptavikuritinu Barron´s að bréf
AMR gætu hækkað um 50%
verði farið að ráðum FL Group.
26. september
Halldór til FL Group
Sagt var frá því að Halldór
Kristmannsson, áður yfirmaður
samskiptasviðs Actavis, hefði
verið ráðinn framkvæmdastjóri
samskiptasviðs FL Group. Hann
verður hluti af framkvæmda-
stjórn félagsins og mun bera
ábyrgð á öllum samskipta-
málum FL Group, þ.á.m. sam-
skiptum við fjárfesta, fjölmiðla,
innri samskipti og ímyndarupp-
byggingu félagsins. Þá mun
hann einnig taka þátt í ýmsum
sérverkefnum með forstjóra og
aðstoðarforstjóra félagsins.
26. september
Heimili taka gengis-
áhættu
Hér kom frétt sem vakti athygli.
En 14% af skuldum heimilanna
við innlánsstofnanir eru tengdar
erlendum myntum og hafa
þessi útlán ríflega tvöfaldast
á undanförnu ári. Hagurinn
af þessum lánum er mikill ef
gengið er stöðugt en bankarnir
hafa margoft bent á undanfarna
mánuði að krónan sé svo sterk
að heimilin séu að taka mikla
gengisáhættu. Bent hefur verið
á að illa geti farið hríðfalli gengi
krónunnar – eins og margir
óttast.
Saga Film sameinast European
Film Group.
27. september
365 kaupir
European Film
Group
Sagt var frá því að 365 hefðu
keypt danska fyrirtækið
European Film Group og ætli
að sameina það Saga Film
á Íslandi og 2AM í Bretlandi.
European Film Group er ekki úti
um alla Evrópu heldur er fyrir-
tækið einungis með starfsemi
í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi. Eftir sameininguna
við Saga Film verður saman-
lögð velta samstæðunnar um
350 milljónir danskra króna eða
rúmir 3,5 milljarðar króna á ári.
27. september
Hagnaður hins opin-
bera 81 milljarður
Eniga Meniga, ríkið fær pen-
inga. Sagt var frá metafkomu
hins opinbera upp á 81 milljarð
króna á síðasta ári. Þetta sam-
svarar 7% af landsframleiðslu
og hefur ekki mælst hagstæð-
ara áður. Fjárhagur sveitarfélag-
anna hefur einnig snúist til betri
vegar. Tekjur hins opinbera voru
568 milljarðar og hækkuðu ein-
mitt um 81 milljarð á milli ára.
Útgjöld hins opinbera námu 487
milljörðum.
Og takið eftir þessu: Sem
hlutfall af landsframleiðslu
námu tekjur hins opinbera
48,8% og hafa ekki verið hærri
áður. Er nema von að spurt sé
hvort Ísland sé orðið „komm-
únískt ríki“ hvað varðar hlut
ríkisins í þjóðarbúskapnum?
„Kommúnísk tala“; tekjur hins
opinbera voru 48,8% af lands-
framleiðslu á síðasta ári.
27. september
70% ætla að hækka
verð á vöru sinni
Verðbólgudraugurinn hefur ekki
verið kveðinn niður. Í Hagvísum
Seðlabanka Íslands var sagt frá
könnun sem gerð var í septem-
ber og sýndi að stjórnendur á
meðal 400 stærstu fyrirtækja
landsins teldu að fyrirtæki
þeirra ættu eftir að hækka
verð á vöru sinni og þjónustu
á næstu tólf mánuðum. 70%
stjórnenda sjá fram á að hækka
verð á vöru sinni um 3,3% að
jafnaði en í febrúar var þessi
tala um 43% stjórnenda.
3. október
Páll Benediktsson
til Stoða
Enn streyma kunnir frétta-
haukar til stórfyrirtækjanna.
Nýjustu tíðindin eru þau að
Páll Benediktsson, fyrrverandi
fréttamaður á Sjónvarpinu, hefur
verið ráðinn forstöðumaður
upplýsingasviðs fasteignafé-
lagsins Stoða. Baugur Group
er stærsti hluthafinn í Stoðum
en auk þess á Kaupþing banki,
Ingibjörg S. Pálmadóttir og Fons
Eignarhaldsfélag hlut í félaginu.
4. október
Er Fons
að kaupa Atlanta?
Hér kom nokkuð sérstök frétt. Í
föstum pistli Innherja í viðskipta-
blaði Morgunblaðsins var vísað
til orðróms um að fasteignafé-
lagið Fons væri hugsanlega að
kaupa Air Atlanta af Eimskip
sem hefur haft flugfélagið til
sölu um nokkurt skeið. Enginn
var hafður fyrir fréttinni eða
vitnað í neinn. Fons er stærsti
eigandi ferðarisans Northern
Travel Holding sem m.a. rekur
flugfélögin Iceland Express og
Sterling. Pálmi Haraldsson og
Jóhannes Kristinsson eru eig-
endur Fons.
Pálmi Haraldsson.