Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 31
D A G B Ó K I N
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7 31
21. september
Slippfélagið skiptir
um eigendur
Næstelsta hlutafélag landsins,
Slippfélagið í Reykjavík, sem er
málningarverksmiðja og stofnuð
árið 1902, hefur skipt um eig-
endur. Hinir nýju eigendur eru
bræðurnir Pétur Már og Ástgeir
Finnssynir.
Í 105 ára sögu félagsins
hafi margir af þekktustu framá-
mönnum í íslensku viðskiptalífi
komið við sögu þess, þ.á m.
Tryggvi Gunnarsson bankastjóri
og Tryggvi Ófeigsson útgerðar-
maður.
21. september
Bandarískir
milljarðamæringar
verða enn ríkari
Warren Buffett og Bill Gates.
Hinir ríku verða ríkari og hinir
fátæku fátækari. Þannig hljóm-
aði slagorð marxista á árum
áður. Síðan komust menn að því
að þetta er ekki alveg svona.
Hinir ríku verða jú ríkari en hinir
fátæku verða aðeins betur settir
líka.
Á lista tímaritsins Forbes
yfir 400 ríkustu menn
Bandaríkjanna jukust samanlögð
auðæfi þessara 400 manna um
290 milljarða Bandaríkjadala.
Bill Gates, stofnandi
Microsoft, er enn og aftur efstur
á listanum en eignir hans eru
metnar á 59 milljarða dala.
Kaupsýslumaðurinn Warren
Buffett er næstur með 52 mill-
jarða og spilavítakóngurinn
Sheldon Adelson er þriðji með
28 milljarða dala eignir.
22. september
Ávinningur af evru
70 milljarðar á ári
Sú frétt í Blaðinu vakti mikla
athygli að Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra teldi beinan
ávinning af upptöku evru fyrir
þjóðarbúið geta orðið allt að
70 milljörðum króna á ári.
Viðbrögðin við þessari yfirlýsingu
urðu býsna sterk og fannst and-
stæðingum viðskiptaráðherra
sem hann ofmæti ávinninginn.
Björgvin rökstuddi m.a. mál
sitt í viðtalinu í Blaðinu svona:
„Vaxtastigið á lánum okkar
myndi lækka. Slíkt myndi hafa
verulega jákvæð áhrif bæði á
almenning og fyrirtæki, ekki síst
lítil og meðalstór fyrirtæki sem
geta ekki flúið í skjól stærri
gjaldmiðla líkt og stórfyrirtækin
geta gert.
Þetta myndi til dæmis hafa
mikil áhrif á íbúðalán. Það hefur
verið reiknað út að ef tekið er
10 milljóna króna íbúðarlán í
evruumhverfinu myndi þurfa að
borga um 16 milljónir króna á
tilteknum árafjölda til baka. En
eins og staðan er á Íslandi í dag
er sú heildarupphæð 40 millj-
ónir króna. Ávinningurinn er því
mikill.“
23. september
N1-menn kaupa 49%
í dönsku olíufélagi
Sagt var frá því þennan dag að
gengið hefði verið frá kaupum
BNT, sem er eigandi N1, á 49%
hlut í danska úthafsolíufélaginu
Malik Supply a/s.
Seljandi hlutarins er stofn-
andi og aðaleigandi félagsins
frá upphafi, Morten Jacobsen.
51% hlutur í Malik Supply verður
framvegis í höndum starfs-
manna þess.
Í tilkynningu um kaupin
kom fram að Malik Supply a/s
hefði verið stofnað fyrir um 20
árum til að þjóna grænlenskum
útgerðarfélögum.
Mali Supply er með aðsetur
í Álaborg í Danmörku. Velta
þess á síðasta ári nam um
6 milljörðum íslenskra króna.
Megináherslur í rekstri Malik
Supply a/s er sala eldsneytis til
útgerðaraðila á NV-Atlantshafi,
bæði frá birgðaskipum en
einnig sem umboðsaðili. Malik
Supply a/s er meirihlutaeigandi
Íslenskrar olíumiðlunar ehf.,
sem á og rekur eldsneytisbirgða-
stöð á Neskaupstað.
24. september
OR eignast
hlut í Landsneti
Þetta var í
september og
ekki var komið
að máli mál-
anna í kringum
Orkuveitu
Reykjavíkur,
OR. En sagt
var frá því Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Hermann Guðmundsson,
forstjóri BNT og N1.
Þórður Guð-
mundsson, for-
stjóri Landsnets.