Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2004, Blaðsíða 55

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2004, Blaðsíða 55
FRÁ RITNEFND Ritsjórnarstefna og starfsáætlun Ritstjórnarstefna og starfsáætlun ritnefndar Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fimm sinn- um á ári. Tímaritið er málgagn félagsmanna i Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólík- arskoðanirog viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkr- unarfræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju. Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar um- fjöllunar um hjúkrun. í faglega hluta tímaritsins eru birtar margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkr- unar. Greinar flokkast í tvennt, annars vegar fræðigrein- ar og hins vegar fræðslugreinar. Fræðigreinar eru rann- sóknagreinar, yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun, hvort heldur sem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkrunar- kennslu, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkr- unar- og heilbrigðisþjónustunni. Lögð er áhersla á beit- ingu margvíslegra rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í fræðilegri nálgun viðfangsefna og vönduð vinnubrögð. Hægt er að óska eftir að fræðigreinar verði ritrýndar. þróun hjúkrunar. Í blaðinu er einnig aö finna viötöl við fólk um hjúkr- un og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. í félagslega hluta tímaritsins eða fréttahlutanum er greint frá kjaramál- um og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig að finna fréttir frá svæðanefndum félagsins. Einnig er greint frá því helsta sem er á döfinni hjá fagdeildum félagsins. Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tímaritsins sé í sam- ræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnaö í aö tímaritið sé vandað að því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur. Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aösend- um greinum. Höfundar aösendra greina bera ábyrgö á efni þeirra. Skoð- anir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Leiðbeiningar til höfunda tímaritsgreina Tímaritsgreinar eru sendartil Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suð- urlandsbraut 22,108 Reykjavík. Ef höfundar eru tveir eöa fleiri þarf einn þeirra að vera ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið og nafn hans þarf að koma fram í bréfi sem sent er með handritinu. Viö umfjöllun greina, sem óskað hefur verið eftir að veröi ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Handbók sálfræöiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson og gefið var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarleg- ar leiöbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit aö fræöi- legum tímaritsgreinum. í handbókinni er einnig að finna upplýsingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim leiöbeiningum. Höfundar þurfa að fylgja þessum reglum í hvivetna en eru hvattir til að ráöfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að víkja frá settum reglum. í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiðbeiningum Handbókar sálfræðiritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki sérprentaðar tímaritsgreinar sínar en fá aukaeintök af viðeigandi tímariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu fylgja með greinum þrjú lykilorö. í handbókinni er meg- ináhersla á megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir. Tímarit hjúkrunarfræðinga bindur sig hins vegar ekki viö megindlegar rannsóknir og er fengur að greinum þar sem margvíslegri aöferðafræði er beitt. Frágangur handrits Viö ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók sálfræöiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson sem gefin var út af Sál- fræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarleg- ar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímarits- greinum. Á forsiðu handritsins þarf að koma fram heiti tímaritsgreinarinnar; nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustaður/vinnustaöir höfunda(r); heimilisfang og símanúmer þess höfundar sem er ábyrgur fyrir sam- skiptum við tímaritið. Útdráttur, sem er á annarri blaðsíðu, á að vera 100-150 orö. Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000-5000 orð. Handritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv. skal vera með tvöföldu línubili. Öll handrit skulu send inn í þremur eintökum sem ekki eru meö nafni höfunda(r). Handrit skulu ekki hafa birst annars staðar þegar óskað er eftir því að þau séu ritrýnd. Útgáfuferli Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg við- fangsefni hjúkrunar og byggjast aö einhverju leyti á fræöilegum heimildum ásamt athugunum eða reynslu höfunda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efn- istökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband viö þann höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og honum tilkynnt skriflega aö greinin hafi borist. Þegar óskað er eftir birtingu greinar lesa fulltrúar í ritnefnd handritið og ákveða hvort það verður sent til umsagnar. Stuðst er við þau viðmið sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins við mat á tímaritsgreinum. Tímarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 80. árg. 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.