Morgunblaðið - 11.12.1977, Page 35

Morgunblaðið - 11.12.1977, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1977 35 Forseta- þota og farþega- þyrla SJALDSÉÐIR farkostir stóðu sl. fimmtudag samtímis úti á Reykjavíkurflugvelli. Hér var um að ræða einkaþotu forseta S-Ameríkuríkisins Columbíu. Er það tveggja hreyfla hol- lenzk þota. Var hún að koma úr sjö ára klössun í Hollandi, hafði hér nokkurra klukku- stunda viðdvöl, en hélt síðan vestur um haf og flaug í einum áfanga til Goosebay í Lahra- dor. Ofan við glugga á farrými þotunnar stóð „Republic of Columbia" og bar hún númer eitt í flugher lýðveldisins. — Þessi holienzka þota er mjög falleg. Hún kom undir hádegi og hélt áfram undir kl. 3. — Þá stóð þar skammt frá ein af farþegaþ.vrlum grænlenzka flugfélagsins Grönlandsfly. Hún er nokkuð stór, af Sikorski-gerð og tekur all- marga farþega, enda notuð á flugleiðinni Godthaab- Syðri-Straumfjörður. Til þess að komast yfir hafið er þ.vrlan með varaeldsneytisgeyma í farþegarými. Hún kom hingað frá Færeyjum. Þegar veðra- ham linnir í Grænlandi, sem þar hefur geysað undanfarna daga, er ferðinni heitið til höfuðborgarinnar. Godthaab, með viðkomu í Kulusuk á austurstriindinni, og síðan á vesturstriindinni á Narssasuaq-flugfelli og þaðan til Godtháb. Það er Flugþjónusta Sveins Björnssonar, sem annast fyrir- greiðslu við erlendar flugvél- ar, er koma við hér á Reykja- víkurflugvelli. Skyndilokun til 15. janúar IIa I'rannsók nastofnuu i n notaði hinn 4. desember heimild í lögum til sk.vndilok^na svæða þegar eftirlitsmenn sjávarútvegsráðu- neytisins urðu vafir við mikið af smáþorski í afla togara á utan- verðu Strandagrunni. Leiðangursmenn á r/s Bjarna Sæmundssyni hafa nú i vikunni kannað svæði og kom í ljós, að hluti aflans á svæðinu er mjög smár fiskur. Hefur sjávarútveg's- ráðuneytið því í dag gefið út reglugerð, sem bannar veiðar meö botn- og flotvörpu á utanverðu Strandagrunni, á svæði, sem af- markast af eftirgreindum línum: að norðan: 67° 26 N að sunnan: 67° 07 N. að austan: 20° 00 V. að vestan: 20° 40 V. Barin þetta gildir til 15. janúar 1978 en Hafrannsóknastofnunin mun á þessu tímabili kanna svæð- ið aftur og verður þá tekin ákvöröun um hvort banninu verði framlengt eða fellt úr gildi fyrr. Ný bók eftir Desmond Bagley Óvinurinn heitir nýjasta skáldsagaDestnondBagleys. I þessari nýju sögu tekst Desmond Bagley svo vel að vefa saman vísindalegar staðreyndir og spennandi söguþráð, að hún stendur jafnvel framar því sem hann hefur hest gert áður. Allir hinir mörgu aðdáendur Desmond Bagleys munu örugglega taka þessari nýju skáldsögu hans tveim höndum. Einn á flótta eftir Charles Williams er önnur bókin sem Suðri gefur út eftír þennan vinscela höfund, en ífyrra kom út Eldraun á úthafinu og hlaut hún miklar vinsceldir, enda senn á þrotum hjá forlaginu. Einn áflótta er bók, sem allir karlmenn hafa áncegju af. Hún er cevintýraleg og þrungin spennu fráfyrstu til síðustu síðu, og munu fáirgeta lagt hana frá sér, fyrr en að lestri loknum. ÓVINURINN og EINN Á FLÓTTA eru jólabækurnar i ár. SUÐRI William Heinesen , TURNINN A HEIMSENDA Turninn á heimsenda er nýjasta skáld- saga Williams Heinesens, saga sem hann hefur haft í smíðum um tuttugu ára skeið. Hér birtist heimsmynd þeirra daga þegar jörðin var enn ekki orðin hnöttótt, en hafði upphaf og enda og dýrlegur turn trónaði yst á veraldarnöfinni. Síðan rask- ast þessi heimsmynd smám saman, hryn- ur og hverfur, nema í endurminningu sögumanns sem horfir til baka á iöngu liðinn tíma, til f jarlægra veralda. Þorgeir Þorgeirsson er fyrir löngu orð- inn mjög handgenginn verkum og skáld- skaparheimi Williams Heinesens enda mun öllum bera saman um að þetta snilldarverk hafi hlotið þann íslenska búning sem því er samboðinn. Þessi bók er fyrsta bindið í ritsafni þeirra sagna eftir William Heinesen sem enn hafa ekki komið út.á íslensku. Mál og meivning Þýðandinn: Þor- geir Þorgeirsson TURNINN Á HEIMSENDA Verð kr.4.320.— Kilja kr.3.780.— Félagsverð inn- bundin kr.3.500. LEIGUFLUG, SJÚKRAFLUG, VÖRUFLUGf ! UM LAND ALLT. VÆNGIR h/f Reykjavíkurflugvelli, simar 26060, 260Ut

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.