Morgunblaðið - 11.12.1977, Page 46

Morgunblaðið - 11.12.1977, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1977 STJÖRNUBÍÓ: HARRY OG WALTER GERAST BANKARÆNINGJAR („Harry and Walter go to New York“) Það verður ekki sagt um H&W., að hún sé beinlínis frumleg. Leikstjórinn hefur ábyggilega brugðið sér af og til á THE STING og BUTCH CASSIDY AND THE SUNDANCE KID í leit eftir innblæstri. En hvað með það, H&W er oft bráðfyndin og það á hún fyrst og fremst að þakka dásamlegum „sl leik þeirra Caans og Gould, og oft skemmtilega rugluðum bröndurum og uppákomum. Eins eiga allir aðrir leikarar hrós skilið. ANÆSTUNNI HAFNARBIO: FOR THELOVEOFBENJI I.íkl <>;> hvarvcl.na aiinuis sladar hlaul barna- un^l i ii^amy ncl i n BE.N.II ÚKa'lis a<)s<'»kn h«il<‘ii(lis. I»a<) var |n í vol lil limdib h.já kvik- mviiclahiisinu aO h.jóOa un^iini Koslum sínuin uppá Iramhald mvndarinnar FOR TIIE I.O\ E OE BEN.II scin \ar l'rumsviid im IoihIís í sumar. I siðasta mánuði birgSi Tónabió sig upp. er þa8 gekk frá nýjum samningi við kvik- myndadreififyrirtæki8 sem þa8 hefur umbo8 fyrir hér- lendis, United Artist. Þessir samningar gilda oftast yfir framleiSslu siSasta árs. en þar sem risafyrirtækin vestra hafa nú á siSari árum tekiS þá stefnu að framleiSa færri en betri myndir. þá þurfa kvikmyndahúsin hérlendis að leita viðar fanga. Þetta er ágætis þróun, sem einnig gefur gestunum tækifæri að sjá aðra framleiðslu en engil- saxneska. Kvikmyndaframlei8sla stórfyrirtækjanna bandarisku er ekki ósvipuð vinfram- leiðslu að þvi leyti að hún er ærið misjöfn frá ári til árs. Og þeir. sem reka Tónabió. geta verið harðánægðir með það sem þeir bjóða gestum sinum næstu misserin, þvi það er eitt það jafnbesta frá United Artist um langt árabil. En lit- um nú á myndimar: 0 Næst nýjasta Bond-myndin og sú niunda i þessari feykivin- sælu seriu, er The man with the golden Gun. að venju er til lítils að rifja upp efni hinna upprunalegu skáldsögu eftir lan Fleming. svo hefur þeim verið breytt i myndagerðínni En hér á Bond semsagt i höggi við manninn með gullbyssuna. Scaramanga, og umhverfið er einhvers staðar i SA-Asíu Með aðalhlutverkið fer Rogers M oore, en með titilhlutverkið fer gamall kunningi úr hryll- ingsmyndunum, Christopher Lee. Leikstjóri er Guy Hamil- ton. 0 The Pom Pom Girls nefnist nýleg, bandarísk mynd, sem einhvers staðar hefur rekið á fjörur þeirra Tónabíósmanna. Engin stórmynd mun hér vera á ferðinni, en með aðalhlut verkið fer einn þeirra Carra- dine-feðga, Robert Með önnur, stór hlutverk fara Jenni- fer Ashley og Bill Adler Leik- stjóri er Joseph Ruben 0 Em umtalsverða mynd síð- ari ára er vafalaust One Flew Over The Cuckoo's, og loks, eftir nokkura ára bil, er nú von á henni í Tónabíó um jólin. „Gaukshreiðrið", eins og hún hefur verið títtnefnd á íslensku, hefur fengið ómælt pláss hér á siðunni sem annars staðar, i gegnum árin, svo það er að bera í bakkafullan lækinn að bæta hér nokkru við Þó má geta þess að myndin vann það afrek að hljóta öll fjögur eftir- sóttustu OSCARSverðlaunin i fyrra, þ e fyrir besta leikstjórn (Milos Forman) bestan leik í karlhlutverki (Jack Nichol- son), og bestan leik í kvenhlut- verki (Lousie Fletcher, þá var myndin og valin besta mynd ársins. ^ Ný kynslóð er vaxin úr grasi síðan dansa- og söngvamyndin West Side Story sló öll fyrri aðsóknarmet í Tónabíó hér á árum áður Það er því orðið tímabært að stilla þessari gam- alkunnu mynd upp á nýjan leik, bæði fyrir þá sem aldrei hafa fengið tækifæri til að sjá hana og eins þá fjölmörgu sem gætu hugsað sér að grípa tæki- færið r nýjan leik W.S.S. fjall- ar um átök á milli tveggja flokka ungra vandræðaungl- inga í West Side hverfi N Y Inn í myndina spinnast ástamál á milli leiðtoga eins flokksins og systur höfuðpaurs annars. Samdráttur þeirra hlýtur harm- sögulegan endi, en myndin er öll í nútímaballettstil West Side Story hlaut feyki- góðar viðtökur á sinum tíma, m.a 10 Oscarsverðlaun. Með aðalhlutverkin fara Natalie Wood, Russ Tamblyn og George Charkiris; dansatriði ’eru útsett af Jerome Robbins, en leikstjórnin er í höndum Robert Wbe. 0 Sagan af prinsinum og betl- aranum, The Prince and the Pauper, eftir Mark Twain, er mörgum kunn. Nú nýlega var hún kvikmynduð af sömu aðil- um og gerðu myndina The Three Musketeers, en að daginn Bregður sér í allra kvik- inda liki Með önnur hlutverk fara Herbert Lom og Lesley Ann Down, sem sjónvarps- gónurum er kunn úr þáttunum „Húsbændur og hjú". Að venju leikstýrir Blake Edwards og Henry Mancini sér um mús- íkina ^ Sr vestri sem beðið hefur verið eftir með hvað mestri eftirvæntingu á síðari árum er tvimælalaust The Missouri Breaks. Henni stjórnar einn kunnasti leikstjóri Bandaríkja- manna í dag, Arthur Penn, sem áður hefur getið sér gott orð fyrir vestra sína (m.a The Left Handed Gun og Little Big Man.) En það var leikara- TUTTUGU FYRIR TÓNABÍÓ þessu sinni leikstýrir Richard Fleischer. Með aðalhlutverkin fara engir aukvisar: Oliver Reed. Raquel Welch. Mark Lester. Ernest Boronaine, George C. Scott. Rex Harri- son og Charlton Heston. sem virðist ómissandi i þessari gerð mynda 0 Sú mynd, sem mest kom á óvart á yfirstandandi ári og varð ein sú langvinsælasta, var óþekkt byrjendaverk litilsmet- ins leikara Þetta er kvikmyndin Rocky. sem nú hefur farið sig- urför um allan heiminn og er væntanlega i Tónabíó fyrri hluta næsta árs Hún fjallar um óþekktan boxara, (Rocky), sem allt i einu fær tækifæri lifs sins; að keppa við heimsmeistarann Höfundur myndarinnar og aðalleikari er Sylvester. (Sly) Stallone, en hann hefði geng- ið með söguna lengi í magan- um áður en hann fékk einhvern til að gera hana að veruleika (m a vegna þess, þó að blank- ur væri, þá harðneitaði Sly jafnan að selja kvikmyndarétt- inn nema hann fengi aðalhlut- verkið). Það tókst að lokum, og fram- haldið má segja að sé skráð i kvikmyndasöguna Auk vin- sældanna hlaut John G. Avild- sen Oscarsverðlaunin í ár fyrir besta leikstjórn og myndin var einnig kjörin mynd ársins af bandarisku kvikmyndaakadem- iunni 0 Einn lánlausasti lögreglu- stjóri sem sögur fara af, Jacques Lolouseau, verður á ferðinni enn á ný eftir áramót- in, i nýjustu myndinni um Bleika pardusinn, The Pink Panther Strikes again. Þessi nýjasta mynd i hínum bráð- skemmtilega myndaflokki hef ur orðið einna vinsælust þeirra allra, og Peter Sellers ku vist fara á kostum, likt og fyrri valið i aðalhlutverkin sem þótti marka tímamót i kvikmynda- sögunni, þvi með þau fara þeir tveir leikarar sem mestrar virð- ingar hafa notið á síðustu ára- tugum; Jack Nicholson og Marlon Brando. Nicholson fer fyrir hópi útlaga sem valda bú- sífjum i Missouri-fylki, skömmu fyrír síðustu aldamót, en Brando hefur það verkefni að útrýma slikum óaldarlýð Myndin er svo lýsing á klækja- brögðum þeirra, en það olli mönnum vonbrigðum hversu sjaldan þessir afburðaleikarar voru báðir á tjaldinu 0 Myndirnar Andrey Rose og Carrie þykja báðar all-vel gerð- ar hryllingsmyndir. Sú fyrr- nefnda er með Marsha Mas- on. Anthony Hopkins og John Beck i aðalhlutverkum en er leikstýrð af Robert Wise. Myndin fjallar um ung hjón og dóttur þeirra, sem telur sig endurfædda og telur sig muna ýmislegt úr fyrra lifi Hefur meira að segja upp á föður sinum fyrrverandi C:rrie fjall- ar einnig um yfirskílvitlega hluti Aðalsögupersónan, skój^stúlkan Carrie (Sissy Spaceeck). er útundan hjá skólasystkinum sinum, og þeg- ar húi) ætlar að ná sér niðri á þeim uppgötvar hún að hún hefur yfir yfirnáttúrulegum kröftum að ráða, sem hún er fljót að færa sér i nyt Leikstjóri myndarinnar er einn af efni- legum, yngri leikstjórum Bandarikjanna, Brian DePalma. 0 Annie Hall er nýjasta m>nd háðfuglsins Woody Allen. sem fyrir aðeins nokkrum vikum stytti okkur stundir í myndinni Love And Death. Þessi nýjasta mynd hans er ekki jafn farsa- kennd og þær fyrri, en hún segir frá lifi hans siðustu árin, þá ekki sist af ástasambandi hans og leikkonunnar Diane Keaton, sem leikur hér á móti honum, likt og í flestum fyrri myndum Allens. Gagnrýnend- ur telja Annie Hall jafnbestu mynd þessa einstaka leikstjóra. Harðjaxlarnir Lee Marvin og Roger Moore leiða saman hesta sina i gamansamri ævin- týramynd sem gerist i Austur- Afriku í byrjun fyrri heimsstyrj- aldar Þeir félagarnir hafa feng- ist við veiðiþjófnað, en nú fá þeir mun betur borgað verk- efni: að sprengja i loft upp þýskt herskip sem er i felum i éinum árósnum . Myndin nefnist Shout At The Devil og leikstjórn annast Peter Hunt. 0 Robert Aldrich (The Dirty Dozen. The Longest Yard, Hustle.) hefur eignast stóran hóp aðdáenda hérlendis, likt og annars staðar Nýjasta mynd þessa leikstjóra nefnist Twilight’s Last Gleaming. og fjallar um striðsóðan hershöfð- ingja sem næstum er búinn að koma af stað þriðju heims- styrjöldinni Með aðalhlutverk- in fara Burt Lancaster, Joseph Cotten, Melvyn Douglas. Richard Widmark og Paul Winfield. 0 Sú mynd sem þótti hvað liklegust til að vinna Oscars- verðlaunin i Sr var nýjasta mynd leikstjórans Hal Ashby (Haarold And Maud, The Last Detail. Shampoo), Bound for Glory, Hún fjallar um hluta úr æviferli þjóðlagasöngvarans og baráttumannsins Woody Guthrie (eldri), og þykir góð lýsing á hörmungum krepp- unnar miklu vestan hafs sem urðu svo kveikjan að uppreisrv arsöngvum Woodys Með aðal- hlutverkið fer David Carra- dine. 0 Bækur Alistairs MacLeans seljast jafnan eins og heitar lummur hvar sem þær eru gefnar út, og eru þar að auki allar vel til þess fallnar að verða kvikmyndaðar Break- heart Pass. eða Launráð t Vonbrigðaskarði, eins og bók- in nefnist á íslensku, er þar engin undantekning Með aðal- hlutverk fara Charles Bronson og kona hans. Jill Ireland. Ben Johnson, Richard Crenna. Charles Durning og Ed Lauter. 0 Og enn luma þeir Tónabiós- menn á mörgum trompum, sem eflaust eiga eftir að ginna fjölda manns i húsakynni þeirra að ári Á meðal ótalinna aðdráttarafla má nefna mynd- ina um harðsvíraða valdabar- áttuna sem á sér stað innan hinna stóru sjónvarpshringja vestan hafs. Nefnist hún ein- faldlega Network, og var ein umtalaðasta mynd siðasta árs, og í hópi þeirra vinsælustu. Með aðalhlutverkin fara hin undurfagra Faye Dunaway og hinn látni breski leikari Peter Finch. En bæði hlutu þau Osc- arsverðlaunin i ár fyrir leik sinn í myndinní. Með önnur stór hlutverk fara ágætisleikararnir William Holden og Robert Du- vall Handritið samdi Paddy Chayefsky (Oscarsverðlaun) og leikstjórn annast Sidney Lum- et. 0 Fyrir allnokkrum árum naut myndin A Man Called Horse umtalsverðra vinsælda og slik velgengni hefur ekki ósjaldan orðið kveikja að framhalds- mynd og svo varð að þessu sinni. The Return Of A Man Called Horse, nefnist áfram- haldið sem státar einnig af Richard Harris i aðalhlutverki Hér er Englendingurinn á ný snúinn til byggða Sioux- indiána og hefur slegist i þeira hóp Leikstjóri er Irwin Kreshn- er. 0 Eg er einn af fjölmörgum aðdáendum hinnar makalausu sögu Josephs Wambaughs, The Choirboys. sem fjallar um eitt óliklegasta lögreglumanna- gengi sem sögur fara af Bókin um þessa harðsoðnu slarkara var hvalreki fyrir meistara þess- ara sagna. Robert Aldrich Það er nýjast að fregna af mynd- gerðinni að það stendur til að hún verði frumsýnd í næsta mánuði og Tónabió hefur þeg- ar tryggt sér sýningarréttinn hérlendis Með aðalhlutverkin fara ýmis kunn andlit úr sið- ustu myndum Aldrichs, eins og Lou Gossett. Ed Lauter. Don Stroud og Burt Young. 0 Þá hefur Tónabíó tryggt sér nýjustu mynd leikstjórans sem gerði hina upprunalegu Emmanuelle. Nefnist hún The Story of O, gerð eftir hinni klassisku pornografiu Pauline Regaé (dulnefní) 0 Enn er ótalin sú mynd, sem hvað frægust er að öllum lik- indum í þessari upptalningu; striðsmynd Francis Ford Coppola, Apocalypse Now. Um fáar myndir hefur verið jafn mikið rætt og ritað á siðari árum, og ber margt til Mynd- ina byggir Coppola á sögu eftir Josep Conrad og færir hana i nútimabúning, nánar tiltekið gerist hún í Viet-Nam styrjöld- inni Coppola hefði getað tekið sér hvaða verkefni sem er fyrir hendur, eftir vinsældir God- father- myndanna, og U A bauð honum gull og græna skóga ef hann kæmi til þeirra, verkefnið var aukaatriði Copp- ola lagði é brattann með 15 millj $ og eins og hálfs árs tíma til stefnu. Nú eru rösk tvö ár liðin, og útgjöldin hafa rösk- lega tvöfaldað áætlunina Og þeim hjá U.A er ekki orðið um sel En þeir, eins og flestir aðrir, hafa tröllatrú á Coppola og eru þess fullvissir að kvik- myndasöguleg mynd sé nú komin á klippiborðið Og það fáum við að sjá á næsta ári. því Tónabió stendur til boða að fá myndina glænýja Með aðal- hlutverkin fara Marlon Brando, Robert Duwall og Martin Sheen. 0 Það er upplagt að Ijúka þessari kynningu eins og hún byrjaði — á Bond-mynd. Ég slæ því botninn í þessi skrif með myndinni The Spy Who Loved Me. Sú mynd gengur nú víða um heim fyrir fullum húsum. Að venju er spæjarinn að bjarga veröldinni, og óþarft að fara nánar útí þá sálma Þá er og kvennastóðið frítt að venju, en með önnur hlutverk fara m.a Curt Jiirgens og Walter Gotell. Marvin Hamlisch sér um tónlistina og kvikmyndatakan er i höndum Claude Renoir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.