Morgunblaðið - 12.04.1979, Page 1
112 SÍÐUR
86. tbl. 66. árg.
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gleðilega páska
. * 1:8— ' k V * jPCLJ 11 3—iM' * TSN. m' j
* ' ^ iJk íT j n jr ]• ® * jfiJNÍL Kl I
:
Ljósm. Emilía.
Kampala fallin
og Amin flúinn
Kampala. 11. aprfl. Reuter. AP.
HERLIÐ Tanzaníumanna og
landflótta Ugandamanna tók í
dag Kampala, höfuðborg Uganda,
og Uganda-útvarpið tilkynnti, að
átta ára harðstjórn Idi Amins
forseta væri lokið. Utvarpið
sagði, að Amin væri „ekki lcngur
við völd“ og skoraði á þjóðina að
sameinast um að „útrýma þeim
örfáu morðingjum sem enn stæðu
uppi.“
Borgarbúar fögnuðu herliðinu
og notuðu tækifærið til þess að
rupla og ræna í verzlunum og á
heimilum embættismanna. Heim-
ildir í Dar Es Salaam herma, að
bráðabirgðastjórn verði mynduð
eftir einn til tvo daga.
Innrásarliðið mun halda sókn
sinni áfram til síðasta virkis
Amins, Jinja, sem er um 70 km
austur af Kampala. Préttir þaðan
segja frá særðum hermönnum sem
staulist um og öðrum hermönnum
sem fari um ruplandi og rænandi.
Óstaðfestar fréttir herma, að
Amin sjálfur sé flúinn austur til
Tororo nálægt landamærum
Kenya.
í tilkynningu sem var lesin í
útvarpinu frá Pyite Ojok ofursta,
yfirmanni Þjóðfrelsishers Uganda,
er skorað á allar „friðelskandi
þjóðir heims að styðja málstað
þjóðfrelsisins og fordæma fyrrver-
andi fasistastjórn". Öllum her-
mönnum Amins var skipað að
gefast upp og skorað var á íbúa
Kampala að halda rósemi sinni.
Útvarpið sagði, að yfirmaður
innrásarliðsins, Tito Okello of-
ursti, væri kominn til Kampala.
Seinna hringdi Amin í blað í
Kenya og sagði að það væri „fjar-
stæða“ að hann væri ekki lengur
við völd. Hann kvaðst vilja stað-
festa að hann væri enn við völd og
Uganda á valdi sínu.
frá Kampala," sagði
hefði 90%
„Ég tala
hann.
En dvalarstaður Amins var
mönnum ráðgáta og hann var
ýmist sagður í bát á leið yfir
Viktoríuvatn, í flugvél á leið til
flugstöðvar í Norður-Uganda, í bíl
á leið til súdönsku landamæranna
með súdanskt vegabréf eða í fang-
elsi í Kenya.
Ellefu framámenn
teknir af lífi í í ran
Teheran. 11. apríl. Reuter. AP.
ELLEFU úr hópi kunnustu stjórnmálamanna og herforingja á
dögum keisarastjórnarinnar í íran voru líflátnir í dag og þar með
hafa 93 fyrrverandi embættismenn verið teknir af lífi síðan í
febrúarbyltingunni.
Einn hinna líflátnu var Abbas
Alu Khalatbari fyrrum utanríkis-
ráðherra og framkvæmdastjóri
Cento, sem var ákærður fyrir að
leyfa starfsmönnum leynilögregl-
unnar Savak að starfa í sendiráð-
um írans erlendis.
Hann kvaðst
hafa verið neyddur til þess.
Leynilegir dómarar yfirheyrðu
hina líflátnu í Qasr-fangelsi í
Teheran þar sem um 1.300
pólitískir fangar eru í haldi.
Kvöldblöðin í Teheran birtu við-
bjóðslegar myndir af líkunum.
Annar úr hópi hinna líflátnu var
fyrrverandi yfirmaður Savak,
Hassan Pakravan hershöfðingi,
sem bar ábyrgð á handtöku trúar-
leiðtogans Khomeinis fyrir 15
árum. Hann var sagður hafa varið
stefnu keisarans unz yfir lauk.
Meðal annarra sem voru líflátn-
ir vorií síðasti yfirmaður Savak,
Nassir Moghadem hershöfðingi,
síðasti yfirmaður lífvarðar
keisarans, Ali Neshat hers-
höfðingi, fyrrverandi forseti neðri
deildar þingsins, yfirmaður
herdómstóls, sem dæmdi morð-
ingja Ali Razmara forsætisráð-
herra 1951, fyrrverandi borgar-
stjóri Teheran og fleiri.
Samtöl
flugmanna í
„kraftaœrka-
vélinni”
þurrkuð út
Washington, 11. apr. Reuter.
SEGULBANDSUPPTAKA með
samtölum í flugstjórnarklefa
TWA-vélarinnar, sem snerist
skyndilega tvívcgis í háloftun-
um og féll svo þúsundir feta í sl.
viku, hefur verið eyðilögð af
ásettu ráði að sögn talsmanns
flugumferðarmála í Bandaríkj-
unum. Talsmaðurinn, Dennis
Feldman, sagði að enginn vafi
léki á, að þetta hefði verið gert
viljandi.
Hann sagði, að allir í áhöfn
vélarinnar hefðu verið teknir til
yfirheyrslu til að leita skýringa
á því hver hefði þurrkað út
samtölin úr svarta kassanum.
Venja er að þurrka út samtöl
að flugi loknu ef allt hefur verið
með felldu en ekki ef eitthvað
ber út af. Sá úr áhöfninni sem
uppvís verður að þessu á á hættu
að missa vinnuleyfi sitt og verða
að gjalda 1 þús. dollara í sekt.
Vélin, sem er Boeing 727, var í
innanlandsflugi frá New York til
Minneapolis. Eftir að vélin sner-
ist í loftinu féll hún um átta km
niður en flugstjóranum tókst að
ná stjórn á vélinni og lenti hann
í Detroit. Aðeins þrír slösuðust
við þennan atburð sem varla á
sér nokkra hliðstæðu.