Morgunblaðið - 09.04.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
Alþingi í dag:
Hækkun söluskatts
- lækkun olíugjalds
ALÞINGI kemur saman til starfa í
dag eftir tæplega viku páskahlé.
Meðai mála sem á dagskrá verða í
vikunni eru m.a. stjórnarfrumvörp
um l'/2% hækkun söluskatts og
lækkun olíugjalds til fiskiskipa úr
5% í 2,5%, sem ekki vannst timi til
að afgreiða sem lög í fyrri viku.
Sáttafundir með
ASÍ og VSÍ og
BSRB og ríkinu
SÁTTAFUNDIR verða í kjaradeil-
um Alþýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambandsins og
BSRB og ríkisins í dag, en síðdegis
í gær höfðu ekki verið boðaðir nýir
sáttafundir í farmannadeilunni,
flugmannadeilunni eða með sjó-
mönnum og útgerðarmönnum
fyrir vestan.
Banaslys á bif-
hjóli á Akureyri
Akureyri, 8. apríl.
BANASLYS varð á mótum
Byggðavegar og Ilamarsstígs
síðdegis á föstudaginn langa.
Fimmtán ára piltur á léttu bif-
hjóli, lenti þar í árekstri við
lítinn sendiferðabíl og beið þegar
bana að því er talið er.
Pilturinn kom sunnan Byggða-
veg og lenti á vinstra framhorni
bílsins sem ók vestur Hamarsstíg
en þarna er blindhorn.
Pilturinn hét Ragnar Ragnars-
son, fæddur 26. janúar 1965, og
átti heima í Skarðshlíð 40 F. Hann
var mjög efnilegur skákmaður og
iðkaði einnig orgelleik í tómstund-
um. Eldri bróðir hans fórst einnig
í bílslysi fyrir nokkrum árum.
Sv.P.
Veggskreyting áskólafyrir vangefin börn:
Fann „fjársjóð“
í Sundahöfninni
á ísafirði
„ÞÚ finnur alla vega engan fjársjóð í þessari för,“
var það sem m.a. var sagt heima til að fá mig ofan af
því að reyna búninginn, en annað varð nú upp á
teningnum,“ sagði Jón Grímsson sjómaður, er
blaðamaður Mbl. hitti hann, íklæddan froskmanna-
búningi, með peningakassa í höndum við Sundahöfn-
ina á Isafirði á föstudaginn langa.
Jón er ísfirðingur og starfar
sem sjómaður í Bandaríkjunum.
Hann er hérlendis í mánaðar-
leyfi og ákvað að athuga, hvort
ekki væri allt í lagi með búning-
inn og brá sér því í höfnina
þennan tiltekna dag, þótt napurt
væri. „Eg er að hugsa um að
selja græjurnar, en vildi vera
viss um að þær væru í lagi.
Kassinn var hérna þó nokkuð úti
í höfn og búið að brjóta hann
upp. Þetta er áreiðanlega þýfi,
en þjófarnir hafa þó troðið
honum í plastpoka áður en þeir
losuðu sig við hann. — í honum?
Þetta virðist að mestu vera
pappírsrusl, en þó er hér ávísun,
sýnist mér.
Jón afhenti lögreglunni á
staðnum síðan kassann. í honum
reyndist vera ávísun að upphæð
kr. 179 þús. kr., skjöl o.fl. Ekki
hafði verið tilkynnt um neinn
þjófnað, en við nánari athugun
kom í ljós, að innihaldið var eign
Menntaskólans á Isafirði og að
brotist hafði verið inn í mötu-
neyti skólans eftir að páskaleyfi
hófst þar, eða aðfaranótt 2.
apfil, og kassinn, ásamt lausafé
að upphæð 20—30 þús. kr. num-
inn brott.
Lögreglan hafði upplýst málið
og náð innbrotsþjófunum, áður
en páskahelginni lauk, en þeir
hafa áreiðanlega ekki reiknað
með því, þegar þeir losuðu sig
við kassann, að nokkur ætti
erindi í höfnina á þessum árs-
tíma, og að þannig kæmist upp
um þá.
„Ef listamaðurinn
vill bjóða listaverk-
ið á lægra verði'*
„MÁLIÐ er óafgreitt, en mér finnst iistaverkið of dýrt og ég tel
að listamaðurinn eigi næsta leik ef hann vill ræða við mig og
bjóða listaverkið á lægra verði,“ sagði Ingvar Gíslason
menntamálaráðherra í samtali við Mbl. i gær þegar hann var
inntur eftir því hvernig stæði með afgreiðslu á veggskreytingu
þeirri sem Einar Hákonarson listamaður vann að beiðni
skólanefndar Lyngásskólans fyrir vangefin börn, Styrktarfélags
vangefinna og í samráði við arkitekt skólans sem er í byggingu í
Safamýri. Veggskreytingin er á 50 m2 vegg og var miðað við
kostnað samkvæmt heimild í lögum um að 2% af byggingarkostn-
aði megi veita í listskreytingu. Samkvæmt þeirri hugmynd sem
nú liggur fyrir er kostnaður áætlaður 10 millj. kr., 5 millj. kr. í
uppbyggingu listaverksins og 5 millj. kr. til listamannsins.
Morgunblaðið hafði einnig
samband við Einar Hákonarson:
„Ég hef verið að bíða eftir
ákvörðun ráðherrans, en ég get
ekki séð annað en að það sé verið
að bjóða upp á prútt jafnvel þótt
búið sé að slá upp veggnum sem
myndin átti að steypast í. Ég er
ekki að bjóða neitt, ég var beðinn
um að vinna þetta verk og í
samtali við starfsmenn mennta-
málaráðuneytisins fyrir páska
var mér tjáð að mér yrði til-
kynnt um ákvörðun í málinu. Við
það hefur setið og síðan hefur
ekkert verið rætt við mig.“
Sextán bandarískir
þingmenn í heimsókn
Sextán bandarískir öldunga-
deildarþingmenn og þingmenn
heimsóttu Island um síðustu helgi
á leið sinni á fund Alþjóða þing-
mannasambandsins sem haldinn
er í Ósló um þessar mundir. Komu
bandarísku þingmennirnir hingað
sl. föstudag og fóru síðdegis á
laugardag. M.a. skoðuðu þeir stöð
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli, heimsóttu Reykjavík og
nágrenni og heilsuðu upp á þing-
menn í Alþingishúsinu.
— í kassanum? í honum virðist að mestu vera pappírsrusl, en þó er
hér ávisun, sýnist mér, sagði Jón, er hann kikti ofan í kassann.
Ljósm. Mbl. Friða Proppé.
Frá fundinum i sjávarútvegsráðuneytinu í gær, en hann sátu m.a. starfsmenn ráðuneytisins.
fiskifræðingar. fulltrúar sjómanna. útgerðarmanna og fiskvinnsiunnar. Ljósm. Kristján
Lýkur vetrarvertíð
bátanna í apríllok?
Rætt um framhald þorskveiða á fundi hagsmunaaðilja
Á FUNDI hagsmunaaðilja í sjáv-
arútvegi með sjávarútvegsráð-
herra í gær komu fram hugmynd-
ir útgerðarmanna og sjómanna
um að vetrarvertíð bátaflotans
standi út aprílmánuð. Samkvæmt
þeim reglum, sem miðað hefur
verið við, hefði vertíð átt að ljúka
26. apríl þar sem afli fyrstu þrjá
mánuði ársins var svo mikill sem
raun bar vitni. Ýmsar hugmynd-
ir komu fram á fundinum og má
nefna, að uppi voru raddir um
fækkun neta og takmörkun
róðra. Engar ákvarðanir hafa
verið teknar um framhald þorsk-
veiðanna, en sjávarútvegsráð-
herra mun ræða þessi mál á fundi
rikisstjórnar í dag eða á morgun.
Þorskaflinn fyrstu þrjá mánuði
ársins var liðlega 170 þúsund
lestir og af þeim afla komu bátar
að landi með rúmlega 96 þúsund
lestir, en togararnir 74 þúsund
lestir. Heildarbotnfiskaflinn
fyrstu þrjá mánuði ársins varð
rúmlega 218 þúsund lestir. Fyrstu
þrjá mánuði síðasta árs varð
þorskaflinn rúmlega 124 þúsund
lestir, þannig að aukning í þorsk-
afla á milli ára er rúmlega 45
þúsund tonn.
Á fundinum með sjávarútvegs-
ráðherra í gær voru fulltrúar
sjómanna, útgerðarmanna, fisk-
vinnslunnar og fiskifræðingar,
auk starfsmanna í sjávarútvegs-
ráðuneytinu. Eins og fram kom í
ársbyrjun hafa fiskifræðingar
lagt til að þorskafli fari ekki yfir
300 þúsund lestir í ár, en nú er
þegar búið að veiða meira en
helming þess afla. Á hádegi í gær
lauk viku þorskveiðibanni báta-
flotans.
Viðskiptaráðherra í samtali frá London:
„Búast má við lækk-
andi bensínverði
er líður á árið“
„VIÐ hefjum samningaviðræður í
fyrramálið við British National Oil
Corporation um kaup á 100 þúsund
tonnum af gasolíu,“ sagði Tómas
Árnason viðskiptaráðherra í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi þar sem
hann var staddur í London. „Það
verður að öllum líkindum samið um
verðgrundvöll sem verður ckki einj
sveiflukenndur og Rotterdamverð
ið, en verðið verður væntanlegí
ekki lægra en það sem nú gildir i
Rotterdammarkaði. Það er þi
lægra enþað sem við erum að seljí
heima á íslandi nú. því þar er un
dýrari birgðir að ræða. Ef þettí
verð helst áfram má því búast vi(
að bensín lækki eitthvað í verði ei
líður á árið.
íslendingar nota nú um 250 þús
tonn af gasolíu á ári, en miðað er vii
að olían frá British National komi ti
landsins eftir mitt ár, en þá verðí
ekki aðrir samningar í gildi um kau]
á gasolíu. I íslenzku samninganefnd
inni eru forstjórar olíufélaganna
ráðuneytisstjóri og Jóhannes Norda
bankastjóri, en samkvæmt upplýs
ingum Tómasar má reikna með ai
samningar verði undirritaðir ;
fimmtudag eða föstudag.