Morgunblaðið - 24.02.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981
11
sömum gefa það til kynna að
meirihluti íbúa Norður-Noregs
er því fylgjandi að orkuverið
rísi.
„Samarnir sem eru í hungur-
verkfallinu og samakonurnar
sem settust að hjáforsætisráð-
herranum eru á engan hátt
fulltrúar sama. Samar hafa
enga samúð með aðgerðum
þeirra gegn ríkisstjórninni,"
sagði Klement J. Haetta for-
maður Kautokeino-deildar
Landssamtaka sama.
„íbúar samasvæðanna, sér-
staklega nyrst í Noregi, eru
mótfallnir aðgerðum mótmæl-
endanna. Aðgerðir þeirra er í
andstöðu við venjur sama og
eru mikil hætta fyrir menning-
ararfleifð þeirra," segir í sam-
íska blaðinu Sagat.
„Mótmælendurnir eru ekkert
nema verkfæri í höndum
stjórnmálamanna. Þeir gera
sér ekki sjálfir grein fyrir
afleiðingum gerða sinna. Þeim
er bara fengið í hendur hlut-
verk sem þeim er ætlað að
leika en það hlutverk þjónar
alls ekki hagsmunum sarna,"
segir blaðið Lofotenposten sem
er virt og óháð blað í Noregi.
Stjórnin vill semja,
samar neita
En hvað sem því líður er
meirihluti fulltrúa samasam-
takanna á móti virkjun Altaár-
innar. í sl. viku sátu þeir á
tveggja daga fundi með full-
trúum ríkisstjórnarinnar.
Stjórnin lagði þar fram drög að
samkomulagi sem gera ráð
fyrir að sömum verði veitt
ýmis réttindi og að lífsskilyrði
þeirra verði bætt. Á hinn
bóginn kvaðst ríkisstjórnin
ekki geta gengið að því að hætt
yrði við virkjunarframkvæmd-
irnar, slíkt kæmi ekki til
greina. Samarnir kváðust hins
vegar ekki gera neina samn-
inga nema hætt yrði við fram-
kvæmdirnar. Ekkert dró því
saman með deiluaðilum og fóru
samar burtu reiðir. Á hóteli því
sem þeir bjuggu á í þorpinu
Kautokeino í samnefndu hér-
aði, en þar voru fundirnir
haldnir, bjuggu og tveir lög-
regluþjónar, og bílstjórar þeir
sem óku sömunum til og frá
fundarstaðnum voru einnig
lögregluþjónar. Sömum fannst
þetta vera frekleg móðgun en
lögreglan kveður þessa uppá-
komu vera hreina tilviljun.
Heimildir: AP og
Jan Erik Lauré.
Eflum framfar-
ir til fatlaðra!
„EFLUM framfarir fatlaðra" er
kjörorð Bandalags kvenna í Reykja-
vík í hinni miklu söfnun fyrir
„taugagreini" sem Bandalagið
gengst nú fyrir, og kynnt hefur verið
í Mbl. í gær. Gíróreikningur söfnun-
arinnar er 500600-1 og má koma
framlögum inn á hann. Myndin er af
merki söfnunarinnar, sem Þröstur
Magnússon hefur teiknað og Auglýs-
ingaþjónusta Kristínar útfært.
Merkið sýnir tíu hendur, sem mynda
hring: ein höndin sker sig úr að því
leyti að litur hennar er annar en
hinna, og byggir það á þeirri stað-
reynd að 10. hver maður á íslandi er
fatiaður.
ÚTSÖLUSTAÐIR: Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæsibæ
Pomponent far Stereo ■ •
■ kilometrum a undan
>egar kemur aö hljóm§æðum
hafa PIONEER bíltækin þá yfirburði,
að við getum fullyrt að þau eru mörgi
kflómetrum á undan öðrum bíltækjum.
rimi|timrnl 1‘iirHlfmt
HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
LAUGAVEG 66 SIMI 25999
fÓBURIÐJAN
0LAFSDAI
Dalasýslu
ST0R0LFSVALLARB
Hvolhreppi.
Sími 99-5163.
FLATEY
Hér eru einfaldar staðrey ndir
um grasköggla.
Graskögglar bjóðast nú á mjög Graskögglar eru undanþegnir
hagstæðu verði: kr. 1.950 tonnið kjarnfóðursskömmtun.
við verksmiðju.
Það er kraftur í kögglunum
— íslenska kjarnfóðrinu
Bændur, berið saman fóðurgildi
og verð á innlendu og erlendu
kjarnfóðri.
Við tökum þátt í flutningskostn-
aði þegar vegalengd frá verk-
smiðju til kaupanda er yfir 50 km.
Leitið nánari upplýsinga g
í verksmiðjunum.
Mýrarhreppi. Sími Neðri-Brunná.
Simi 97-8592.
I f! iJf £jn 11 l! fli at ifi i Sfil
______i________________________