Morgunblaðið - 24.02.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.02.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981 27 Silfurlið Vals vann KR eftir framlengingu FRAMLENGINGU þurfti til að knýja fram úrslit í leik KR ok Vals í Úrvalsdeildinni í körfu- knattleik i Laugardalshöll á sunnudauskvöldið. Svo fóru leik- ar að Valur hafði sigur, 79:77, en sá sigur hékk sannarlega á blá- þræði. Valsmenn hrepptu annað sætið i mótinu, en þessi leikur breytti engu þar um, silfrið var þegar tryggt. Það voru sárafáir áhorfendur, sem lögðu leið sína í Höllina á sunnudaginn, en þeir fáu sem létu sjá sig fengu að sjá allgóðan körfuknattleik og spennandi mín- útur í lok leiksins. KR hafði yfir lengst af fyrri hálfleiknum, en munurinn var aldrei mikill, oftast 2—6 stig. í leikhléi leiddi KR 42:38. í síðari hálfleiknum komst Valur fljótlega yfir, en KR-ingar gáfu sig hvergi og fylgdu Vals- mönnum eins og skugginn. Síðustu mínúturnar skiptust liðin á um forystuna og þegar upp var staðið í leikslok var jafnt, 71:71. Framlenging var því nauðsynleg og nú höfðu KR-ingar frumkvæðið og Jón Sigurðsson skoraði grimmt. Staðan var 77:77 þegar 11 sekúnd- ur voru eftir og Gunnar Jóakims- son fékk 2 bónusvíti. Honum tókst ekki að skora, Valsmenn náðu knettinum og brunuðu upp. Brad Miley reyndi skot, en hitti ekki. Torfi Magnússon náði frákastinu og um leið og knötturinn lenti á körfuhringnum glumdi bjallan. • Jón Sigurðsson var að venju drífandi kraftur i liði KR. Boltinn fór rétta leið í netið og sigur Valsmanna var staðreynd. Ágúst Líndal átti sérlega góðan dag með KR-ingum að þessu sinni og hafði skorað 20 stig, flest með fallegum langskotum, er hann þurfti að víkja af velli með 5 villur undir lok leiksins. Jón Sigurðsson var drjúgur allan leikinn og þá sérstaklega síðari hlutann og í framlengingunni. Garðar var seinn í gang, en mjög góður þegar hann var orðinn heitur. Meðal leikmanna KR að þessu sinni var Birgir Mikaelsson, aðeins 15 ára gamall. Hann er á síðara ári í 4. flokki og mun vera yngsti leik- maðurinn, sem leikið hefur í úrvalsdeildinni, piltur sem á framtíðina fyrir sér. Brad Miley var beztur Vals- manna í leiknum og auk stiganna 22, sem hann skoraði, var hann sérlega grimmur í vörninni og þau voru ekki mörg fráköstin, sem hann missti. Ríkharður átti ágæt- an leik og Torfi í framlengingunni. Stig KR: Jón Sigurðsson 25, Ágúst Líndal 20, Garðar Jóhann- esson 18, Keith Yow 10, Gunnar Jóakimsson 4. Stig Vals: Brad Miley 22, Rík- harður Hrafnkelsson 18, Pétur Guðmundsson 12, Torfi Magnús- son 10, Kristján Ágústsson 6, Jón Steingrímsson 6, Jóhannes Magn- ússon 5. Leikinn dæmdu Kristbjörn Al- bertsson og Sigurður V. Hall- dórsson mjög vel. Með þessum leik er íslandsmót- inu í körfuknattleik lokið í ár. Mótið fór vel af stað og menn gerðu sér miklar vonir um fullar hallir af áhorfendum í vetur. Svo varð ekki, einstefna Njarðvíkinga gerði það að. verkum að lítil spenna var í mótinu. Fleira hefur komið til og staðreyndin er sú að nú skröltir víða í peningakössum körfuknattleiksdeilda. Forystu- mönnum íþróttarinnar er óhætt að setjast niður og meta stöðuna upp á nýtt. Ef þeir ætla að viðhalda þeim vinsældum, sem körfuboltinn náði fyrir 3—4 árum, verður á ný að lyfta Grettistaki. áij Islandsmeistaratit- illinn nánast í höfn - hjá FH eftir 12—10 sigur gegn Fram FH ALLT AÐ því tryggði sér íslandsmeistaratitilinn i hand- knattleik kvenna á laugardag- inn, er liðið sigraði Fram 12—10 i miklum hörkuleik i Hafnarfirði. Staðan í hálfleik var 7—6 fyrir Fram. Með þessum sigri, stefnir ekki i annað en sigur FH á mótinu og þykir það saga til næsta bæjar, að Fram skyldi ekki vinna, en liðið hefur nánast verið ósigrandi i islenskum kvenna- handknattleik i mörg ár. FH hóf leikinn af miklum krafti, Björg Gilsdóttir og Mar- grét Theodórsdóttir skoruðu tvö fyrstu mörkin og FH virtist ætla að kafsigla Fram. Úr því varð þó ekkert og Fram hafði jafnað áður en menn vissu af. Eftir það var leikurinn í járnum. Fram náði reyndar tveggja marka forystu KR: Ágúst Lindal 8 Jón Sigurðsson 8 Gunnar Jóakimsson 6 Garðar Jóhannesson 7 Ásgeir Hallgrímsson 6 Birgir Guðbjörnsson 4 Birgir Mikaclsson 4 Valur: Rikharður Hrafnkelsson 7 Pétur Guðmundsson 6 Kristján Ágústsson 6 Torfi Magnússon 7 Jón Steingrimsson 6 Jóhannes Magnússon 6 • Margrét Theodórsdóttir skor- aði mikilvæg mörk fyrir FH. seint í hálfleiknum, en FH minnk- aði muninn niður í eitt mark áður en flautað var til leikhlés. Lið UMFN: Guðsteinn Ingimarsson 5 Gunnar Þorvarðarson 7 Jónas Jóhannesson 7 Jón Viðar Matthiasson 5 Þorsteinn Bjarnason 5 Valur Ingimundarson 6 Árni Lárusson 5 Júlíus Valgeirsson 5 Brynjar Sigmundsson 4 Lið Ármanns: Guðmundur Sigurðsson 4 Kristján Rafnsson 6 Valdemar Guðlaugsson 6 Ilörður Arnarson 4 Hanncs Iljálmarsson 4 Atli Arason 4 Bogi Franzson 3 Jón Björgvinsson 5 FH hóf síðari hálfleikinn eins og þann fyrri, þ.e.a.s. með stór- sókn. Réðu Fram-stúlkurnar lítt við FH-inga framan af og Hafnar- fjarðarliðið skoraði þrjú fyrstu mörkin. FH breytti stöðunni úr 6—7 í 9—7 og fékk síðan kjörið tækifæri til að auka forystuna upp í þrjú mörk. FH fékk þá vítakast, en Kolbrún í marki Fram varði glæsilega vítakast Margrétar. Og Fram skoraði tvö næstu mörk og allt var þar með komið á suðup- unkt, enda ekki langt til leiksloka. Margrét skoraði tvívegis fyrir FH, en Fram svaraði með einu, 11—10 fyrir Fram og aðeins örfáar mín- útur til leiksloka. Nokkrar sókn- arlotur fóru forgörðum hjá báðum liðum og áhorfendur stóðu á öndinni, en síðan inusiglaði Marg- rét sigurinn fyrir FH, með því að skora úr vítakasti þegar mínúta var eftir. Tíminn var of naumur, sigur FH var í höfn og sigur á íslandsmótinu að öllum líkindum. Margrét Theodórsdóttir bar nokkuð af öðrum FH-konum í sókn, en þar átti Björg einnig góða spretti. I vörn stóðu FH-ingarnir hins vegar hver öðrum betur, Hildur, Katrín, Kristjana, Björg og Sólveig. Einnig ung kona að nafni Kristín Pétursdóttir. Varn- arleikurinn var sterka hlið Fram í leiknum, Sigrún, Oddný og Guð- ríður voru þar fremstar með Kolbrúnu í markinu. í sókninni var það helst Oddný sem tók spretti. Mörk FH: Margrét Theodórs- dóttir 7, 3 víti, Björg Gilsdóttir 2, Katrín Danivalsdóttir, Sólveig Birgisdóttir og Kristjana Aradótt- ir eitt hver. Mörk Fram: Guðríður Guðjóns- dóttir 4, 1 víti, Oddný Sigsteins- dóttir 3, Sigrún Blomsterberg 2 og Margrét Blöndal eitt mark. —gg. Elnkunnagjöfin KR meistari í kvennakörfu KR VARÐ Íslandsmeistarí í meistarafiokki kvenna i körfu- knattleik I ár. Liðið vann ÍR með 42 stigum gegn 36 i Laug- ardalshöll á sunnudagskvöld og tryggði þar með sigurinn i mótinu. KR hlaut 10 stig, ÍS hlaut 8 stig og ÍR-stúlkurnar 6 stig. Ef ÍR hefði unnið þennan leik hefðu öll liðin þrjú orðið jöfn að stigum og staðan þá i raun orðið hin sama og i haust er fyrsti leikur íslandsmótsins fór fram. Framan af leiknum á sunnudag leit út fyrir ÍR-sigur, en KR-stúIkunum óx ásmegin er leið á leikinn og þó svo, að ÍR-Iiðið sótti í sig veðrið. í lokin tókst þeim ekki að koma í veg fyrir sigur KR-stúIknanna. Slakur leikur hja Þór og Ármanni ÞAÐ var engum blöðum um það að fletta að leikur Þórs og Ármanns i 2. deild íslandsmóts- ins i handknattleik. var leikur þeirra liöa sem verma botninn. Leiknum lauk með sigri Ár- manns 23 — 22, eftir að staðan hafði verið 13-13 i hálfleik. Til að byxja með var jafnt á með liðunum en Ármenningarn- ir leiddu þó alltaf. Þegar líða tók á hálfleikinn náðu Ármenningar smám saman fjögurra marka forskoti, en undir iok hálfleiks- ins náðu Þórsararnir að jafna og var staðan eins og áður sagði 13—13 í hálfleik. Um seinni hálfleikinn er harla lítið að segja hann var aldrei verulega spenn- andi þó svo mesti markamunur- inn hafi verið 2 mörk undir lokin, en leiknum lauk með sigri Ármanns 23—22. í heild var leikurinn fremur slakur og bauð hann uppá harla lítið af betra taginu. Flestir leikmenn héldu sig á plani með- almennskunnar og hreyfðu sig lítt þaðan. Mörk Ármanns: Friðrik Jó- hannsson 6, Óskar Ásmundsson 5 (2v), Einar Eiríksson 3, Vilberg Sigtryggsson 3, Björn Jóhanns- son 4, og Kristinn Ingólfsson 2. Mörk Þórs: Sigurður Sigurðs- son 7, Árni Stefánsson 5, Sig- tryggur Guðlaugsson 4, Árni Gunnarsson 3, Benedikt Guð- mundsson 2 og Ólafur Jensson 1. - SOR Mikil bar- áttaá Mullers- mótinu RAFN Jónsson sigraði í karla- flokki á Mullers- mótinu i skíða- göngu, sem haldið var við Hveradali um helgina. Flokkur- inn gekk 14 km og var timi Rafns 38,55 minútur. Annar varð Halldór Matthiasson. Guð- björg Haraldsdóttir sigraði i kvennaflokki og Garðar Sig- urðsson i unglingaflokki. en báðir flokkarnir gengu 6 km. Febrúarmót í göngu í Hlíðarfjalli UM HELGINA fór fram í Hlíð- arfjalli við Akureyri Febrúar- mót i skíðagöngu. Það er óhætt að segja að þetta mót hafi verið einskonar frumraun þvi það hefur ekki verið haldið göngu- mót sem eingöngu er ætlað fyrir Akureyringa i mörg ár. Þátttaka var fremur dræm og vantaði alveg kvenþjóðina. Úr- slit urðu sem hér segir: 10 ára, gengnir 5 km: Muggur Matthíasson 33,29 mín. 11 ára. gengnir 5 km: Ásgeir Guðmundsson 33,50 mín. Jón S. Jónsson 36,10 mín. 13—14 ára. gengnir 5 km: Jón Stefánsson 22,16 mín. Gunnar Kristjánss. 24,13 mín. Jón Þ. Aðalst. 28,14 mín. 15—16 ára. gengnir 5 km: Hilmar Aðalst. 22,58 mín. Ágúst Birgiss. 24,16 mín. Elvar Aðalst. 26,15 mín. Kjartan Friðjónss. 28,18 mín. Þór Einarsson 30,09 mín. 20 ára og eldri, gengnir 10 km: Ingþór Eiríkss. 39,44 mín. Haukur Eiríksson (16 ára) 41,42 mín. - SOR H ll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.