Morgunblaðið - 24.02.1981, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981
+
Systir mín, SIGRÍÐUR GUOMUNDSDÓTTIR,
Rénargötu 22,
lezt i Borgarspítalanum sunnudaginn 22. febrúar.
Jónas Guömundsson.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
EINAR DAGBJARTSSON,
Ásgaröi,
Grindavík,
andaöist laugardaginn 21. febrúar.
Laufey Guöjónsdóttir og börn.
Móöir okkar,
GUDBJÓRG ADALSTEINSDÓTTIR,
Sólheimum 26,
andaöist 21. febrúar.
Börn hinnar látnu.
+
Faöir okkar og tengdafaöir,
KRISTJÁN C. JÓNSSON,
lést aö Hrafnistu aöfaranótt sunnudagsins 22. febrúar.
Guömundur Steinsson,
Kristbjörg Kjeld,
Jóhanna I. Birnir,
Einar Birnir.
+
Móöir okkar og stjúpmóöir,
ARNBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR,
lést á öldrunardeild Landspítalans 22. febrúar.
Gunnar Ólafsson,
örn Ólafsson,
Kristín Jónsdóttir,
Hafliöi Jónsson.
+
Hjartkær eiginmaöur minn, faöir, sonur, tengdasonur, bróöir og
mágur,
INGÓLFUR S. RAGNARSSON,
yfirvélstjóri,
Hlíöarvegi 18, Kópavogi,
andaöist 17. þessa mánaöar. Jaröarförin auglýst síöar.
Fyrir hönd vandamanna. Li|ja Kristjánsdóttir
og börnin.
Minning:
Hjaltlína Margrét
Guðjónsdóttir frá Núpi
Miðvikudaginn 4. febr. sl. fór
fram í Fossvogskirkju minningar-
athöfn um Hjaltlínu M. Guðjóns-
dóttur fyrrv. prófasts- og skóla-
stjórafrú að Núpi í Dýrafirði, þar
sem séra Eiríkur J. Eiríksson
prófastur á Þingvöllum flutti ítar-
lega og eftirminnilega ræðu, enda
mátti hann trútt um tala sem
tvíþættur eftirmaður séra Sig-
tryggs Guðlaugssonar í embætti á
sínum tíma, og um alllanga hríð.
Útför frú Hjaltlínu átti sér hins
vegar stað sl. laugardag frá Sæ-
bólskirkju á Ingjaldssandi að ■
viðstöddu fjölmenni. Þar í kirkju-
garðinum liggja jarðneskar leifar
frú Hjaltlínu við hlið manns
hennar og ber hátt í faðmi hafs og
heiðar.
Það fer vart hjá því, að við
andlát frú Hjaltlínu hvarfli hugur
margra gamalla nemenda Núps-
skólans til hennar daga á þeim
rómaða stað, svo virðulegan og
vandasaman sess, sem hún skipaði
þar um áratuga skeið.
Því miður þekki ég ekki svo
mikið til uppruna og ættar frú
Hjaltlínu, að ég megi mikið með
fara, en fædd var hún að Brekku á
Ingjaidssandi 4. júlí 1890, og náði
hún því fullum níræðisaldri.
Móðir hennar var Rakel Sigurð-
ardóttir, en faðir Guðjón bóndi og
formaður Arnórsson bónda á
Höfðaströnd í Jökulfjörðum
Hannessonar prests á Stað í
Grunnavík Arnórssonar prófasts í
Vatnsfirði Jónssonar.
Utanaf Sandi kom stúlkan í
Núpsskóla átján ára gömul og
gerðist einn af fyrstu nemendum
séra Sigtryggs, sem áratug síðar
varð eiginmaður hennar og lífs-
förunautur alla hans daga síðan,
unz hann lézt árið 1956, 94 ára að
aldri, eftir einstætt og sögulegt
ævistarf, sem ekki þarf að lýsa
fyrir a.m.k. miðaldra og eldri
landsmönnum.
Eg var einn af þeim „lukkunnar
pamfílum", sem náðu þvi að verða
nemendur Núpsskóla síðustu
skólastjórnarár séra Sigtryggs. Þá
kynntist ég að sjálfsögðu frú
Hjaltlínu, og e.t.v. betur en flestir
aðrir fyrir þá sök að njóta þess
heiðurs seinni veturinn minn að
vera titlaður „húsbóndi" í talsvert
fjölmennu embættismannakerfi
nemenda, sem sera Sigtryggur
skipaði jafnan í upphafi hvers
skólaárs. Samskiptin við þau
skólastjórahjónin urðu því nánari
en ella, og er skemmst af þeirri
samstöðu og samvinnu að segja,
að fátt í lífinu hefur orðið mér
hugstæðara og þakkarverðara en
námsdvölin á Núpi nú fyrir meira
en hálfri öld, í mótandi umönnun
skólastjórahjónanna og annarra
ógleymanlegra kennara.
Ekki gat það farið framhjá
neinum, hverjum kostum frú
Hjaltlína var búin sem húsmóðir í
stórum heimavistarskóla. Sjálf
var hún kennari að menntnn og
+
Utför fööur okkar,
AÐALSTEINS ÓSKARS GUDMUNDSSONAR,
rafvirkjameistara,
fer fram frá Fossvogskirkju í dag þriöjudaginn 24. febrúar kl.
16.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er vinsamlega bent á Hrafnistu
b*S. Jóhanna Aöalsteinsdóttir,
Halldór Aóalsteinsson.
+
Jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
REYNIS SNJÓLFSSONAR,
Njaröargötu 37,
fer fram frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 25. febrúar kl. 10.30.
/
Jónína Guöjónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Útför fööur okkar og tengdafööur,
KRISTÓFERS KRISTÓFERSSONAR,
Leifsgötu 8, Reykjavík,
veröur gerð frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 26. febrúar kl. 1.30.
Börn og tengdabörn.
Útför móöur minnar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, PÁLÍNU SIGURÐARDÓTTUR, Garöaflöt 1, Garöabæ, veröur gerö frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 25. þ.m. kl. 13.30. Sigurdís Erlendsdóttir, Karl Ó. Guðlaugsson, Guölaugur K. Karlsson, Elísabet Sigvaldadóttír, Erlendur Karlsson, Gísli K. Karlsson, Bylgja Helgadóttir, Linda B. Karlsdóttir og barnabarnabörn. + Minningarathöfn um GUDLAUGU J. SVEINSDÓTTUR fré Hvilft veröur haldin í Dómkirkjunni miövikudaginn 25. febrúar kl. 15. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Samband íslenskra kristniboösfélaga. Fyrir hönd vandamanna, María Finnsdóttir
+ + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
Eiginmaöur minn og faöir okkar, MARGRÉT KETILSDÓTTIR,
GUDMUNDUR RAGNARSSON, Mévahlíö 45,
Espigeröi 4, sem andaöist 15. febrúar, veröur jarösett frá Fossvogskirkju,
lést aö Landakotsspítala laugardaginn 21., febrúar. Jaröarförin miövikudaginn 25. febrúar kl. 3 e.h.
auglýst síöar. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Hjartavernd.
Hólmfríöur Carlsson.
Herbert Guömundsson,
Sólveig Guömundsdóttir, Ástbjörg S. Gunnarsdóttir, Jóhann T. Ingjaldsson,
Siguröur Guömundsson, Siguröur K. Gunnarsson, Sigríöur Th. Guömundsdóttir
Ragnar Guömundsson. börn og barnabörn.
kenndi einkum handavinnu
stúlkna við skólann. Var hún
frábærlega hæf á því sviði, enda
aflaði hún sér menntunar þar að
lútandi, bæði á ísafirði og í
Reykjavík. Lét frú Hjaltlína jafn-
an vandað handbragð sitja í fyrir-
rúmi, en hirti minna um afköst.
Hún var ein af þeim, sem ekki þola
á neinu sviði, að höndum sé til
kastað í hugsunar- og hirðuleysi.
Bar allt í kringum hana vott
þrifnaðar, nákvæmni og snyrti-
mennsku, og var hún að því leyti
mikil fyrirmynd ungu fólki.
Frú Hjaltlína tók mikinn þátt í
skólalífinu og var jafnan nær-
stödd, hvenær sem eitthvað var að
gerast, hvort sem var til hryggðar
eða gleði. Hún var vel máli farin
og steig jafnvel í stólinn, ef því var
að skipta, og einkum munaði um
rödd hennar, þegar lagið var tekið,
og það var blessunarlaga oft á
Núpi, seint og snemma, svo að
segja á hverjum degi. Ég hefi oft
óskað þess síðan, að í skólum
landsins ríkti, þótt ekki væri nema
brot þeirrar einlægu, lyftandi og
lífgefandi sönggleði, sem við urð-
um aðnjótandi á Núpi. Ég trúi því,
að þá væri vandi þjóðlífsins minni;
vandamálin raunveruleg og
ímynduð færri. Nú híma svo víða
sorgmædd, vonsvikin og vansæl
börn í söngvana, daufum og dauð-
um uppeldisstofnunum, og af því
súpum við seyðið; lifum harmsögu
þyngri en tárum taki ...
Á Núpi var tíminn vel notaður
og gjarna slegnar tvær eða fleiri
flugur í sama höggi, ef við varð
komið. I þessari andrá liggur t.d.
nærri að nefna það, að í handa-
vinnutímum stúlknanna var það
ekki óalgengt, að blessaður skóla-
stjórinn, sem var óþreytandi söng-
stjóri og sjálfur tónskáld, birtist
hljóðlega í dyragættinni með
nótnahefti undir hendinni og
spyrði varfærnislega og af mikilli
hæversku: „Hjaltlína, má ég ...?“
Vildi hann þá komast inn til
raddæfinga, og fékk jafnan, en
misvel líkaði þó stúlkunum þetta,
eftir því hversu söngvanar þær
voru eða áhugasamar um handa-
verk sitt, og fyrir kom, að hann
fékk hógværa áminningu kennar-
ans um að tefja samt ekki of
mikið!
Eitt var það m.a. sem mér
gleymist ekki í sambandi við frú
Hjaltlínu, en það var, hversu
umhyggjusöm hún var gagnvart
nemendum, þegar veikindi bar að
höndum. Fylgdist hún þá af ná-
kvæmni með lífi og líðan sjúkl-
ingsins og sparaði ekkert, sem
verða mátti til vellíðunar og
heilsu, hvorki til orðs né æðis.
Mega ekki svo fáir muna frúna í
þakklátum huga frá slíkum stund-
um.
Hinn frægi og fagri unaðsreitur
„Skrúður" og séra Sigtryggur juku
hvor á annars heiður og hrós. Sízt
vil ég draga úr réttmæti þess. En
það ætla ég þó, að hlutur frú
Hjaltlínu í vexti og viðgangi
Skrúðs um áratuga skeið, hafi ails
ekki verið metinn sem skyldi, og
þakkir og viðurkenning þeirra er
nutu verið eftir því. Hún var þó
sæmd riddarakrossi Hinnar ís-
lenzku fálkaorðu. Ég vil leyfa mér
að draga í efa, að nokkur íslend-
ingur hafi af meiri natni og alúð
varið fleiri stundum til þess að
búa gróðurreit „sólskært sumar
undir" en frú Hjaltlína.
Frú Hjaltlína var prýðilega gef-
in og menntuð kona, sem myndaði