Morgunblaðið - 09.03.1982, Blaðsíða 44
\
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1982
25
Rússar hrepptu sinn fyrsta heimsmeistaratitil í handknattleik:
Lokastaðan
LOKASTAÐAN í
heimsmejatarakeppninni
varö þessi:
1. Rússland
2. Júgóslavía
3. Pólland
4. Danmörk
5. Rúmenía
6. A-Þýskaland
7. V-Þýskaland
8. Spánn
9. Ungverjaland
10. Tékkóslóvakía
11. Svíþjóó
12. Sviss
Tvö lió skáru sig
nokkuð úr í keppninni
Þróttur íslandsmeistari í blaki karla:
Lítill meistarabragur
á liði Þróttar er þeir
tryggðu sér titilinn
I.lTILL meistarabragur var á Þrótt-
urum þegar þeir tryggdu sér ís-
landsmcistaratitilinn meó sigri yfir
IIMSE um hclgina. Fyrstu hrinuna
unnu Þróttarar 15—10 en töpuðu
þeirri næstu 15—10. Þriðju hrinuna
vann Þróttur 15—9 og þá síðustu
15—11.
ÍS sigraði UMFL með þremur
hrinum gegn engri í fremur dauf-
um ieik á sunnudaginn. Fyrstu
hrinuna unnu þeir létt 15—6 og
bar þá mest á Steingrími Sigfús-
syni hjá IS sem smassaði mjög vel
og áttu Laugvetningar ekkert svar
við góðum leik hans fyrr en í ann-
arri hrinu þegar Hreinn Þorkels-
son kom inná hjá þeim og sýndi að
hann hefur ekki alveg gleymt
hvernig á að blokka. En þrátt fyrir
góöan leik Hreins þá vann ÍS aðra
hrinuna 15—8 og þá þriðju 16—14.
Laugdælir léku við UMSE á
laugardaginn og sigruðu Eyfirð-
ingarnir með þremur hrinum gegn
einni (15—19, 15—6, 9—15 og
15-4)
Víkingur og Þróttur léku á
föstudagskvöldið og áttu Þróttar-
ar í hinu mesta basli með Víking
eins og svo oft áður í vetur. Fyrstu
hrinuna unnu Víkingar 15—8eftir
að Þróttur hafði verið yfir 8—4. í
annari hrinu snérist dæmið við og
unnu Þróttarar 15—13 eftir að
hafa verið undir 7—13. í næstu
tveimur hrinum var allur kraftur
úr Víkingum og vann Þróttur þær
15-9 og 15-3.
Einn leikur var í annari deild
karla um helgina þar sigraði HK
lið Samhygðar með þremur hrin-
um gegn engri (15—9, 15—6 og
15-6).
ÍS-stúlkurnar urðu
íslandsmeistarar
í blaki um helgina
ÍS-stúlkurnar tryggðu sér ís-
landsmeistaratililinn með því að
sigra UBK á fóstudaginn með þrem-
ur hrinum gegn einni í fremur dauf-
um leik. IS lék mjög vel í fyrstu og
annarri hrinu og unnu þær 15—9 og
15—6, en í þeirri þriðju tókst
Rreiðabliki að sigra 15—9. Fjórðu
og síðustu hrinuna unnn stúdínur
15—9 án mikillar fyrirhafnar.
A sunnudaginn léku þessi lið
síðan aftur og nú veittu Kópa-
vogsstelpurnar meira viðnám og
var mikil barátta í þeim. Fyrstu
hrinuna unnu Breiðablik 15—9 og
var þá búið að vera mjög jafnt þar
til staðan var 10—9 fyrir UBK.
Aðra hrinuna vann IS örugglega
15—6, og þá næstu 15—9. Fjórðu
hrinuna vann svo UBK léttilega
15—3. Urslitahrinan varð mjög
spennandi þó að ekki liti út fyrir
það í byrjun. Breiðablik komst I
10—2 og allt útlit fyrir að þær
færu með sigur af hólmi. En af
miklu harðfylgi tókst ÍS að jafna
10—10 og komast yfir 13—11,
14— 13 og 15—14 en ekki tókst
þeim að fá þetta eina stig sem
vantaði og Breiðablik jafnar
15— 15 og fékk síðustu tvö stigin
og sigraði 17—15 og leikinn 3—2.
í þessum tveimur leikjum bar
mest á Auði Aðalsteinsdóttur hjá
ÍS og einnig átti Þóra Andrésdótt-
ir góðan leik, þó einkum i fyrri
leiknum. Hjá UBK var Þórunn
Guðmundsdóttir best. SUS.
léku léttan og skemmtilegan
handknattleik. Þar sat leikgleðin
og leikreynslan í fyrirrúmi.
Danska landsliðið náði frábær-
um árangri. Sennilega sínum
besta í HM-keppni frá upphafi.
Danir léku mjög agaðan hand-
knattleik og höfðu mjög góðum
markverði á að skipa. Lið Vestur-
Þjóðverja var ekki nægilega
sterkt. Stenzel hefur prufað 39
leikmenn á síðasta ári í landslið-
inu og ekki fundið neinn fastan
kjarna. Mjög góðir leikmenn voru
ekki í liðinu og það bitnaði tví-
mælalaust á því. Lið Sviss og Svía
sýndu ekkert sérstakt í keppninni
og þurfa bæði að yngja upp og
bæta við sig.
- ÞR
• Nokkrir hinna sovésku heimsmeistara hampa hér hinum glæsilega verðlaunagrip. Þetta eru Vladimir Belov, Juri
Shevzov, Oleg Gagin og Mikhael Vassiliev.
ei langt frá sér og náðu að jafna.
Rétt fyrir leikslok náðu Júgóslav-
ar aftur tveggja marka forystu,
22—20, en með öryggi og seiglu
tókst Rússum enn að jafna metin,
22— 22. Júgóslövum tókst enn að
komast yfir, 23—22, og rétt rúm
mínúta til leiksloka. En Rússar
misnotuðu ekki næstu sókn sína,
þrátt fyrir mikla spennu og pressu
tókst þeim enn að jafna metin,
23— 23. Síðasta sókn Júgóslava
rann svo út í sandinn án þess að
þeim tækist að skora.
Því þurfti að framlengja til að
ná fram úrslitum í leiknum.
Framlengt var í 2x5 mínútur.
Fyrri hlutann var aðeins eitt
mark skorað og voru Rússar þar
að verki. Þegar síðasti spretturinn
hófst voru þeir því í forystu,
24— 23. Þeim tókst að bæta tveim-
ur mörkum við og breyta stöðunni
í 26—23. í raun og veru gerðu þeir
út um leikinn á þessum kafla. Nú
brugðu Júgóslavar á það ráð að
leika maður á mann. Mikill darr-
aðardans hófst nú á gólfinu en
Rússar héldu forskoti sínu og lauk
leiknum með öruggum sigri
þeirra, 30—27.
Maður leiksins var án efa
markvörður Júgóslava, Mirko
Basic. Hann varði hreint ótrúlega
vel og þar á meðal fimm vítaköst í
leiknum. Erfitt var að gera upp á
milli annarra leikmanna. Liðin
unnu saman sem ein sterk heild.
MÖRK RÚSSA: Kidajev 5, Anpil-
ogov 5, Schenzov 5, Gagin 3, Belov
3, Vasilev 4, Rymanov 2, Karscha-
kewitsch 2, Nowitzki 1.
MORK JÚGÓSLAVA: Elezovic 4,
Zovko 3, Fejzula 5, Jurina 5, Vuj-
ovic 2, Bojovic 2, Krivokapic, Is-
akovie og Grubic allir tvö mörk.
Dómarar í leiknum voru norsk-
ir, þeir Antonsen og Bolstad og
þóttu þeir dæma leikinn mjög vel.
ÞAD VORU hin sterku lið Júgóslava
og Rússa sem léku til úrslita í
heimsmeistarakcppninni í hand-
knattleik að þessu sinni. Leikur lið-
anna bauð upp á allt það besta sem
hægt er að óska eftir í einum leik.
Góður varnar og sóknarleikur.
Frábær markvarsla. Snjallar leik-
fléttur, gott línuspil og hraðaupp-
hlaup. Síðast en ekki síst mikil
• Júgóslavneski línumaðurinn Petrit Feijula smýgur á milli þeirra Belovs og Kuzhniruks og
skorar eitt af mörkum Júgóslava í úrslitaleiknum. Símamyndir AP.
spenna frá upphafi leiksins allt til
loka hans, því úrslit fengust ekki
fyrr en eftir framlengingu.
Þegar venjulegum leiktíma var
lokið var staðan jöfn, 23—23. Og
það voru lcikmcnn Júgóslava sem
höfðu boltann síðustu mínútu leiks-
ins. Taugar rússnesku leikmann-
anna voru þandar til hins ýtrasta en
með hörðum varnarleik tókst þeim
að verjast og ná framlengingunni. í
henni sýndu þeir svo klærnar. Þeir
virtust hafa ótakmarkað úthald og
kraft og náðu þeir þriggja marka for-
skoti í framlcngingunni og sigruðu
svo með 30 mörkum gegn 27. Lið
Rússa tapaði ekki einu stigi í heims-
meistarakeppninni, vann alla sína
leiki með nokkrum yfirburðum. Sýn-
ir það vel hversu sterkt lið þeirra er.
Gangur leiksins
Það var greinilegt á leik-
mönnum beggja liða að mikil
taugaspenna þjakaði þá í upphafi
leiksins. En hún hvarf er líða tók á
leikinn. Fyrri hálfleikur var mjög
jafn þrátt fyrir að lið Rússa hefði
frekar frumkvæðið í leiknum.
Staðan í hálfleik var 13—12, fyrir
Rússa. Júgóslavar hófu síðari
hálfleikinn af miklum krafti og
tókst að ná tveggja marka forystu,
14—12. En Rússar misstu þá aldr-
Sigruðu Júgóslava eftir
framlengdan leik, 30-27
ÞAD ER mál manna hér í Vestur-
Þýskalandi að leikirnir í heims-
meistarakeppninni hafi verið góðir
handknattleikslega séð, sagði Jó-
hann Ingi Gunnarsson fyrrverandi
landsliðsþjálfari í handknattleik er
Mbl. spjallaði við hann í gær. Jó-
hann hafði þetta að segja um liðin
sem tóku þátt í keppninni:
Tvö lið skáru sig nokkuð úr. Það
voru Rússland sem var án efa með
jafnasta og sterkasta liðið í
keppninni. Júgóslavar voru og
með sterkt lið en vantaði tilfinn-
anlega eina skyttu í viðbót.
Markvörður liðsins var frábær.
Lið Austur-Þjóðverja olli von-
brigðum. Þar hefur greinilega orð-
ið um afturför að ræða. Spánverj-
ar voru óvenju mistækir í keppn-
inni, náðu góðum leikjum en á
milli datt botninn úr góðum leik
þeirra. Tékkar sýna ekki neinar
framfarir. Lið Ungverja 1 virðist
aldrei ná að sýna sitt rétta andlit
á stórmótum sem HM. Pólverjar
Yfirburðir Svía
gegn liði Sviss
ÞAD VORU lið Svíþjóðar og Sviss
sem léku til úrslita um II. og 12.
sætið í keppninni. Lið Svía sigraði
mjög örugglega með 25 mörkum
gegn 17. Svíar höfðu yfir allan leik-
inn og var sigur þeirra sanngjarn.
Ungverjar og Tékkar léku um 9.
og 10. sætið. Eftir fremur jafnan
leik tókst liði Ungverja að síga
fram úr undir lok leiksins og sigra
með sex marka mun, 24 — 18. V-
Þjóðverjar sigruðu Spánverja með
19 mörkum gegn 15 í leik liðanna
um 7. og 8. sætið. Fyrrverandi
heimsmeistarar höfnuðu því í
sjöunda sæti í keppninni. Og ekki
þótti heimamönnum mikið til þess
árangurs koma.
• Morten Stig Christiansen reynir markskot, en pólski varnarmúrinn er fjölmennur
og þvælist fyrir. Það eru kempurnar kunnu Klempel og Panas sem sækja að Danan-
um, en Bjarne Jeppesen er á línunni og fer fremur lítiö fyrir honum. Símamynd AP.
Óhagstæð dómgæsla
var þung á metunum
- er Pólverjar unnu Dani naumlega og
nældu í bronsverðlaunin á HM
Dortmund. Al*.
VAFASÖM dómgæsla kom danska
handknattleikslandsliðinu í koll er
leikið var til úrslita um þriðja sætið
á IIM gegn Pólverjum. Pólverjar
sigruðu í leiknum 23—22, en það var
danska liðið sem leiddi nánast allan
leikinn, stundum með allt að fjórum
mörkum. Jöfnunarmark Pólverja er
þeir breyttu stöðunni í 22—22 þótti
afar loðið, þar sem pólski marka-
skorarinn steig ekki aðeins á línu er
hann spyrnti sér inn í vítateig Dana,
hcldur var hann einnig lentur inni í
teignum áður en hann skaut á mark-
RÍJMENINN Stinga setti nýtt met í
markaskorun í heimsmeistarakcppn-
inni í handknattleik í V-Þýskalandi.
Stinga skoraði 65 mörk í keppninni.
I öðru sæti varð Ungverjinn Kovacks
með 56 mörk. Wunderlich varð í
þriðja sæti með 40 mörk. í heims-
meistarakeppninni árið 1978 setti
ið. Rúmenskir dómarar gerðu enga
athugasemd og þeir dæmdu síðan á
Dani rétt fyrir leikslok og Waskiew-
ic skoraði sigurmark Pólverja er að-
eins 20 sekúndur voru til leiksloka.
Sem fyrr segir leiddu Danir nær
allan tímann og sérstaklega lék lið
þeirra afar vel framan af. Jeppe-
sen frábær í markinu, varnarleik-
urinn traustur og sóknarleikurinn
frískur og ákveðinn í samanburði
við hinn kerfisbundna handknatt-
leik Pólverja. Danir komust í 8—4
um miðjan fyrri hálfleik og var
það mesti munur sem á liðunum
Pólverjinn Klempel markamet, skor
aði 47 mörk. Þannig að sjá má að
metið er bætt verulega. ()g það er
ekki lítið afrek að skora 65 mörk í
keppni sem þessari, gegn jafn frá-
bærum markvörðum og þar er að
mæta.
var í leiknum. Stundum var mun-
urinn 3 mörk, þannig mátti sjá
tölurnar 11—8, 12—9 og 13—10.
En lokakafli Dana var ekki nógu
góður og Pólverjar skoruðu tvö
síðustu mörkin í hálfleiknum,
staðan í leikhléi því 13—12 fyrir
Danmörk.
í síðari hálfleik var mikil
spenna. Pólverjar reyndu ákaft að
jafna metin og tókst það loks er
staðan var 16—16. Virtist vera að
syrta í álinn hjá Dönum, því Pól-
verjar komust skömmu síðar yfir í
fyrsta skiptið í leiknum, 18—17.
En Danir tóku þá mikinn kipp,
þeir skoruðu þrjú mörk í röð og
breyttu stöðunni í 20—18. En þá
fóru taugarnar að gefa sig. Pól-
verjar jöfnuðu 21—21 og aftur
22—22 og var mark Pólverja þá
afar umdeilt sem fyrr segir. Síð-
asta orðið áttu svo Pólverjar.
MÖRK DANA: Christiansen og
Haurum 4 hvor, Rasmussen, Möil-
er og Ström 3 hver, Nielsen og
Jeppesen 2 hvor, Röpsdorf eitt
mark.
MORK PÓLVERJA: Klempel 7,
Gawlik 5, Panas 4, Tluczinsky 3,
Waskiewic 2, Miroeevic og Kaluz-
inzky eitt hvor.
Tottenham
mætir
Leicester í
undanúrslitum
BUID ER að draga í undanúrslit
en-sku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu, en leikir umferðarinnar fara
fram laugardaginn 3. apríl. Þá mæt-
ast Tottenham og Leicester annars
vegar og WBA og QPR hins vegar.
Breskir veðmangarar hafa nær
allir lýst því yfir að Tottenham sé
sigurstranglegasta liðið sem eftir
stendur og kemur það ekki á
óvart. Liðið er núverandi bikar-
hafi og berst til sigurs á fjórum
vígstöðvum, í deild, deildarbikar,
Evrópukeppni bikarhafa og FA-
bikarnum. Þá veðja flestir á það,
að mótherji Tottenham á Wembl-
ey verði West Bromwich Albion.
Simamynd AP.
• Pólska stórskyttan Jerzy Klempel skorar eitt af sjö
mörkum sínum gegn Dönum á laugardaginn. Carsten
Haurum t.v. og Mikael Ström t.h. eru of seinir til varnar.
Rúmeninn Stinga setti
markamet - skoraði 65 mörk