Morgunblaðið - 12.06.1982, Page 3

Morgunblaðið - 12.06.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982 3 Um 23-25 ^úsund félagar ASÍ í verkfall 18. júní Málm- og skipasmiðasamband íslands ekki í verkfalli FRESTUR til boöunar verkfalls þann 18. þessa mánaðar er runninn út. Meðal þeirra félaga, sem verkfall hafa boðað eru flest stærstu félögin á höfuðborgarsvæðinu, nema Málm- og skipasmiðasamband íslands, en innan þess er fjöldi aðildarfélaga. Athugasemd við orðafar STUNDUM er sagt að eftir því sem íslenskir blaðamenn reyni meira við ensku, þeim mun meiri danska komi upp i þeim. Einhver íslenskur fréttastofustjóri á þessu málstigi lætur hafa eftir sér í Morgunblaðinu að undirrit- aður hafi sagt við amerísku fréttastofuna AP að rússar væru „gammeldags“ og þar að auki „geldir“ (á dönsku ,,gold“?). Blessjúenskufólk af þessari mentagráðu ætti að fá sér tíma í dönsku og láta taka úr sér svona orðafar. Ég fór yfir vélritað hdr. að samtali mínu við Mr. Rolf Söd- erlind og þar komu barnaleg skammaryrði einsog ngeldur“ og „gammeldags" ekki fyrir. 11. maí 1982, Halldór Laxness. Verkalýðsfélög á Vestfjörðum og Austfjörðum hafa ekki boðað verk- fall, en annars flest aðildarfélög ASÍ á landinu. Ekki hefur verið unnt að fá tæmandi yfirlit yfir fjölda þeirra, sem taka munu þátt í verkfallinu 18. júní, en þó má ætla að þeir séu á milli 23—25 þúsund í liðlega 30 að- ildarfélögum og samböndum. Félög, sem boðað hafa verkfall, eru: Verkamannafélagið Dags- brún, Reykjavík, Verkakvennafé- lagið Framsókn, Reykjavík, Verzl- unarmannafélag Reykjavíkur, Iðja, félag verksmiðjufólks í Reykjavík, Verkamannafélagið Hlíf, Hafnarfirði, Verkakvennafé- lagið Framtíðin, Hafnarfirði, Verzlunarmannafélag Hafnar- fjarðar, Félag blikksmiða, Lands- samband vörubifreiðastjóra, Fé- lag starfsfólks í veitingahúsum, Bakarasveinafélag íslands, Félag ísl. hljómlistarmanna og Félag hárgreiðslusveina. Ef síðan er far- ið vestur um land kemur í ljós að félögin á Akranesi hafa boðað verkfall en ekki félög í Borgarnesi og Mýrasýslu. Félög við Breiða- fjörð hafa boðað verkfall, en engin á Veststfjörðum. Öll félög á Norð- urlandi hafa boðað til verkfalls, en ekkert á Austurlandi. Á Suður- landi hafa flest félög boðað til verkfalls, nema í Vestmannaeyj- um, en þar hefur verið boðað yfir- vinnubann frá og með 14. júní. Var ræðan aldrei flutt í Hyde Park? ÍSLENDINGUR, sem staddur var í London sunnudaginn 6. júní og sótti fund í Hyde Park á vegum breskrar nefndar, sem berst gegn kjarnorku- vopnum, skýrði Morgunblaðinu frá því, að þar hefði Pétur Reimarsson, formaður Samtaka herstöðvaand- stæðinga, komið fram og sagt það eitt, að hann flytti fundinum kveðjur frá baráttufélögum á íslandi. Stang- ast þessi frásögn hins íslenska ferða- langs á við frsagnir Þjóðviljans af erindi Péturs Reimarssonar á þess- um fundi. Hinn 3. júní birtist frétt á for- síðu Þjóðviljans þess efnis, að Pét- ur Reimarsson yrði í hópi ræðu- manna á fundi bresku friðarhreyf- ingarinnar hinn 6. júní í Hyde Park. Á forsíðu Þjóðviljans hinn 8. júní stóð eftirfarandi: „Á fundin- um í Hyde Park garðinum á sunnudaginn var alþjóðlegt eðli þessarar friðarbaráttu undirstrik- að með boðum og kveðjum sem fulltrúar samtaka annarra þjóða fluttu, þeirra á meðal Pétur Reim- arsson frá Samtökum herstöðva- andstæðinga (sjá bls. 6).“ Á blaðsíðu 6 í Þjóðviljanum er birt „ræða Péturs Reimarssonar Breska fríOarhreyfingin n*eft funil i Hyde f*ark Pétur Reimarsson formaður SHA í hópi ræðumanna formanns Sha á fjöldafundi bresku friðarhreyfingarinnar". Morgun- blaðinu var einnig send umrædd ræða og stóð til kynningar á henni, að hún hefði verið „flutt á fjölda- fundi bresku friðarhreyfingarinn- ar í Hyde Park, 6. júní, 1982“. Er sú ræða, sem Morgunblaðinu var send með þessari kynningu, tvær vélritaðar A4 síður. En eins og fyrr segir, kveðst heimildarmaður Morgunblaðsins á fundinum að- eins hafa heyrt formann Samtaka herstöðvaandstæðinga flytja stutta kveðju frá samtökum sín- um, og hafi hann aðeins staðið ör- stutta stund fyrir framan hljóð- nemann. Svo virðist því sem „Hyde Park-ræðan“ hafi aldrei verið flutt. Vlnálagningarprósenta veitingahúsa hækkar: Vín hækkaði um Sáttanefnd á fundi í gærdag, f.v. Geir Gunnlaugsson, Geir Gunnarsson, Árni Vilhjálmsson, Guðlaugur Þorvaldsson, Gestur Jónsson og Guðmundur Vignir Jósefsson. Ljósmj'iid Mbi. Gu»jón. Sáttatillaga eftir við- ræður ASI og VSÍ í dag? „SÁTTANEFND kom saman þar sem málin voru rædd, en engar ákvarðanir voru tekn- ar, aðrar en þær, að boða samninganefndir ASÍ og VSÍ til fundar í dag klukkan 09.00,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemj- ari, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir gangi mála í kjaradeilu ASÍ og VSI. Guðlaugur sagði ennfremur aðspurður, að engin ákvörðun um formlega sáttatillögu yrði tekin fyrr en eftir að ljóst yrði hvaða stefnu viðræðurnar tækju á fundum aðila í dag. Á miðnætti í nótt lauk tveggja daga verkfalli liðlega 60 verkalýðsfélaga, sem flest eru innan ASÍ, en félagar þeirra eru um 35 þúsund. Síðan hafa liðlega 30 verkalýðsfélög boðað allsherjarverkföll frá og með 18. júní nk., en félagar þeirra eru á bilinu 23—25 þús- und. Magnús L. Sveinsson, for- maður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, sagði í samtali við Mbl., að verkfallsvarsla hefði gengið mjög vel í gærdag og hefði ekki komið til neinna alvarlegra árekstra, m.a. hefði deilumál VR og Flugleiða verið leyst, þ.e. í sambandi við Hótel Loftleiðir, en þar voru nokkrir í starfi. Loftleiðamenn féllust hins vegar á, að Emil Guð- mundsson, hótelstjóri, yrði einn í afgreiðslu. Samkvæmt upplýsingum Mbl. gerðist ekkert markvert á verkfallsvakt annarra félaga. Benedikt Davíðsson, formað- ur Sambands byggingarmanna, sagði í samtali við Mbl., að menn hefðu ræðst við í gær og fimmtudag og væntanlega yrði viðræðum haldið áfram í dag. — Það hefur hins vegar hvorki gengið né rekið á þessum fund- um, sagði Benedikt ennfremur. Fálkahreiður í Mývatnssveit rænt FÁLKAHREIÐUR var rænt í Mývatnssveit fyrrihluta maímánaóar. Voru öll egg, fjögur alls, hirt úr hreiórinu og ókunnugt er meó öllu hver þar hefur verið aó verki, að sögn lögreglunnar á Húsavík. Að sögn Daníels Guðjónsson- ar, lögreglumanns á Húsavík, var það Olafur Nílsson, sem er að semja ritgerð um íslenzka fálkann með styrk frá amerísk- um háskóla og fylgzt hafði með fálkahreiðrum á þessum slóðum í 2 ár, er tilkynnti lögreglunni um eggjahvarfið. Allsendis óljóst væri hver þar hefði verið að verki, þar sem viku til 10 daga tímabil kæmi til greina. Þá sagði Daníel, að lögreglan fylgdist alltaf að nokkru leyti með ferðum útlendinga á varp- slóðunum við Mývatn, og hefði auk þess gott samstarf við gæzlufólk, sem þar væri á vegum Náttúruverndarráðs. Hefði lög- reglan til dæmis fylgzt með eggjaþjófunum, sem handteknir voru í gær og af og til stuggað við útlendingum á ferð um varplöndin. Að öðru leyti en þessu væri ekki kunnugt um frekari eggjaþjófnaði. Þá bæri að geta þess, að bændur mættu nytja varpið og hirða egg undan þeim andategundum, sem ekki væru friðaðar. Þeir mættu svo selja eggin og gætu því útlend- ingar keypt af þeim án þess að brjóta lög. Lögin væru hins veg- ar ekki brotin fyrr en reynt væri að fara með eggin út úr landinu, nema um alfriðaðar tegundir væri að ræða. Tveir Belgar handteknir vegna meints eggjasmygls hafa stolið eggjunum eða keypt þau fyrr en yfirheyrslum og rann- sókn málsins lýkur. Tildrög þess að mennirnir voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli voru þau, að þeir þóttu grunsamlegir og hafði lögreglan á Húsavík meðal annars fylgzt með þeim við Mývatn í tvo daga, áður en þeir héldu til Kefla- víkur. TVEIR belgískir ríkisborgarar voru handteknir á Keflavíkurflugvelli mánaða- snemma í gærmorgun, er þeir reyndu aó koma miklu magni af eggjum úr landi. Lögreglan á Kefla- víkurflugvelli fann eggin við leit í farangri þeirra og sendi málió síðan í hendur Rannsóknarlögreglu ríkis- ins. Mennirnir voru færðir til yfir- heyrslu og var henni ekki lokið þeg- ar Mbl. leitaði frétta í gærkvöldi. mótin um 17,9 til 22,8% Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð, sem heimilar hækkun á álagningarprósentu á víni á veit- ingahúsum. Samkvæmt reglugerð- inni hækkar prósentan ef selt er í heilum eða hálfum flöskum úr 45% í .rinisssitsbnfid 50% og ef selt er í minni einingum úr 75% í 80%. Eins og kunnugt er hækkaði áfengi um 10,5% á dögunum og þegar þessi álagningarprósentu- hækkun kemur til viðbótar er hækkunin í fyrra tilfellinu, þegar selt er í heilum eða hálfum flösk- um um 22,8%, en i seinna tilfell- inu, þegar selt er í minni skömmt- um, er um að ræða um 17,9% hækkun. Við leit í farangri Belganna fundust 162 egg, mest húsandar- egg, en einnig straumandaregg, en straumönd er alfriðuð hér á landi. Ekki er ljóst hvernig mennirnir hafa komizt yfir eggin, þar sem bændur í Mývatnssveit hafa leyfi til að nytja varp þeirra andarteg- unda, sem ekki eru friðaðar og er þeim heimilt að selja þau. Það Vegna þess máls er rétt að geta þess, að þann 19. maí siðastliðinn voru samþykkt lög um viðurlög við eggjatöku. Lögin voru birt í gær og öðluðust um leið gildi og getur það skipt sköpum hvað varðar refsingu vegna þess máls, því sam- kvæmt nýju lögunum getur sekt- arupphæð numið allt að 1 milljón verður þvi^ekki^Jjóst_ hvort J>eir _ _ J^róna^^n^var miftg lág.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.