Morgunblaðið - 12.06.1982, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982
Flytja í nýtt húsnæði
Heildverslunin Steingrímur Þorleifsson hefur flutt skrifstofu sína í Skip-
holt 9. Heildverslunin verður með á boðstólum hljómUeki, loftnet og kassett-
ur í bíla og til heimilisnotkunar. í sama húsnaeði hefur smisöluverslunin
Tónver hf. opnað verslun sína og verslar hún með vörur frá heildversluninni.
Eigendur eru Anna Barbara Thorleifsson, framkvaemdastjóri, Thorsten
Steingrímsson og Sandra Steingrímsdóttir, verslunarstjórar.
54 fóstrur luku
burtfararprófi
FÓSTRUSKÓLA íslands var slitið 28. maí 1982 í Bústaðakirkju að
viðstöddum mörgum gestum og afmælisárgöngum. Skólastjóri, Valborg
Sigurðardóttir, gaf yfirlit yfir starfsemi skólans á sl. skólaári og ræddi
ýmis framtíðarverkefni.
1 upphafi skólaársins voru 184
nemendur í skólanum. Skiptust
nemendur í 7 bekkjardeildir. Þrjár
bekkjardeildir voru á 1. námsári,
tvær á 2. námsári og tvær á 3.
námsári. Nokkrir nemendur helt-
ust úr lestinni á skólaárinu.
Skólastjóri ræddi um brýna
nauðsyn þess að stofna fram-
haldsdeild við skólann fyrir fóstr-
ur er hygðu á forstöðustörf og um-
sjónar- og ráðgjafastörf á sviði
dagvistar- og barnaverndarmála.
Standa vonir til að stofna slíka
deild á næsta ári.
Burtfararprófi luku 54 stúlkur.
Skóiastjóri afhenti þeim skírteini
og ávarpaði þær sérstaklega. Val-
gerður Heba Valgeirsdóttir frá
Eskifirði hlaut bókaverðlaun frá
skólanum fyrir hæstu einkunn
fyrir lokaritgerð í uppeldisgrein-
um. Verðlaun fyrir félagsstörf í
þágu nemenda hlaut Björk Al-
freðsdóttir, Kópavogi. Soroptim-
istaklúbbur Reykjavíkur hefur
sýnt Fósturskóla Islands þá vin-
semd að veita þessi verðlaun.
Fulltrúar 20 ára og 10 ára af-
mælisárganga fluttu ávörp og af-
hentu peningagjafir til bóka-
kaupa.
Þórir S. Gröndal: Bréf frá Ameríku
Sagði ég ekki!
Þegar sleppir grundvallar-
þörfum mannskepnunnar, eins
og að fá mat, blíðu, kaffi og
fréttir, kemur ein í viðbót, sem
ég ætla að eyða nokkrum orðum
á. Hér er ég að tala um hina
feikilegu þörf margra til að hafa
rétt fyrir sér.
Þetta fólk er í sífellu að segja
fyrir um óorðna hluti og atburði
og svo, þegar allir eru búnir að
gleyma spánni, kemur það ask-
vaðandi og segir sigri hrósandi:
„Sagði ég ekki?!“ Persónulega
finnst mér svona manntegund
heldur leiðinleg. Stundum grun-
ar mig, að þeir forvitru hafi
raunverulega aldrei sett fram
neina spá, en treysti bara á það,
að enginn hefði hvort eð er tekið
eftir því. Hér er smá dæmi:
„Hana, sagði ég ekki, að Arg-
entína myndi taka Falklandseyj-
ar?“
„Nú, hvenær sagðir þú það?“
„Manstu það ekki, maður? Það
var í janúar og það var dimmt og
rigning úti. Við sátum yfir kaffi-
bolla hjá honum Jóni Jóns. Þú
sagðir, að stríð myndi hefjast við
Miðjarðarhaf, en ég sagði, að
Argentína myndi taka Falk-
landseyjar og yrði úr því stríð.
Manstu virkilega ekki eftir því?
Ég hafði rétt fyrir mér!“
Á þessu stigi málsins hristi ég
bara höfuðið, því ég veit, að ekki
þýðir að kljást við þennan vin
minn. Hann státar nefnilega af
feikilegu minni og það er nú það.
Annars verð ég að viðurkenna,
að ég hálf kenni í brjósti um
fólk, sem þykist hafa stálminni.
Mér virðist, að það hljóti að vera
ósköp einmana, því það er alltaf
að tala um hluti, sem allir aðrir
eru búnir að steingleyma. Það er
eins og hinir minnisgóðu séu
búnir að lifa auka mannsaldur!
Ég held, að það sé ósköp gott að
losa blessaðan heilann undan því
að þurfa að muna alla skapaða
hluti. Það er svo margt, sem ger-
ist í heiminum, sem bezt er að
gleyma sem allra fyrst.
Það, sem ég hefi fjallað um
hér að framan, er áhuga-„sagði
ég þér ekki“-fólk. Stór hópur
manna hefir atvinnu af því að
spá eða segja til um framtíðina.
Þar má telja veðurspámenn,
stjörnuspáfólk, fjármálaspek-
inga, íþróttaspámenn, hagfræð-
inga, stjórnmálamenn og fleiri.
Oft er ekki annað hægt en að
vorkenna aumingja stjórnmála-
mönnunum, þegar þeir eru að sjá
fyrir alls slags stórkostlegar
breytingar til hins betra í efna-
hagsmálum landanna. Ef verð-
bólgan á íslandi hefði minnkað
eins mikið og íslenzkir pólitíkus-
ar hafa spáð í gegnum árin, væri
hún fyrir löngu komin mörg þús-
und stig í mínus. Annars held ég
nú, að flestir kjósendur á íslandi
séu hættir að taka mark á spám
um minnkandi bólgu verðs. Ég
er heldur ekki viss um, að allir
landar vilji láta slíkar spár ræt-
ast að fullu.
Þessu er dálítið öðru vísi hag-
að hérna í henni Ameríku. Al-
menningur er hræddur við verð-
bólguna og veit ekki um hennar
góðu hliðar. Fólki er ókunnugt
um það, hvernig íslandsmenn
hafa lært að nota sér bólgu þessa
sér til framfæris og margvíslegs
góðs. Þess vegna vildi lýðurinn
hér taka mark á Reagan forseta-
efni, þegar hann hét að ganga af
verbólgunni dauðri. Og nú hefir
undrið gerzt og hann getur sagt:
„Sagði ég ekki?!“
Efnahagstölurnar eru sem sé
komnar út og mældist bólgan 0
stig í sl. mánuði! Er það í fyrsta
sinn í 17 ár, að verð hefir ekki
bólgnað hér. Almenningur held-
ur, að þetta sé ósköp gott og
Reagan er klappað lof í lófa. En
okkur, sem betur vitum, rennur
til rifja lánleysi Ameríku, að
hún skuli nú hafa komið verð-
bólgunni fyrir kattarnef. Ekki
unnið bug á glæpaöldu, ekki út-
rýmt fátækt, ekki kveðið komma
í kútinn, ekki stöðvað kjarorku-
kapphlaupið, heldur drepið verð-
bólguna! Hvílík ólán!
Hér vestra er fjöldi fjármála-
spekinga, sem leggur gallharða
peninga undir, þá er þeir setja
fram spár sínar. Flestir þessara
hasla sér völl á markaði fyrir
verðbréf eða dýra málma. Stund-
um heyrast ævintýrasögur um
stórkostlegan gróða, en auðvitað
eru þeir fleiri, sem tapa öllu, er
undir var lagt.
Á íslandi er þetta ekki eins
dramatískt í hinu víðtæka fjár-
hættuspili þjóðarinnar, happ-
drættunum. Það þarf aðeins að
leggja undir endurnýjunargjald-
ið og ekki einu sinni að spá eða
segja fyrir, bara vona. Sögumað-
ur ykkar hefir ekki þorað að
sleppa Háskólahappdrættismið-
anum, sem hann eignaðist, þegar
hann var 12 ára. Og eftir öll
þessi ár, þegar hann fær stóra
vinninginn, getur hann sagt við
konuna: „Sagði ég ekki?!“
ÞSG
Pillur eða mat?
Eftirfarandi iisti sýnir hverjar eru bestu uppsprettur ým-
issa mikilvægra bætiefna:
A-vítamín Lýsi, lifur, smjör, gulrætur.
H-vUamín Lýsi, sójböð, síld, lifur, smjörlíki.
K-víUmín Jurtaolíur, hveitikím, majones.
K-vítamín Laufgrænmeti, kálmeti, lifur.
(’-vítamín Sítrusávextir, ber, aðrir garðávextir, lifur.
Bl-vítamín ölger, svínakjöt, hveitikím, gróft korn, lifur, mysuostur.
B2-vítamín Mjólkurmatur, lifur, ölger, egg, hveitikím, gróft korn.
Níasin Ölger, lifur, kjöt, fiskur, mjólkurmatur, hveitikím, gróft
korn.
Fólasín Olger, lifur, dökkt grænmeti, hveitikím, gróft korn.
B6-vítamín Hveitikím, gróft korn, kjöt, fiskur, ölger.
BI2-vitamín Lifur, kjöt, fiskur, mjólkurmatur.
Pantoþensýra Lifur, ölger, egg, hveitikím, gróft korn.
Bíótín Lifur, ölger, egg, baunir.
Kólín (Choline) Egg, lifur, mjólkurma'tur, kjöt, fiskur.
Kalk (kalsium) Mjólkurmatur, hnetur, gróft korn, egg.
Magníum Hveitikím, gróft korn, hnetur, dökkt grænmeti.
Járn Blóðmör, lifur, hveitikím, gróft korn, kjöt, dökkt grænmeti,
fiskur.
Kopar Blóðmör, lifur, hveitikím, gróft korn.
Zink Hveitikím, gróft korn, blóðmör, lifur, mjólkurmatur, kjöt,
fiskur.
Eftir dr. Jón Óttar
Ragnarsson dósent
„Á ég að taka vítamínpillur,"
hlýtur að vera hin sígilda spurn-
ing sem borin er upp þegar rætt
er um matarvenjur og heilsufar,
„eða á maður að reyna að fá
þessi efni úr matnum?“
í þessari grein verður fjallað
um það hvernig hægt er að fá öll
þau bætiefni sem maður þarfn-
ast, hvenær óhætt er að treysta á
fæðið, hvenær pillur eru gagn-
legar og hvaða pillur henta best.
Pillur eða mat?
Spurningunni hér að ofan er
fljótsvarað: Vítaminpillur —
bætiefnapillur er betra orð því
oft innihalda þessar pillur líka
steinefni — eru óþarfar fyrir
heilbrigt fólk sem borðar holian
mat.
Það er æskilegast — ef þess
er nokkur kostur — að fá öll
bætiefni úr fæðinu. Þeir sem
vinna kyrrsetustörf ættu að
auka við sig hreyfingu. Við
það vex matarlystin og um leið
neysla bætiefna.
En hvers vegna fæðu frekar
en pillur? Af þeirri einföldu
ástæðu að i bætiefnapillum —
hve vcl sem þær eru úr garði
gerðar — eru aldrei öll þau
Jón Ottar Kagnarsson
FÆDA
~--------
HEILBRIGÐI
bætiefni sem þú þarft á að
halda.
Hvaða mat?
En í hvaða fæðu eru hin
ýmsu bætiefni að finna?
Hvernig get ég tryggt að ég fái
nægilega mikið af C-vítamíni?
Eða kalki? Um það var fjallað
í síðustu grein, en hér verður
bætt við fáeinum atriðum.
Vegna þess hve bætiefnin
eru mörg (amk. 40 talsins)
verður hér aðeins minnst á
hluta þeirra, þ.e. helstu víta-
mín og fáein steinefni (járn,
zink, kopar, kalk og magni-
um).
Hvenær þarf að bæta
fæðið?
Ef fæðinu er ábótavant
verður að grípa til bætiefna-
gjafa í einhverri mynd. Hér
koma tvær leiðir til greina:
náttúrulegir bætiefnagjafar eða
bætiefnapillur.
í fyrri flokknum er m.a.
dökkt grænmeti, lifur og annar
innmatur, hveitikím og hveiti-
klíð, mysa og mysuostur, ölger,
lýsi og æskilegar jurtaolíur.
Ef þessar fæðutegundir eru
notaðar til þess að bæta fæðið er
öll notkun á bætiefnapillum
óþörf. Aðrir kunna hins vegar að
kjósa síðari kostinn, þ.e. að fá
þessi efni í pillum og töflum.
Bætiefnapillur henta einkum
fyrir fólk sem lifir á einhæfu
fæði, hreyfir sig lítið, er í megr-
un, er undir miklu álagi, er að
ná sér eftir vcikindi eða upp-
skurð.
Því miður er það svo að fæði
hér á landi er stundum í ein-
hæfara lagi. Gildir það eink-
um síðari hluta vetrar og
snemma vors þegar garðávext-
ir eru af skornum skammti.
Hvaða bætiefnapillur?
Ef bætiefnapillur eru notað-
ar skiptir ekki litlu máli að
velja tegundir sem innihalda
þau næringarefni sem þú
þarft mest á að halda og kosta
þó ekki of mikið.
Sem betur fer er nú til all-
gott úrval af þessum pillum.
Eru sumar þessar tegundir
augljóslega framleiddar á vís-
indalegan hátt, en aðrar án
teljandi sérþekkingar.
Taflan hér á síðunni sýnir
niðurstöður af stuttri könnun
á gæði og verði (verðgæðum)
helstu tegunda af bætiefna-
pillum sem hér eru seldar. Eru
þær allafhyglisverðar.
Könnunin leiddi í Ijós að
fimm tegundir skáru sig nokkuð
úr. Eru þær sýndar í töflunni og
jafnframt einingarverð (verð á
dagskammt í kr. og framleið-
andi.