Morgunblaðið - 12.06.1982, Side 17
AUGLYSINGASIMINN EH:
224,0 ^
<As
JH«roimbInbít>
Þi: AUGLYSIR UM ALLT
LAXD ÞEGAR ÞÚ Al'G-
LÝSIR í MORGUXBLAÐIXU
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982
Skæruliðaforingi
skotinn
Mílanó, 11. júní. AP.
LÖGREGLAN í Mílanó fann í dag
lik manns, sem sagður er vera Rocco
Polimeni, helsti leiðtogi skæruliða-
hreyfingar vinstri manna, „Prima
Linea“ (Framlínan). Við fyrstu rann-
sókn virtist svo sem hann hafi verið
myrtur. Voru byssukúlur í höfði
hans, þar sem líkið fannst undir tré í
almenningsgarði í borginni. Fannst
skammbyssa skammt frá honum og
er hún talin vera morðvopnið.
Mílanó
Polimeni hafði verið eftirlýstur
af lögreglunni í meira en tvö ár
ásakaður um þátttöku í vopnuðum
ránum og neðanjarðarstarfsemi.
Lögreglan gerði húsleit í íbúð
hans í apríl og fann þar óyggjandi
sannanir fyrir þátttöku hans í
skæruliðahreyfingunni „Prime
Linea". Sú hreyfing aðhyllist
sömu hugmyndafræði og Rauðu
herdeildirnar.
Elísabet II Bretadrottning og Ronald Reagan Bandaríkjaforseti spjalla saman meðan á reiðtúr þeirra um lóð
Windsor-kastala stendur sl. þriðjudag.
Höfum til sölu mjög skemmtilegt svæði undir sumarbústaði.
Svæðið er skipulagt sem sumarbústaðaland, skógi og kjarri
vaxið eignarland, aðeins 50 km frá Akranesi.
Hægt er að fá 2500-5000 fermetra á mjög góðu verði.
Einnig útvegum við mjög góða sumarbústaði 30 m2, 36 m2, 42 m2,
á hvaða byggingarstigi sem er, eftir óskum kaupanda.
Upplýsingar á skrifstofu okkar milli kl. 09.00-17.00
alla virka daga og milli kl. 13.00-15.00 tvær næstu helgar.
Sigurjón og Þorbergur h/t
Akranesi - Sími 93-2722
Prinsessunni
gefín 4 nöfn
Stokkhólmur, 11. júní. AP.
HIN nýfædda prinsessa Svía var
snemma í morgun heiðruð með 21
fallbyssuskoti og faðir hennar, Karl
Gústaf XVI konungur, tilkynnti að
hún yrði skirð Magðalena Theresa
Amalía Jósefina.
Hún mun verða kölluð Magða-
lena og heilsast henni mjög vel,
sem og móður hennar, hinni 39
ára gömlu drottningu Svía, Silvíu.
Magðalena prinsessa er þriðja
barn konungshjónanna. Viktoría
krónprinsessa fæddist 14. júlí 1977
og Karl Filip prins 13. maí 1979.
Olof Sundby erkibiskup, yfir-
maður sænsku mótmælendakirkj-
unnar hélt á hádegi í dag þakkar-
guðsþjónustu í hallarkirkjunni.
Guðsþjónustuna sóttu 700 sérlega
boðnir gestir.
Áður höfðu forsætisráðherra
Svíþjóðar, Thorbjörn Fálldin, for-
seti þingsins og aðrir helstu ráða-
menn þjóðarinnar farið í Drottn-
ingarhólmskastala til að sjá hið
nýfædda barn samkvæmt gamalli
hefð.
Heilsu mótmælend-
anna hrakar mjög
Moskvu, 11. júní. AP.
HEILSU ,,makanna“, sem verið
hafa í hungurverkfalli í Sovétríkjun-
um í 33 daga til að leggja áherslu á
þær kröfur sínar að fá að flytjast til
Vesturlanda til að búa með sínum
heittelskuðu, hefur hrakað mjög.
Þrír úr hópnum hættu hungur-
verkfallinu er þeim var lofað
brottfararleyfi. Einn þeirra hefur
þegar fengið nauðsynleg plögg í
hendurnar og heldur úr landi um
helgina til endurfunda við eigin-
konu sína í Chicago.
,SUMAR
BUSTAÐALAND
á glæsilegum stað,
eignarland miðsvæðis i Borgarfirði
Alvarlegar deilur innan
raða spænskra kommúnista
Madrid, 11. júní. AP.
í SKOÐANAKÖNNUN, sem gerð
var innan miðstjórnar spænska
kommúnistaflokksins í dag, greiddu
80 fulltrúanna 104 atkvæði gegn því
að formaður flokksins, Santiago
Carrillo, segði af sér. Carillo lagði
fram afsagnarbréf sitt fyrir tveimur
dögum í kjölfar harðrar gagnrýni á
hann.
Tók fyrst að bera á óánægju í
hans garð innan flokksins í fyrra
er hann vísaði um 60 fulltrúum úr
flokknum, þar sem þeir voru ekki
sammála stefnu hans gagnvart
flokksbræðrum í Sovétríkjunum.
Hefur Carrillo farið sínar eigin
leiðir og lítið tillit tekið til Sovét-
kommúnista.
Það voru ekki aðeins yngri
menn flokksins, sem börðust gegn
Carrillo, heldur og elstu leiðtogar
verkalýðshreyfingar landsins, sem
lýstu sig reiðubúna til að taka við
æðstu stöðum innan flokksins og
reru að því öllum árum.
„Afsögn mín hefur hleypt nýju
blóði í flokkinn," sagði Carrillo við
fréttamenn áður en hann hélt á
lokaðan fund innan flokksins.
Fjórir flýja yf-
Deilurnar í spænska kommúnista-
flokknum eru þær alvarlegustu
síðan í borgarstyrjöldinni á árun-
um 1936-1939.
ir járntjaldið
Múnchen, 11. júní. AP.
FJÓRIR austur-þýskir bygginga-
verkamenn, sem unnu við landa-
mærin milli Austur- og Vestur-
Slapp úr gæslunni
um stundarsakir
Bern, 11. júní. AP.
Einn sovésku fanganna þriggja,
sem Afganir komu fyrir í fangelsi I
Sviss í samráði við Rauða krossinn,
slapp um tima úr gæslunni í síðustu
viku.
Var hann handtekinn um 5 kíló-
metra frá gæslustaðnum. Var ekki
vitað um tilgang þessa flótta Sov-
étmannsins, en talsmaður Rauða
krossins í Bern sagði, að flóttatil-
raun Sovétmannsins vekti menn
til umhugsunar um frekara fram-
hald á slíkri gæslu.
Þýskalands, gengu í dag yfir landa-
mærin og flúðu yfir til vesturhlutans,
samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni í Bæjaralandi í morgun.
Lögreglan í Bæjaralandi segir
mennina hafa komist klakklaust
yfir landamærin árla á fimmtu-
dag þrátt fyrir að vopnaðir aust-
ur-þýskir lögreglumenn hafi stað-
ið vörð á landamærunum.
Mennirnir fjórir, sem eru á
aldrinum 32 og 38 ára, segjast
hafa flúið yfir landamærin vegna
mikillar óánægju með ástand
mála í Austur-Þýskalandi, bæði
hvað varðar efnahagsástand og
stjórnmál.
Samkvæmt vestur-þýskum lög-
um eru þeir sem flýja yfir landa-
mærin frá Austur-Þýskalandi
taldir „þýskir" ríkisborgarar og
hafa rétt til búsetu þar.
Hið árlega
hestaþing
Smára og Sleipnis
verður haldið að Murneyrum 27. júní
Gæöingadómar og undanrásir kapp-
reiða fara fram laugardaginn 26. júní.
Keppt verður í 250 m unghrossahlaupi,
350 m stökk, 800 m stökk, 150 m skeið,
250 m skeið og 800 m brokk.
auglýst ^ Skráning fer fram 13.—20. júní í símum
SÍðar - "-."U715og 99-2031, 99-6080, 99-6034.