Morgunblaðið - 12.06.1982, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982
• Núverandi heimsmeistarar í knattspyrnu er lið Argentínu, en myndin hér að ofan er af liði þvi sem verja mun
titilinn í Spáni. Á skiltinu sem leikmenn halda i stendur: Falklandseyjar eru eign Argentínu. Vonandi setur
Falklandseyja-deilan ekki leiðinlegan svip i HM-keppnina.
ha * Va x IMa x ».ææ
24 þjóðir leika
í sex riðlum
TUTTUGU og fjórar þjóðir taka nú í
fyrsta sinn þitt í lokakeppni heims-
meistarakeppninnar. Það verður til
þess að keppnin verður umfangs-
meiri en nokkru sinni fyrr. Riðla-
keppnin fer nú fram i sex stöðum i
Spini. Fjögur lönd leika í hverjum
riðli. Á kortinu hér til hliðar mi sji í
hvaða borgum þjóðirnar leika.
Eins og ávallt þegar knatt-
spyrnukeppni fer fram er erfitt að
spá um úrslit í riðlunum. En samt
er það álit sérfræðinga að nokkuð
víst sé hvaða þjóðir koma til með
að verða neðstar í sínum riðlum.
Það eru þjóðir sem eru nú að taka
þátt í lokakeppni HM í fyrsta
skipti.
í 1. riðli er gert ráð fyrir því að
lið Kamerún verði í neðsta sæti. í
2. riðli er gert ráð fyrir því að
Alsír verði á botninum. Kuwait er
spáð neðsta sæti í 4. riðli. Hondúr-
as í þeim fimmta. E1 Salvador er
líklegt til að verma botnsætið í
þriðja riðli. Og mjög líklegt þykir
að Nýja Sjáland taki neðsta sætið
að sér í sjötta riðlinum.
I öllum þessum löndum er
knattspyrnan mjög vinsæl og allt
hefur verið gert til þess að lands-
liðunum gangi vel í keppninni. En
það geta ekki allir sigrað og verið
í efstu sætunum.
106 þjóðir tóku þátt
í undankeppni HM '82
• Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu var haldin í
fyrsta skipti í Urutjuay, 30. júlí 1930. Síöan hefur HM
veriö haldin á Italíu (1934), Frakklandi (1938),
Brasilíu (1950), Sviss (1954), Svíþjóö (1958), Chile
(1962), Englandi (1986), Mexíkó (1970), Austur-
Þýskalandi (1974) og Argentínu (1978).
• Þær þjóðir er hafa oröiö heimsmeistarar hingaö
til eru: Uruguay (1930 og 1950), Ítalía (1934 og
1938), Austur-Þýskaland (1954 og 1974), Brasilía
(1958, 1962 og 1970), England (1966) og Argentína
(1978). Núverandi heimsmeistari er því Argentína.
• Heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu er skipt í tvo
hluta: undanriöla og loka-
keppni.
• í undanriölum HM á Spáni
1982 tóku þátt 106 þjóðir. Síó-
asti leikur þeirra fór fram 30.
nóvember 1981.
• FIFA ákveóur hvaóa þjóó
muni sjá um skipulag HM
hverju sinni. Á þingi FIFA í
Tokyo 1964 fól Alþjóöasam-
bandið Knattspyrnusambandi
Spánar umsjá meó HM 1982.
Forseti spænska knatt-
spyrnusambandsins er Pablo
Porta.
• Hinn 29. september 1978
voru gefin út ákvæói laga
varóandi stofnun skipulags-
nefndar HM 1982. Nefndin er
skipuð forseta og fulltrúum
ýmissa stjórnarsamtaka. Úr
hópi þeirra voru tilnefndir
varaforseti og aóalritari. Alls
eru nefndarmenn 32 aó tölu.
• Einnig þann 29. september
1978 er Raimundo Saporta
Namias settur forseti skipu-
lagsnefndar af menningar-
málaráóherra Spánar og sá
hinn sami tilnefnir Manuel
Benito González sem aðalrit-
ara nefndarinnar.
• Á fyrsta fundi skipulags-
nefndar, þann 17. nóvember
1978 var samþykkt aö Pablo
Porta, foseti spænska knatt-
spyrnusambandsins, yrói
fastur gestur á öllum fundum
nefndarinnar.
• Innan Alþjóóaknattspyrnu-
sambandsins var í nóvem-
bermánuði 1978 stofnuó
skipulagsnefnd FIFA vegna
HM 1982. í forsæti nefndar-
innar er H. Neuberger, vara-
forseti FIFA. Nefndin kom
fyrst saman 17. maí 1979. Á
fundinum var samþykkt aö á
HM 1982 yróu þátttökuþjóóir
24 í staö 16 einsog hingaö til.
• Því munu í fyrsta skipti í
sögu heimsmeistarakeppn-
innar veróa 24 þátttökuþjóóir
í lokakeppni HM á Spáni í
sumar. Þjóóirnar eru frá eftir-
farandi heimshlutum:
Evrópu: 13 lió
S-Ameríku: 3 lið
Afríku: 2 liö
Asíu: 2 lið
M-Ameríku: 2 lið
Núverandi heimsmeistari.
Argentína
Land er sér um skipulag
HM 1982: Spánn
• Sömuleiöis voru dagsetn-
ingar og leikalmanak fyrir HM
1982 8amþykktar. Fyrsti leik-
ur lokakeppninnar veröur
háöur í Barcelona 13. júní
1982. Úrslitaleikurinn fer fram
í Madrid 11. júlí 1982. Keppnin
mun því taka 29 daga.
• Leikjum mun þannig veröa
háttaó: 1. umferö: Sex riðlar
meó 4 liðum hver. Tvö efstu
liö hvers rióils komast áfram í
næstu umferð. 2. umferö:
Fjórir riólar þar sem leika 3
liö í hverjum þeirra. Efsta liö
hvers riöils kemst áfram í
keppninni. Undanúrslit: 4 liö
keppa sín á milli. Úrslit: Vinn-
ingsliöin tvö frá undanúrslit-
um keppa um 1. og 2. sæti.
Hin tvö liðin um 3. og 4. sæti.
• Alls verða leiknir 52 leikir. í
1. umferö, þar sem keppt
verður í 12 borgum víós vegar
um Spán, veróa háóir 3 leikir
daglega: tveir kl. 17.15 og
einn kl. 21.00 eóa öfugt. Leikir
annarrar umferðar fara fram í
Madrid (notaðir 2 leikvangar)
og Barcelona (einnig notaóir
2 leikvangar). Tímasetning
þessara leikja er kl. 17.15 á
RCD Espanol-leikvanginum í
Barcelona og á Vicente Cald-
erón-leikvanginum í Madrid.
Og kl. 21.00 á FC Barcelona-
leikvanginum, Barcelona og á
Santiago Bernabéu-leikvang-
inum í Madrid. Fyrsti leikur
HM á leikvangi FC Barcelona
byrjar kl. 20.00. Úrslitaleikur
HM á Santiago Bernabéu-
leikvanginum byrjar kl. 20.00.
Leikurinn, þar sem keppt
veróur um 3. og 4. sæti HM á
José Rico Pérez-leikvangi (
Alicante, byrjar kl. 20.00.
Leikimir tveir í undanúrslit-
um, háðir í Barcelona og Sev-
illa, byrja kl. 21.00.
• í fyrstu umferð mun Arg-
entína, núverandi heims-
meistari, leika 1. leik HM viö
Belgíu í Barcelona. Hina leiki
sína mun Argentína spila í
Alicante. Spænska landsliöió
mun leika alla leiki sína í Val-
encia.
• Öllum borgum, meó yfir
200.000 íbúa og knattspyrnu-
liö í 1. eöa 2. deild, var mögu-
legt aó geta oröió keppnis-
borg á HM 1982.
• Af 31 borg, er kom til
greina, voru eftirfarandi 14
borgir valdar: Alicante, Bar-
celona, Bilbao, La Coruna,
Elche, Gijón, Madrid, Málaga,
Oviedo, Sevilla, Valencia,
Valladolid, Vigo og Zaragoza.
• Leikið veröur á 17 leik-
vöngum. Notaóir veröa tveir
leikvangar í Madrid, Barcel-
ona og Sevilla.
• Háóir veróa þrír leikir á
hverjum leikvangi nema á FC
Barcelona-leikvangi, þar sem
einnig munu fara fram setn-
ingarleikur HM og einn leikur
í undanúrslitum og á Santi-
ago Bernabéu-leikvangi, þar
sem einnig fer fram úrslita-
leikur heimsmeistarakeppn-
innar.
• Leikvangarnir í La Coruna,
Gijón, Oviedo, Valladolid,
Vigo og Zaragoza eru eign
viökomandi borgarráóa. Hinir
eru í eigu vióeigandi knatt-
spyrnufélaga.
Knattepyrnulið Kamerún. Spáð neðata aæti 11. riðlL
Landslið El Salvador sem leiknr I keppninni. Liðinn er spáð neðsta sæti í 3.
riðli.
Landslið Nýja Sjálands leikur með sterkum þjóðum í 6. riðli og á ekki mikla
möguleika.
• Landslið Kuwait leikur gegn Englendingum, Frtfkkum og Tékkum i
fjórða riðli. Mjðg ólíklegt þykir að liðinu takist að standa í þessum sterku
knattspyrnuþjóðum. Það verður því hlutskipti liðsins að verma neðsta sætið í
riðlinum. En ef vel skyldi ganga þá hljóta leikmenn ríflega þóknun fyrir. Bíla
og hús o.fl. Enda nóg til af aurum hjá olfufurstunum í Kuwait.