Morgunblaðið - 12.06.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982
23
• Mario Kempes, lengat til hcgri, nkorar fyrsta mark Argentinu gegn
Hollandi í úrslitaleik síðustu HM-keppni. Kempes hreppti hvor tveggja
sérverðlaun þau, er Adidas og franska tímaritið France Football veittu.
Hverjir hreppa
gullskóinn og
gullknöttinn???
MÖRG aukaverðlaun verða veitt í
tengslum við HM-keppnina á Spáni.
Adidas og franska timaritið France
Football standa að þeim veglegustu.
Gullknðtturinn
Þrír knettir, cinn úr gulli, annar úr
silfri og sá þriðji úr bronsi fara til
þeirra þriggja leikmanna HM-
keppninnar sem um 6000 frétta-
menn kjósa bestu leikmenn móts-
ins. Það eru engir aukvisar sem
hreppt hafa verðlaun þessi áður, í
Argentínu fyrir fjónim árum var
Mario Kempes kjörinn besti leik-
maðurinn, Paolo Rossi næst besti og
Brasilíumaðurinn Jose Dirceu þriðji.
Það þarf ekkert að kjósa um sig-
urvegarana í hinni greininni sem
Adidas og franska ritið veita verð-
laun til. Það er markakóngstitill
mótsins sem um ræðir og auðvitað
velja þeir sig sjálfir. Síðast
hreppti Mario Kempes gullskóinn,
Rob Rensenbrink silfurskóinn og
Perúmaðurinn Teofilo Cubillas
bronsskóinn. Þar sem þátttöku-
þjóðirnar eru að þessu sinni mun
fleiri en áður má búast við því að
markaskorararnir skori fleiri
mörk en nokkru sinni fyrr.
Gullskórinn, ein eftirsóttustu verðlaun sem veitt eru i knattspyrnuheiminum.
Hver hlýtur þau á HM-827
Séð inn í hinn glæsilega langferðavagn, Pegaso.
Fótboltarnir á HM á Spáni í sumar:
Boltarnir heita „Tango Esp-
ana“ og eru ekkert rusl!
Frá Helgu Jónsdóttur, fréttaritara
Mbl. í Burgos á Spáni.
FÓTBOLTINN „Tango-Espana“,
gerður af fyrirtækinu Adidas, verður
hinn viðurkenndi knöttur heims-
meistarakeppninnar á Spáni í sumar.
„Tango-Espana“ er enn betri og
vandaðri en „Tango-Riverplate“,
sem notaður var á HM í Argentínu
1978 og er gerð hins fyrrnefnda mik-
ilvæg tæknileg framför.
Knötturinn, sem ætlaður er til
notkunar á HM í sumar, er unninn
úr bestu fáanlegum hráefnum. Leit-
að hefur verið margra aðferða og
gerður fjöldi tilrauna, þannig að
boltinn standist fyllilega ströngustu
og ólíkustu kröfur: gott viðnám við
hita, sé fullkomlega vatnsþéttur, iög-
un hans breytist ekki, skjót viðbrögð
o.s.frv.
Til þess að ná þessum árangri
hefur verið nauðsynlegt að gera
margvíslegar breytingar með til-
liti til „Tango-Riverplate". Leður
það, sem notað er í „Tango-
Espana" er miklu mýkra og teygj-
anlegra. Þetta leyfir betra sam-
band/ snertingu við fótinn. í sam-
vinnu við sútara hefur tekist að
gera leðrið fullkomlega vatnshelt.
Til þess að fullvissa um stöðug-
leika lögunar knattarins og koma í
veg fyrir afmyndun leðursins, hef-
ur knötturinn verið styrktur með
polyester.
Leðrið er sérstaklega verndað
gegn eyðslu vegna mikils hita og
sliti af öðrum toga spunnu. Saum-
ar (með eins árs tryggingu) eru
allir handunnir og algjörlega
vatnsþéttir.
Hin ýmsu efni í boltanum gefa
að hann er mjúkur og þægilegur
viðkomu, léttur og hraður og auð-
veldur viðfangs.
Síðustu skref í framleiðslu bolt-
ans eru: mæld heildarþyng hans,
hreinsun, saumar gerðir vatns-
þéttir, boltinn merktur og loks
endurskoðun á lögun hans með
hjálp rafeindatækis.
Boltar af „Tango“-gerð hafa
verið notaðir á flestum heimsmót-
um síðan 1978. Má nefna heims-
meistarakeppnina það ár í
Argentínu, úrslitaleiki í Evrópu-
keppnum 1979, 1980 og 1981 og
Ólympíuleikana í Moskvu 1980.
Með tilkomu nýja Tango-bolt-
ans, „Tango-Espana“, eru allir
sammála um að það verða engar
tuðrur, sem leikmenn HM á Spáni
í sumar munu sparka á milli sín.
„Pegaso HM-82“
Frá Helgu Jónsdóttur, frétta-
ritara Mbl. í Burgon, Spáni.
Áætlunarbílar, sem notaðir verða
til að flytja leikmenn milli staöa á
HM í sumar, eru af Pegaso-gerð.
Fékk Pegaso fyrstu verðlaun í al-
þjóðlegri samkeppni flutningstækja
á landi í Nice í maímánuði i fyrra.
Aætlunarbílarnir, með flóknum
vélabúnaði og tígulegir að utan,
eru sérstaklega glæsilegir og út-
búnir ótrúlegum þægindum að
innanverðu. Auk notalegra,
mjúkra sæta (svipuð og í flugvél-
um), sem mögulegt er að breyta
um stellingar í, eru allir vagnarnir
útbúnir litlum hvíldarsal, baði,
bar og tveimur sjónvarpstækjum,
öðru framarlega í vagninum og
hinn í salnum og er hér um að
ræða myndbönd.
Það var einmitt degi fyrir kynn-
ingu vagnsins í Barcelona, í maí á
síðastliðnu ári, að hann var kynnt-
ur á „Viku áætlunarbílsins" í Nice,
mikilvægustu sýningu hvað varð-
ar farartæki til farþegaflutninga
á vegum. Og þegar á þessari fyrstu
kynningu var Pegaso HM-82 verð-
launaður með gullorðu Nice-
borgar er veitt var fulltrúum
fyrirtækisins Enasa með hátíð-
legri athöfn í ráðhúsi höfuðborgar
Cote d’Azure.
Einnig hefur sérhæfða tímaritið
„Freeway" veitt vagni HM eina af
sínum aðalviðurkenningum.
Pegaso HM-82, sem kynntur var
í Barcelona, er málaður í fánalit-
um Argentínu, núverandi heims-
meistara í knattspyrnu, og vagn-
inn, kynntur í Nice, er málaður í
fánalitum Spánar.
Allt gler í vögnunum er græn-
málað. Þeir hafa að geyma m.a. 32
sæti (hallanleg) með flauels-
áklæði, lítinn sal til afþreyingar
þar sem komast fyrir 7 manns. í
salnum er baðherþergi, bar og ís-
skápur. Fullkomin stereo-
hljómflutningstæki auk sjón-
varpstækjanna eru í öllum vögn-
unum. Aklæði er á veggjum og
lofti, og teppi á gólfum.
Pegaso-flotinn, reiðubúinn til
þjónustu fyrir liðin 24 á HM í
sumar, er „bættur" með litlum 17
sæta vagni og sendibíl undir far-
angur.