Morgunblaðið - 12.06.1982, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1982
11x11 heimsmeistarar
í 50 ára sögu HM-keppninnar
HM-keppnin á Spáni í sumar er
tólfta lokakeppni sem fram fer frá
upphafi HM-keppninnar í knatt-
spyrnu. Ellefu sinnum hafa því 11
leikmenn stadið uppi sem heims-
meistarar í lok úrslitaleikja. Við
skulum hér til gamans rifja upp úr-
slitaleikina frá upphafi, úrslit þeirra
og ýmislegt fleira.
Fyrsta HM-keppnin fór fram í
Uruguay og heimamenn báru sig-
ur úr býtum, þeir sigruðu Argent-
ínumenn 4—2. Þetta var árið 1930.
80.000 áhorfendur sáu Scarone,
Castro, Vae og Iriarte- skora mörk
Uruguay gegn mörkum þeirra
Peucelle og Stabile fyrir Argent-
ínu.
1934 var leikið á Ítalíu og aftur
var það heimaliðið sem sigraði, ít-
Titkos svöruðu fyrir Ungverja.
Uruguay-menn hrepptu annan
HM-titil sinn í fjórðu keppninni
sem fram fór í Brasilíu árið 1950.
Að þessu sinni fór enginn úrslita-
leikur fram, heldur hrepptu Uru-
guay-menn titilinn vegna þess að
eftir að keppni var lokið í fjórum
riðlum, voru þeir eina sigurliðið úr
þeirri keppni sem ekki tapaði leik.
Hin liðin, Brasilía, Spánn og Sví-
þjóð töpuðu öll leikjum í riðla-
keppninni þó svo að þau hafi sigr-
að hvert í sínum riðli.
Vestur-Þjóðverjar sigruðu í
fimmtu HM-keppninni sem fram
fór í Sviss 1954. Þeir sigruðu
Ungverja 3—2 að 65.000 áhorfend-
um viðstöddum. Rahn (2) og Mor-
lock skoruðu mörk Þýskalands, en
• Tékkinn Jelinek sækir ad brasilíska markinu í úrslitaleiknum í Chile
1962.
alir lögðu Tékka að velli með 2
mörkum gegn 1. Framlengingu
þurfti til þess að fá úrslit. 40.000
manns fylgdust með þeim Schi-
avio og Orsi skora mörk ítala, en
Puc svara fyrir Tékka.
Þriðja lokakeppnin fór fram í
Frakklandi og aftur sigruðu ítalir.
Að þessu sinni sigruðu þeir Ung-
verja 4—2 í úrslitaleiknum að
60.000 áhorfendum viðstöddum.
Piola og Colaussi skoruðu tvö
mörk hvor fyrir ítali, en Sarosi og
þeir Puskas og Czibor mörk Ung-
verja.
Brasilíumenn unnu svo titilinn í
fyrsta skiptið árið 1958, er keppn-
in fór fram í Svíþjóð. Heimaliðið
gerði sér lítið fyrir og komst í úr-
slit, en Brasilíumenn sigruðu í úr-
slitaleiknum 5—2. Vava (2), Pele
(2) og Zagalo skoruðu mörk Bras-
ilíumanna, en þeir Liedholm og
Simonson svöruðu fyrir Svía sem
áttu aldrei möguleika. Pele skaust
þarna upp á stjörnuhimininn.
Áhorfendur voru 50.000.
1966 fór keppnin fram í Eng-
landi og eins og oft áður og eftir,
var það heimaliðið sem tók titil-
inn. Englendingar sigruðu Vest-
ur-Þjóðverja 4—2 í frægum úr-
slitaleik. I annað skiptið í sögunni
þurfti að framlengja og í fyrsta
skiptið skoraði leikmaður þrennu,
en Geoff Hurst vann það afrek
fyrir England. Martin Peters
skoraði fjórða mark Englands, en
Weber svaraði fyrir Þjóðverja.
Áhorfendur á Wembley voru
97.000.
107.000 talsins, mesti áhorfenda-
fjöldi á úrslitaleik fyrr og síðar.
Árið 1974 fór keppni fram í
Vestur-Þýskalandi og rétt einu
sinni var það gestgjafinn sem var
ekki gestrisinn hvað varðaði sig-
urlaunin, Þjóðverjarnir sigruðu
Hollendinga 2—1 í úrslitunum og
var leikurinn einkum frægur fyrir
þær sakir að Holland náði forystu
úr vítaspyrnu eftir að tæplega
mínúta var liðin af leiknum. Gerd
Muller og Paul Breitner skoruðu
mörk Þýskalands, en Johan
Neeskens skoraði fyrir Holland.
Áhorfendur voru 80.000.
Hollendingar voru aftur í úrslit-
um í Argentínu 1978, en heima-
menn urðu þriðja gestgjafaþjóðin
í röð til að vinna titilinn. Argent-
ína sigraði Holland 3—1 í úrslita-
leiknum eftir framlengdan leik.
Mario Kempes (2) og Daniel Bert-
oni skoruðu mörk Argentínu, en
Dick Nanninga skoraði fyrir Hol-
land. Áhorfendur voru 78.000.
Brasilíumenn tefldu fram mik-
illi knattspyrnusýningu er þeir
unnu HM-titilinn í þriðja skiptið í
sögu sinni árið 1970 í Mexíkó. Þeir
voru hreint óstöðvandi og sigruðu
Itali 4—1 í úrslitunum. Pele, Ger-
• Mario Kempes fagnar öðru marki sinu og Argentínu i siöasta úrslitaleikn-
um í Buenos Aires gegn Hollandi 1978, en Argentína vann þann leik 3—1.
• Frá viðureign Þjóðverja og Ungverja í Bern 1954. Þjóðverjinn Morlock,
nr. 7, sækir að ungverskum leikmanni. Morlock skoraði einmitt þriðja mark
Þýskalands.
Sjöunda HM-keppnin fór fram
1962 í Chile og aftur unnu Bras-
ilíumenn, enda komnir í fremstu
röð. Tékkar voru nú í annað skipt-
ið í úrslitum, en þeir áttu aldrei
möguleika gegn Brasilíumönnun-
um sem sigruðu 3—1. Vava, Am-
arildo og Zito skoruðu mörkin, en
Masopust svaraði fyrir Tékka.
Áhorfendur að þessu sinni voru
tæplega 70.000.
son, Jairzhino og Alberto skoruðu
mörk liðsins, en Boninsegna svar-
aði fyrir ítali. Áhorfendur voru
HM í knattspyrnu:
Sprengja
verðlag á
Fri Helgu Jónndóttur, frélUritara Mbl. í Burgos, Spáni:
VITASKULD mátti búast við því
að margar neikvæðar hliðar við-
víkjandi heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu kæmu í ljós.
Meðal þeirra leiðindamála vegna
HM sem þegar hafa skotið upp
kollinum, er hækkað verðlag á
ýmsum sviðum (gisting,
skemmtistaðir, matur, minja-
gripir ...). Líklega verða þó
Spánverjar og ferðamenn, stadd-
ir í borgum þar sem keppni fer
fram, verst fyrir barðinu á þess-
um tímabundnu verðhækkunum.
Misbeiting og brask hóteliðn-
aðarins á Spáni dagana sem HM
fer fram eiga eftir að leika
margan grátt. Mikill hluti
spænsks iðnaðar mun græða á tá
og fingri í sumar, þökk sé heims-
meistarakeppninni. Nær allir
hóteleigendur hugsa sér HM sem
viðskipti aldarinnar og eru stað-
upp allt
gistingu
falt hærra verð fyrir herbergi en
venja er. Ekki er nóg með það,
heldur verður gesturinn að fara
eftir skilyrðum hótelsins, sem er
takmörkun dvalartímans!!
Þetta kemur sérstaklega illa
niður á blaðamönnum og öðrum
starfsmönnum fjölmiðla. Slíkt
fyrirkomulag heftar mjög starf
þeirra. Blaðamenn erlendis frá
hafa kvartað yfir þessu „villi-
mannlega braski“ eins og þeir
kalla það að heimila ekki eins
langa dvöl á hóteli og hverjum
og einum þóknast eða nauðsyn
krefur atvinnu þeirra vegna.
Ekki eru það eingöngu hótel-
eigendur er sjá gull og græna
skóga út af HM. Eigendur ann-
arra fyrirtækja; verslana, veit-
ingahúsa, skemmtistaða ... sofa
líklegast vel þessa dagana rétt
ráðnir i að nýta sér þetta ein-
stæða tækifæri út í ystu æsar. —
Hvernig? Sprengja upp allt
verðlag á gistingu, fæði og ann-
arri þjónustu hótelanna.
Spænsku hótelin hafa ákveðið
ógnarlega verðhækkun og sett
skilyrði, er varla verða talin
hagstæð viðskiptavinunum. Það
verður gjörsamlega vonlaust að
kvarta. Ferðamaðurinn á ekki
annarra kosta völ en að sam-
þykkja skilmála hótelsins. Ann-
ars má hann bara hætta við
dvölina og missa þannig e.t.v. af
heimsmeistarakeppninni.
Ekkert aukaeftirlit opinberra
aðila á verðlagi vegna HM gerir
hótelunum kleift að leika lausum
hala í þessu efni. Ferðamaður,
sem gistir á hóteli í einhverri
keppnisborginni, greiðir marg-
• Þótt ekki vanti áhorfendurna á þessari mynd, eru Spánverjar ekki allir
jafnhrifnir af heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu. Stór hluti þjóðarinnar
mun meira að segja gera allt til að „flýja“ keppnina. Sumir verða þó heima
og reyna að græða á henni.
fyrir HM og dreymir skínandi
bjarta daga framundan í við-
skiptum.
Hér flýtur ósköp einfalt dæmi
með ... verð á íspinna, sem er 40
pesetar núna, verður sennilega
70—80 pesetar í júní og júlí og
svo aftur 40 pts. í ágúst...
Skipulagsnefnd HM, í sam-
vinnu við Mundiespana, hefur
ákveðið að skerast í leikinn og
ræða við viðkomandi aðila, til
þess að finna skynsamlega lausn
á þætti, er varðar heimsmeist-
arakeppnina og sem þegar hefur
byrjað að hafa neikvæð áhrif á
ímynd Spánar og undirbúning
Spánverja fyrir HM.