Morgunblaðið - 12.06.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982
27
• Markakóngurinn f fyrstu
keppninni 1930 f Uruguay,
varó Argentínumaðurinn
Guillermo Stabile. Hann var
25 ára þegar hann vann afrek-
ið og skoraöi 8 mörk, þar af
eitt í úrslitaleiknum er liö
hans tapaði 2—4 gegn Uru-
guay.
• Á Ítalía árið 1934. Odrich
Nejedly, 25 ára gamall, skor-
aði fimm mörk fyrir land sitt,
Tékkóslóvakíu. Og með þess-
um fimm mörkum átti hann
stóran þátt í því að land hans
varð í öðru sæti í keppninni á
eftir Ítalíu.
• Brasilíumaðurinn Leonidas
da Silva vann titilinn árið 1938
er keppnin fór fram í Frakk-
landi. Silva þótti mjög sleipur
framherji og skoraöi átta
mörk. Þrátt fyrir það varö
Brasilía í þriðja sæti í keppn-
inni.
• Áriö 1950 kom þaö aftur f
hlut Brasilíumanns að hljóta
titilinn markakóngur HM.
Ademir, 28 ára gamall fram-
herji, skoraöi sjö mörk og lék
varnarmennina oft grátt.
Hann starfar nú sem íþrótta-
fréttaritari í Brasilíu.
I
• í Sviss árið 1954 skoraöi
hinn frægi leikmaöur Ung-
verja, Sandor Kocis, ellefu
mörk, flest með skalla. Þessi
25 ára gamli leikmaöur fékk
því viðurnefnið „Gullskall-
inn“. Kocis lék lengi meö
Honved Budapest er liðiö var
upp á sitt besta.
16 leikmenn
og 108 mörk
• Þeirra verður oft dýrðin og Ijóminn. Þeir gefa heims-
meistarakeppninni alltaf sérstakt andrúmsloft, marka-
kóngarnir. Fram að þessu hafa sextán leikmenn getað
státað af markakóngstitli Heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu. Sextán leikmenn hafa skorað 108 mörk.
Þegar þessi samantekt var gerð kom í Ijós aö flestir
þeirra voru 25 ára gamlir þegar þeir virtust standa á
hátindi frægöarinnar. Allavega flestir þeirra. Við kynn-
um markakónga HM-keppninnar frá upphafi vega.
• Just Fontaine, Frakklandi,
vakti mikla athygli f Svíþjóð
1958 er keppnin fór þar fram.
Hann varö markakóngur,
skoraöi 13 mörk. Fontaine var
25 ára gamall og þótti á þess-
um árum vera einn besti
knattspyrnumaöur heimsins.
• Áriö 1962 fór keppnin fram
í Chile. Þar urðu sex leik-
menn efstir og jafnir í marka-
skorun. Allir skoruðu þeir
fjögur mörk. Þeir voru: Albert,
Ungverjalandi, Garrincha,
Brasilíu, Ivanov, Rússlandi,
Jerkovic, Júgóslavíu, Sanch-
ez, Chile, (sjá mynd) og Vava,
Brasilíu.
• Pólverjinn Gregorz Lato,
sem leikur með Arnóri hjá
Lokeren, varð markakóngur
HM-keppninnar í V-Þýska-
landi árið 1974. Honum tókst
að koma knettinum sjö sinn-
um framhjá markvörðum og
Pólland náði þriðja sæti. Lato
var þá 24 ára gamall.
• Mario Kempes, 24 ára
gamall Argentínumaður, varð
markakóngur árið 1978 er
leikiö var í heimalandi hans.
Hann skoraði sex mörk. Jafn-
framt var hann valinn leik-
maöur keppninnar. Kempes
þótti fara á kostum í úrslita-
leiknum er liö hans vann Hol-
lendinga.
• Þar til fyrir 11 árum voru
þetta sigurlaunin fyrir að
vinna HM-titilinn. Þessi
glæsilegi bikar ber heitið
„Coupe Jules Rimet“ og árið
1970 unnu Brasilíumenn hann
til eignar, en þá unnu þeir
hann í þriðja skiptið. Síðan í
Vestur-Þýskalandi 1974 hefur
því nýr og ekki síöur glæsi-
legur gripur verið í umferð.
Spurning er hvaða þjóð nær
að vinna hann til eignar...
• V-Þjóðverjinn Gerd MUIIer
er einn marksæknasti
knattspyrnumaður sem sögur
fara af. 25 ára gamall varð
hann markakóngur
HM-keppninnar í Mexíkó árið
1970. Hann var kallaður „Der
Bomber“. Hann skoraði 10
mörk í Mexíkó. Alls skoraöi
MUIIer 68 mörk í landsleikjum
fyrir V-Þýskaland og það sem
meira er, í aöeins 62 leikjum.
Hann var í forystusveit Bay-
ern MUnchen er liöið varö þrí-
vegis Evrópumeistari í
knattspyrnu. Fjórum sinnum
Þýskalandsmeistari. Fjórum
sinnum bikarmeistari og loks
var það Gerd MUIIer sem
skoraöi sígurmark V-Þýska-
lands árið 1974 er liðið varð
heimsmeistari, vann Holland
2—1, í úrslitaieiknum.
• Árið 1966 fór keppnin fram í Englandi. Þá hreppti Portúgal-
inn Eusebio da Silva Ferreira titilinn. Hann var kallaður Pele
Evrópu. Eusebio var frá Mozambique. Þetta ár var hann kjör-
inn knattspyrnumaöur Evrópu, aöeins 24 ára gamall. Eusebio
skoraði níu mörk í keppninni í Englandi og kom verulega á
óvart fyrir snilli sfna, jafnframt sem hann skoraði grimmt.
Portúgal náði þriðja sæti í keppninni f Englandi, og var Euseb-
io mest þökkuð sú frammistaða.
I