Morgunblaðið - 12.06.1982, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982
Stérstjarnan Diego Maradona:
Lipur eins og
ballettdansari
á knattspyrnuvellinum
Knattspyrnufélagið Juventus frá
Ítalíu er tilbúið að greiða litlar 27
milljónir marka fyrir argentínska
knatLspyrnusnillinginn Diego Mara-
dona. Barcelona, Evrópumeistarar
bikarhafa, eru tilbúnir að greiða enn
hærri fjárupphæð fyrir Maradona og
bjóða honum að auki 10 milljónir
marka í vasapeninga!
Fyrsta, annað og hver er tilbúinn
að borga best í „tilboði aldarinnar"
fyrir hinn skapmikla Maradona,
sem í dag er aðeins 21 árs gamall?
I*eirri spurningu verður ef til vill
svarað að lokinni heimsmeistara-
keppninni á Spáni og eitt er víst að
Maradona á eftir að hækka enn í
verði, sérstaklega ef frammistaða
hans verður góð í heimsmeistara-
keppninni.
Diego Maradona, svarthærður
með úfinn koll, mun brátt „synda í
peningum".
Ekki er hægt annað en segja að
knattspyrnuferill hans hafi verið
ævintýri líkastur: hann er sonur fá-
tæks mylluverkamanns, en varð á
einni nóttu „skurðgoð“ heillar þjóð-
ar og er í dag dýrkaður af knatt-
spyrnuáhugamönnum um gjörvallan
heim.
Margir eru þeirrar skoðunar, og
þar með Maradona sjálfur, að
hann hafi ekki fengið nógu mikið
fyrir sinn snúð. Auk þess telur
hann að sér hafi ekki verið sýndur
nægilegur sómi.
Ekki alls fyrir löngu lét Mara-
dona heyra í sér í fjölmiðlum: „Ég
get ekki meira. Ég ætla að leggja
• Dwgo Maradona
skóna á hilluna. Það er margt fólk
sem vildi helst sjá mig dauðan."
Hvernig stendur á því að Mara-
dona lætur hafa eftir sér þessar
örvæntingarfullu yfirlýsingar?
Þessi sterku tilfinningalegu við-
brögð Maradona má að hluta
rekja til þess atviks þegar safnari
eiginhandaráritana móðgaði
kappann á dögunum í Buenos Air-
es. Maradona hafði þá nýlokið við
að gefa ónefndum safnara nafn
sitt á bréfsnepil þegar sá hinn
sami hrópaði að Maradona: „Hve
mikið færðu fyrir að skrifa þessa
eiginhandaráritun, þú hóruson-
ur?“ Eðlilega brást Diego hinn
versti við og sló náungann í göt-
una. Dómstólum í Argentínu
fannst þetta þó ekki eins eðlilegt
og okkur og hann fékk fjögurra
mánaða skilorðsbundinn dóm.
Eitt eiga allir andstæöingar
Maradona á knattspyrnuvellinum
sameiginlegt: þeir óttast hann
eins og heitan eldinn. Leikni hans
með knöttinn þykir með eindæm-
um og auk þess er hann hug-
myndaríkur og úrræðagóður þeg-
ar hann er undir „pressu". Það er
engu líkara stundum en að hann
geti talað við boltann, slík er
tækni hans. Hann virðist geta
bókstaflega allt með knöttinn og
enginn getur spyrnt eins vel með
hælnum og hann.
Þegar Diego Maradona leikur á
hvern andstæðinginn á fætur öðr-
um syngja aödáendur hans á
áhorfendapöllum: „Y ya lo ve, Y ya
lo ve, Es Maradona y su ballet,“
sem merkir: „Hér getið þið séð
það, hér getið þið séð það, Mara-
dona dansa ballet.“
Diego Maradona fæddist i þenn-
an heim 30. október 1960 í Lanis,
sem er úthverfi í norðurhiuta
Buenos Aires. Hann er yngstur
fimm systkina. Sinn fyrsta fót-
bolta fékk hann tveggja ára gam-
all frá Diego Maradona, föður sín-
um. Strákurinn skildi boltann
aldrei við sig hvert sem hann fór.
Hann tók hann alltaf með sér í
rúmið og sofnaði þá gjarnan með
hann í fanginu, var haft eftir
stoltum föður hans ekki alls fyrir
löngu í blaðaviðtali.
Viku áður en hann varð sextán
ára gamall lék hann sinn fyrsta
deildarleik fyrir félag sitt, Arg-
HEIMSLIÐ í KNATTSPYRNU, það er hægara sagt en gert að velja heimslið í knattspyrnu. Sitt sýnist hverjum.
ítalskir íþróttafréttamenn völdu fyrir skömmu óskalið sitt og er það hér að ofan. Það er svona skipað. Markvörður:
Zoff, Ítalíu. Varnarmenn: Gentile, Ítalíu, Pezzey, Austurríki, Junior, Brasilíu, Passarella, Argentínu. Miðvallarleik-
menn: Schuster, V-Þýskalandi, Zico, Brasilíu, Maradona, Argentinu. Framherjar: Rummenigge, V-Þýskalandi, Hrub-
esch, V-Þýskalandi, og Blokhim, Rússlandi. Nú getið þið sest niður og valið ykkar óskalið.
entinos Juniors. Hann kostaði fé-
lagið ekki nema 1000 krónur ís-
lenskar. Félag hans, Argentinos
Juniors, gafst hins vegar fljótt
upp á hinni ört vaxandi stjörnu.
Hann var leigður til tveggja ára
til Boca Juniors fyrir 23 milljónir
marka. í sinn hlut fékk Maradona
fimm milljónir marka.
Eins og áður hefur komið fram
er æviferill þessa knattspyrnu-
snillings þeirra Argentínumanna
ævintýri líkastur. Þrátt fyrir það
er hetjan í þessu ævintýri ekki
hamingjusamur maður. Að hans
sögn er það vegna þess að hann á
sér alltaf fleiri og fleiri öfundar-
menn í röðum aðdáenda sinna.
Maradona hefur margsagt, að
hann hafi enga ánægju af því
lengur að leika knattspyrnu í sinu
heimalandi, Argentínu. Maradona
hefur einnig átt í útistöðum við
landsliðsþjálfara Argentínu, Ces-
ar Luis Menotti, og um tíma leit út
fyrir að Menotti vildi ekkert með
Maradona hafa og hótaði jafnvel
að setja hann út úr liðinu. Þeir
sættust þó um síðir og Diego
Maradona mun því leika lykilhlut-
verk hjá argentínska landsliðinu í
knattspyrnu í heimsmeistara-
keppninni á Spáni í þessum mán-
uði, þar sem að Argentínumenn
freista þess að halda heimsmeist-
aratitlinum frá 1978.
pnmr
íþróttaskór
fyrir alla fjölskylduna
Mikíð úrval.
Ennfremur íþróttagallar, œf-
ingagallar.
_ Allt til íþrótta.