Morgunblaðið - 12.06.1982, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982 3 5
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
} húsnæöi :
[ óskast :
Reglusömum hjónum
vantar 2ja—3ja herb. íbúö.
Góöri umgengni heitiö.
Uppl. i s. 11051.
Útivistardagur
fjölskyldunnar:
Sunnudaginn 13. júní
a. Kl. 10.30 Skálafell á Hellis-
heiöi — Gamla þjóöleiöin —
Pylsuveisla.
b. Kl. 13.00 Gamla varöaöa
leiöin um Hellisheiöi — Hellukot-
inn — Draugatjörn — Pylsu-
veisla. (6—7 km.) Aöalfararstjóri
verður Jón I. Bjarnason (sjón-
varpsjjátturinn um Hellisheiöi
var meö honum). Verð kr.
100.00. Börn greiða kr. 20.00.
Pylsuveislan er innifalin i verö-
inu. Ath.: Tilvalið fyrir alla fjöl-
skylduna aö vera meö. Fariö
veröur í leiki, spilaö og sungiö.
Fariö frá BSl aö vestanveröu.
Sjáumst!
c. Afh.: Þórsmerkurferöin fellur
niöur.
Sumarleyfísferöir:
a. Við Djúp og Drangjökul í
miönætursól. 17.—20. júni.
Fuglaparadísin Æöey o.fl.
b. Hornstrandir j júlí. Margir
möguleikar. Uppl. og farseölar á
skrifst. Lækjarg. 6a, s.: 14606.
Útivist
Konur kvenfélaginu
Heimaey
Þær sem ætla í sumarferöina 19.
og 20. júní, muniö aö tilkynna
þátttöku sem fyrst til Pálínu
83932 og til Önnu 81248. Huldu
35468 og Perlu 51548.
Heimatrúboöið
Óðinsgötu 6a
Almenn samkoma á morgun.
sunnudag, kl. 20.30. Alllr vel-
komnir.
>»
Sálarrannsókna-
félag íslands
Eileen Roberts heldur hlut-
skyggni- og skyggnilysingafundi
á vegum félagsins aö Hallveigar-
stööum sunnudaginn 13. júni og
þriöjudaginn 15. júni kl. 20.30.
Aögöngumiöar seldir viö inn-
ganginn.
Elím, Grettisgötu 62,
Reykjavík
Á morgun, sunnudag, veröur al-
menn samkoma kl. 11.00. At-
hugiö breyttan samkomutíma.
Verið velkomin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Göngudagur Ferða-
félags íslands
sunnudaginn 13. júní
Gangan hefst á veglnum hjá
Jósepsdal, nokkru fyrlr sunnan
Litlu kaffistotuna. Gengiö veröur
um Jósepsdal, Ólafsskarö og
austur fyrir Sauöadalahnúka og
þaöan aö upphafsstað. Aætluö
gönguleiö er 10 km.
Farið veröur frá Umferöarmiö-
stööinni austanmegin kl. 10.30 og
kl. 13.- Verö frá kr. 50 - Frítt fyrlr
börn í fylgd fullorölnna. Þátttak-
endur geta einnig komiö á eigin
bílum og tekið þátt í göngunnl.
Feröafélag íslands.
raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar
Aðalfundur
Sölusambands íslenzkra fiskframleiöenda
verður haldinn aö Hótel Sögu dagana 15. og
16. júní nk. Fundurinn hefst 15. júní kl. 19.15
f.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Lagabreytingar.
Stjórn Sölusambands ísl. fiskframleiöenda.
Auglýsing um
löggildingu á vogum
Athygli skal vakin á því aö óheimilt er að nota
vogir við verzlun og önnur viöskipti, án þess
aö þær hafi hlotiö löggildingu af Löggild-
ingarstofunni.
Sama gildir um fiskverkunarstöðvar og iön-
aö, þar sem vogir eru notaðar í þessum
tilgangi.
Löggildingarstofa ríkisins,
12. júní 1982.
Auglýsing um lögtök
vegna fasteigna- og
brunabótagjalda í
Reykjavík
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald-
heimtunnar í Reykjavík og samkvæmt fó-
getaúrskurði, uppkveönum 8. þ.m. verða lög-
tök látin fram fara til tryggingar ógreiddum
fasteignasköttum og brunabótaiögjöldum
1982.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, ásamt
dráttarvöxtum og kostnaöi, hefjast aö 8 dög-
um liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
verði þau eigi aö fullu greidd innan þess tíma.
Gjaldheimtan i Reykjavík, 8. júní 1982.
Útboð — húsgögn
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar
óskar eftir tilboöum í húsgögn í menningar-
miöstöö við Geröuberg, útboösgagna má
vitja á skrifstofu VB, Suðurlandsbraut 30. Til-
boö verða opnuð 25. júní nk.
Framkvæmdanefnd
byggingaráætlunar.
Útboð
Tilboð óskast í lögn hitaveituæöar, frá Brunni
viö Hringbraut, að Brunni aö mótum Suður-
götu og Starhaga.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri aö
Fríkirkjuvegi 3, gegn 150 kr. skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuö á sama stað, miöviku-
daginn 30. júní nk. kl. 11.00 f.h.
Tnnkaufastofnun reykjavíkurborgar
Frikirkjuvegi ð — Simi 25800
Til sölu
Raöhús í Borgarnesi til sölu á tveimur hæö-
um meö bílskúr 110 fm hver hæö, til greina
kæmi að taka nýlegan vörubíl upp í. Upplýs-
ingar í síma 93-7647.
Til sölu
Potain byggingakrani á hjólum, einnig fyrir
teina. Uppl. í síma 96-71333 og 96-71473.
Minning:
Guðbjörg Aðal-
heiður Jónasdóttir
Fjölmennt þing
JC á Selfossi
Fædd 1. nóvember 1902.
Dáin 4. júní 1982.
Hún var fædd að Fíflholti Suð-
urhjáleigu — síðar Hátúni — í
Vestur-Landeyjum, og átti þar
heima alla sína ævi. Foreldrar
hennar voru Sesselja Guðmunds-
dóttir og Jónas Jónsson, búandi að
Fíflholti, Suðurhjáleigu. Ólst hún
þar upp, elzt þriggja systkina, og
yngri frænda og fósturbróður.
Ung varð hún foreldrunum ómet-
anleg stoð og styrkur í harðri
lífsbaráttu fyrri tíma. Mátti segja
að hún vekti yfir hverju spori
þeirra, hverju atviki í lífi þeirra,
hvort sem hún var stödd heima
eða að heiman. Hélst svo til ársins
1959, er Sesselja móðir hennar
kvaddi þennan heim. Frá þeim
tíma stóð Guðbjörg fyrir búi í
stórum stíl heima að Hátúni,
ásamt frænda sínum og fóstur-
bróður, Einari Guðmundssyni.
Vann hún þar sannarlega með
ráðum og dáð meðan kraftar
leyfðu — og jafnvel enn lengur.
En síðari árin var heilsa hennar
meira og minna brostin. Var hún
um skeið vistmaður í Hveragerði,
og síðar að Elliheimilinu að Hellu
á Rangárvöllum, þar sem hún bar
beinin.
Með Guðbjörgu Jónasdóttir er
gengin systir, sem bæði mér og
öðrum kunnugum er ljúft að
minnast. Hún var kona vel greind
og kunni á mörgu skil, þótt
menntunar hefði lítt notið. Hún
unni ljóðum og söng og átti und-
urfagra rithönd. Trúuð var hún og
á annað lif, æðri veröld og völd, í
björtustu merkingu orðsins. Hún
gekk að jafnaðí ákveðin og óskipt
að starfi, og þess vegna varð hlut-
ur hennar svo hár í þjónustunni
við lífið.
Haustið 1925 réðst Guðbjörg
Jónasdóttir sem vetrarstúlka til
okkar hjóna að Bergþórshvoli í
Landeyjum. Samtals urðu það 15
vetur, sem hún gegndi slíkri þjón-
ustu í okkar garði, og þar að auki 2
sumur í veikindaforföllum hús-
freyjunnar. Mátti segja að hún
yrði með þessari miklu þjónustu
sem ein úr fjölskyldunni og dætr-
um okkar sem önnur móðir. Fyrir
allt það, sem hún var okkur og
vann árin mörgu, færum við öll
meiri og dýpri þakkir en orðin ein
geta túlkað til fulls.
„Svo vertu kvödd med hrvggóarblöndu
hrósi.
Ver hermum Drottni lof, er tók og (jaf.
Öll lífsins straumvötn hverfa ad einum
ósi,
i undra, sa inn guAlegt dýrdarhaf.**
GuÖ blessi Guðbjörgu, ávexti
þjónustunnar og förina til hærri
heima.
María, Jenný og Jón Skagan.
DAGANA 19.—21. maí sl. var 21.
landsþing JG-hreyfingarinnar
haldið á Selfossi. l’ingið sóttu rúm-
lega 400 manns ásamt erlendum
gestum. l>etta var fjölmennasta
samkoma sinnar tegundar sem
haldinn hefur verið á Selfossi.
lúngið tókst vel og var öll skipu-
lagning og undirbúningur í hönd-
um JC Selfoss.
í hreyfingunni eru 1.325 félag-
ar og eitt af markmiðum hennar
er að þjálfa ungt fólk í félags-
málastörfum. Námskeiðahald
var blómlegt og sóttu 500 fleiri
félagar námskeið árið áður.
Unnin voru 107 byggðarlags-
verkefni á síðasta ári í 35 aðild-
arfélögum um land allt, og voru
flest í tengslum við kjörorð
hreyfingarinnar „Leggjum ör-
yrkjum lið“ en önnur tengdust
öryggismálum.
KJörin var ný landsstjórn
fyrir næsta starfsár, en sam-
kvæmt lögum hreyfingarinnar
má engin vera nema eitt ár í
sama embætti. Arni Þór Árna-
son er landsforseti, með honum
eru Einar Rafn Haraldsson,
Gísli J. Grímsson, Marta Sigurð-
ardóttir og Steinþór Einarsson í
embættum varalandsforseta,
Helga Jakobs er landsritari og
Hafsteinn Þórðarson er lands-
gjaldkeri.
Leiðrétting
ÞAU leiðinlegu mistök urðu í frétt
um Passíukórinn á Akureyri, sem
birtist í Mbl. í gær, að föðurnafn
Signýar Sæmundsdóttur breyttist
í Sigurðardóttir og ættarnafn
Paulu Parker varð Barker. Blaðið
biður viðkomandi afsökunar á
þessum mistökum.