Morgunblaðið - 26.02.1983, Page 16

Morgunblaðið - 26.02.1983, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1983 „Verðum að flytja inn í húsið Vl o 1 -plr01*0 — segja Torfi Júlíus Karlsson Ilctll IVdl dfU I V III og Ingunn Jóhannesdóttir Borgarnesi, 15. febrúar. „HÚSIÐ er rúmlega fokhelt. Við ætlum að setja upp ofnana þegar þeir koma og milliveggina og flytja svo inn í það hálfklár- að. I*að er ekki um annað að ræða því dýrt er að þurfa að kynda á tveimur stöðum og auk þess sparast húsaleigan. Við verðum að setja upp einhverjar hillur fyrir fot og bráðabirgða- eldhús því innréttingarnar verða að bíða fyrst um sinn.“ Þetta sögðu Torfi Júlíus Karlsson og Ingunn Jóhannesdóttir í Borg- arnesi. Þau eru að byggja 135 fermetra einbýlishús í nýju hverfi í Borgarnesi, svokölluðu Bjargslandi. BJARTSYNIS- FÓLKÍ BYGGINGAR- BASLI v___________y Húsið, sem er timbureiningahús frá Selfossi, keyptu þau í sumar og létu setja á grunn sem þau steyptu í fyrra. Torfi er vélstjóri að mennt og starfar sem jarðýtustjóri hjá litlu verktakafyrirtæki sem hann á sjálfur helminginn í. Ingunn og Torfi eru bæði 28 ára gömul og eru að byggja í fyrsta skipti. Þau eiga þrjá stráka, átta, fjögurra og eins árs gamla. „Við vinnum eins mikið í þessu sjálf og mögulegt er,“ sögðu þau Torfi og Ingunn, „en húsið stendur núna í sex til sjöhundruð þúsund- um króna. Það höfum við fjár- magnað með Húsnæðismála- stjórnarlánunum, lífeyrissjóðsláni og láni hjá Sparisjóðnum. Þetta hefur þó ekki dugað til og hafa pabbi og mamma Torfa hjálpað okkur þegar allt hefur verið að komast í strand. Óhætt er að segja að þetta hefði ekki gengið hjá okkur ef við hefðum ekki átt þau að. Við erum að bíða eftir ofnunum núna, en þegar þeir koma ætlum við að reyna að vinna það sem eft- ir er sem allra mest sjálf, enda ekkert að gera á ýtunni núna, og flytja svo inn í húsið hálfkarað í vor. Framhaldið verður síðan að fara eftir því hvort eitthvað verð- ur að gera á ýtunni í sumar." Það eru ekki mörg ár síðan að þeir sem voru að byggja höfðu margir á orði að þeir hefðu aldrei haft það betra en einmitt á meðan Torfi Júlíus Karlsson og Ingunn Jóhannesdóttir með syni sína þrjá; Karl Helga átta ára, Halldór Vilberg fjögurra ára og Sigurpál Helga, sem er eins árs. Á myndinni gluggar fjölskyldan í teikningar að nýja hÚSÍnU. MorgunblaAið/ Ht’ltfi. Nýja byggðastefiiu — eftir Hrafnkel A. Jónsson, Eskifirði Byggðastefna hefur verið stefnumál allra stjórnmálaflokka síðasta áratug og í nafni hennar hefur átt sér stað atvinnubylting víða um land. Hjá því fer hinsveg- ar ekki að í nafni byggðastefnu hafa líka verið gerð stórfelld mis- tök og fjárfest meir af kappi en forsjá. Yfirlýst markmið byggða- stefnunnar hefur verið að skapa því fólki sem býr utan Stór- Reykjavíkursvæðisins sömu eða sem líkust lífskjör og þar. For- sendur þessa eru vissulega rétt- lætismál. Hinu skyldu menn samt aldrei gleyma að hverjum og ein- um er frjálst að velja sér búsetu þar sem hann helst vill og því ætti takmark þjóðfélagsins að miðast við það að gera fólki þetta kleift, en ekki að skapa lífsskilyrði sem í krónum talið væru þau sömu hvar sem er á landinu. Helsti vandi Austfirðinga við að ná svipuðum lífskjörum og t.d. íbúar í Reykjavík felst í lakari þjónustu og óhagstæðu orkuverði. Ef litið er til þess á hvern hátt megi bæta þjónustuna, þá verður fyrst fyrir, að sökum smæðar markaðarins þrífast þjónustu- fyrirtæki illa og munu að óbreytt- um aðstæðum aldrei veita hlið- stæða þjónustu og t.d. í Reykjavík. En er þá engin leið til úrbóta? Tvennt má benda á til lausnar, annars vegar miklu hærri verð- lagning þjónustu á landsbyggðinni en í Reykjavík, það er leið sem flestir munu hafna, hins vegar er stórátak í samgöngumálum sem gæti gjörbylt allri aðstöðu þjón- ustufyrirtækja í fjórðungnum og skapað grundvöll undir blómlegan þjónustuiðnað sem jafnframt verkaði sem kjarabót fyrir neyt- endur. Af því sem hér að framan segir tel ég stórbætt samgöngu- kerfi annan helsta þáttinn í því að raunveruleg byggðastefna skili varanlegum árangri. Hinn megin þátturinn er nýting hinna stórfelldu virkjunarmögu- leika sem innan fjórðungsins eru. Stóraukin hlutdeild heimamanna í ákvarðanatöku og stjórnun við orkuvinnslu og orkusölu er for- senda þess að nýting orkulinda innan fjórðungs verði á þann hátt að hagsmuna Austfirðinga væri gætt. Þess vegna er það beint hagsmunamál hinna dreifðu byggða og þá ekki síst Austur- lands að Landsvirkjun verði leyst upp og í hennar stað stofnaðar landshlutaveitur. Ódýr og næg orka er forsenda atvinnu, það er því ekki eftir neinu að bíða með að hefja nýtingu þeirra virkjunarmöguleika sem innan fjórðungs eru og þá með það fyrir augum að selja hluta orkunnar innlendum' eða erlend- um aðilum á það hagstæðu verði að sá hluti orkunnar sem kæmi inn á almennan markað yrði grundvöllur bættra lífskjara í formi minni orkukostnaðar hjá hefðbundnum atvinnurekstri og minni kostnaðar almennings vegna heimilisnota. Enginn gengur þess dulinn að mörg vandamál koma upp við upp- byggingu orkufreks iðnaðar, en það er hrein og bein uppgjöf að hafna þeim möguleikum sem hann skapar fyrir það eitt að upp kemur vandi sem þarf að leysa. Það ætti að vera öllum fagnaðarefni að fá verkefni á borð við nýtingu vatns- orkunnar til að glíma við. Það tvennt sem helst þarf að varast í þessu sambandi er annars vegar mengun og hins vegar byggða- röskun innan fjórðungs. Við þessu er hægt að sjá ef forsjálni er höfð við undirbúning og það haft að markmiði að nýting orkulinda á einum stað eigi að koma öllum til góða og eigi að vera stuðningur við byggð í landinu öllu en ekki hið gagnstæða. Ekki verður svo skilist við byggðastefnuna að ekki verði með örfáum orðum vikið að hug- myndum um breytt kosningalög sem eiga að miða að því að minnka misvægi atkvæða og hins vegar nýja stjórnarskrá. Þrátt fyrir mikla umfjöllun fjöl- miðla um þessi mál er það svo að almenningur hefur fátt sagt um Hrafnkell A. Jónsson málið. Staða þess er að mínum dómi sú að á engan hátt er verj- andi fyrir Alþingi að taka afstöðu til þess. Áður en það gerist verður að fara fram miklu meiri umræða í þjóðlífinu, ekki síst þarf fólk í hinum dreifðu byggðum að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Meginmarkmið nýrrar stjórn- arskrár hlýtur að vera að skapa meiri festu í þjóðfélaginu og auka ábyrgð þeirra aðila sem með völd- in fara. Til að ná því marki eru tillögur Vilmundar Gylfasonar um aðskilnað löggjafarvalds og fram- kvæmdavalds og kosningu forsæt- isráðherra eða forseta með stór- auknu valdsviði best fallnar af þeim hugmyndum sem að undan- förnu hafa verið reifaðar. Til að auka ábyrgð þingmanna er nauð- synlegt að koma á einhverskonar persónukjöri og kemur þá til álita * að taka upp einmenningskjör- dæmi. Ef næst fram krafan um fullt jafnræði í kosningarétti hlýtur að koma upp sú krafa að verkaskipt- ing ríkis og sveitarfélaga verði al- gerlega stokkuð upp með það fyrir augum að stjórnsýslan færist heim í hérað og þá nær fólkinu, á sama hátt er eðlilegt að tekjur af gjaldeyrisöflun verði til ráðstöf- unar hjá þeim sem undir henni standa. Væri þá öllu réttlæti full- nægt og hefði hver sitt. Hver svo sem niðurstaða um- ræðna um stjórnarskrá verður er ljóst að þingmenn eru algerlega umboðslausir til að fara að fikta við hana á þeim tíma sem eftir lifir þings. Oryggismál rædd á fundi Félags smábátaeigenda Á AÐALFUNDI Félags smábáta- eigenda í Reykjavík, sem haldinn verður í húsi Slysavarnafélags ís- lands klukkan 14 á sunnudag, flyt- ur Ásgrímur Björnsson meðal ann- ars erindi um öryggismál smábáta. Þau mál hafa verið ofarlega á baugi síðustu ár og þó nokkuð hafi áunnizt er mikið verk óunnið í þeim efnum. í Reykjavík eru á þriðja hundrað smábátar, en um 70 þeirra eru í Félagi smábátaeig- enda. Aðstöðuleysi hefur verið vanda- mál fyrir eigendur þessara báta á liðnum árum, en þó hafa nokkrar úrbætur verið gerðar. Verða þau mál örugglega til umræðu á fund- inum auk venjulegra aðalfund- arstarfa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.