Morgunblaðið - 26.02.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1983_____________ 17
I Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar:
Mörg hús eru í byggingu í nýja hverfinu í Bjargslandi í Borgarnesi.
verið var að byggja og þá var
gjarnan keyptur nýr bíll fyrir síð-
asta hlutann af Húsnæðismála-
stjórnarláninu. Torfi og Ingunn
voru spurð að því hvort þetta væri
þeirra reynsla. „Nei, ekki aldeilis.
Þetta hafa verið svo stífar greiðsl-
ur hjá okkur að við höfum rétt
sloppið fyrir horn, enda hefur ver-
ið ákaflega erfitt að fá lán til að
fleyta sér áfram."
Torfi taldi að það væri heldur
ódýrara að byggja í Borgarnesi en
á höfuðborgarsvæðinu. Allavega
væru lóðirnar ódýrari hér og
meira hægt að vinna í þessu sjálf-
ur. Þau voru að lokum spurð að
því hvort þetta væri ekki erfiður
tími. „Það er dálítið gaman að
standa í þessu dundi, allavega að
naglhreinsa og við þessháttar
störf, en peningabaslið er hund-
leiðinlegt og þó ekki væri nema
þess vegna hefðum við ekki áhuga
á að fara út í að byggja aftur eins
og margir þó gera.“
HBj.
Ingunn og Torfi athuga einangrun hússins.
Útgjöld verða
skorin verulega
niður á árinu
Akranesi, 24. febrúar
Fjárhagsáætlun Akranes-
kaupstaðar fyrir árið 1983
var lögð fram á fundi bæjar-
stjórnar sl. þriðjudag. 1 henni
kemur fram spegilmynd af
fjárhagsvanda flestallra
sveitarfélaga og til aö endar
nái saman er gert ráð fyrir að
fjármagn til ýmissa fram-
kvæmda á vegum kaupstað-
arins verði stórlega skorið
niður.
Heildarrekstrartekjur eru
áætlaðar 79,6 milljónir króna.
Þar af eru útsvör og aðstöðugjöld
54.4 milljónir króna og fasteigna-
gjöld 8,4 milljónir króna. Heild-
arrekstrarkostnaður er áætlaður
63.4 milljónir króna, þar af er
varið mestu til félagsmála eða
17,7 milljónum króna, til fræðslu-
mála 12,2 milljónum króna. f
vexti og fjármagnskostnað 7,6
milljónum króna. f yfirstjórn
bæjarins 6,8 milljónum króna. í
skipulag holræsa, umferðarmál,
íþrótta- og æskulýðsmál 3,3 millj-
ónum króna.
Tekjur á eignabreytingareikn-
ingi eru áætlaðar 24,4 milljónir
króna. Þar af fara í ýmsar af-
borganir og skuldir 9,8 milljónir
króna. Til dvalarheimilisins
Höfða fara 1,4 milljónir króna og
til vatnsveitu 300 þúsund krónur.
Framlag í Framkvæmdasjóð bæj-
arins er áætlað 100 þúsund krón-
ur.
Gjaldfærð fjárfesting er áætl-
uð 5,6 milljónir króna. Þar af ef
áætlað að verja 5 milljónum
króna til gatna- og holræsagerð-
ar. Þar koma tekjur á móti upp á
3,6 milljónir króna, vegna gatna-
gerðar- og holræsagjalda.
Eignafærð fjárfesting er áætl-
uð 7,2 milljónir króna. Þar af fer
röskur helmingur til fram-
kvæmda í skólamálum.
Þess má að lokum geta, að mið-
að við fjárhagsáætlun sl. árs
aukast rekstrarútgjöld um 99%,
en þau hefðu aukist, miðað við
útkomuspá ársins 1982, um 64%.
Á móti aukast svo tekjur bæjar-
ins um 60%. Gert er ráð fyrir að
síðari umræða um fjárhagsáætl-
unina fari fram 8. marz nk.
_ J G'
Leiðrétting
í FRÉTT í Morgunblaðinu sem
birtist sl. miðvikudag, kom fram
að barnafargjöld í Strætisvögnum
Reykjavíkur væru helmingi lægri
en í Strætisvögnum Kópavogs.
Vegna fréttar þessarar hafa
Strætisvagnar Kópavogs óskað
eftir að fram komi að fargjöld
þessi séu jafn há í Reykjavík og
Kópavogi, 2,50 krónur hvert far.
Reyknesingar!
Ólaf G. Einarsson
í öruggt sæti!
Sjálfstæðismenn í Reykjaneskjördæmi ganga til prófkjörs vegna komandi
alþingiskosninga nú laugardaginn 26. febrúar, kl. 13—19, og sunnudaginn
27. febrúar, kl. 10—20.
Stuðningsmenn Ólafs G. Einarssonar vilja hér með vekja athygli á stað-
reyndum, sem þú, kjósandi góður, ættir að hugleiða áður en þú greiðir
atkvæði í prófkjörinu.
Ólafur G. Einarsson hefur verið formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins síðasta kjörtímabil. Eins og allir vita, hefur þetta kjörtíma-
bil verið í hæsta máta óeðlilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn. ólafur hefur
því oft verið í þeirri erfiðu stöðu, að þurfa að mæla fyrir einarðri
afstöðu þingflokks Sjálfstæðisflokksins gegn forvera Ólafs í embætti
þingflokksformanns. Ólafi hefur farist þetta vandasama starf vel úr
hendi, og teljum við það eitt næga ástæðu til áframhaldandi setu Ólafs
G. Einarssonar á Alþingi.
Ólafur G. Einarsson hefur einnig staðið í eldlínunni í því samninga-
þófi, sem hefur átt sér stað um kjördæmamálið, og hefur þar staðfast-
lega haldið fram hlut okkar Reyknesinga. Ólafur hefur átt sinn stóra
þátt í því að sú lausn, sem nú er fundin á þessu stóra vandamáli, er um
það bil að verða að veruleika. Engum er þó ljósara en Ólafi, að þessi
lausn er aðeins áfangi á leiðinni að því sjálfsagða réttlæti, að atkvæð-
isréttur verði jafn um allt landið. En — því miður — sá áfangi sem
nú hefur náðst er einfaldlega það besta sem hægt var að ná við
núverandi aðstæður. Við treystum Ólafi manna best til að halda
áfram á þeirri braut að jafna kosningaréttinn á milli kjördæma.
Framangreind atriði, svo og önnur störf Ólafs G. Einarssonar fyrir
þjóðina, Reyknesinga og Sjálfstæðisflokkinn, leggjum við óhikað í dóm
þinn, kjósandi góður. Við erum þess fullvissir að þú, og flokksbræður
þínir tryggja Ólafi G. Einarssyni öruggt sæti á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við næstu Alþingiskosningar.
STUÐNINGSMENN
Skrifstofa okkar er að Skeiðarási 3, Garðabæ (húsi Rafboða hf.) sími 54555,
og um helgina verður hún opin á sama tíma og kjörstaðir, kl. 13—19 á
laugardag og kl. 10—20 á sunnudag.