Morgunblaðið - 26.02.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1983
21
Mikið leitað
til kvennaat-
hvarfsins en
fjárhagsstaða
þess er veik
NEYÐARSÍMI kvcnnaathvarfsins
var lokað dagstund nýlega vegna
ógreiddra símareikninga, sem stafar
af fjárskorti athvarfsins. „Þetta kom
sér illa vegna þess að þörfin fyrir
athvarfið er mjög mikil og miklu
meiri en við gerðum ráð fyrir í upp-
hafi,“ sagði Anna M. Hreinsdóttir
starfsmaður kvennaathvarfsins í við-
tali við Mbl.
„Rekstrarfé kemur eingöngu frá
félögum og einstaklingum en von
er á framlagi frá ríki og sveitar-
félögum og mun það ganga til
kaupa á framtíðarhúsnæði," sagði
Anna ennfremur.
„Viljum við vekja athygli fólks á
mikilvægi kvennaathvarfsins og
þeim sem vilja styrkja okkur er
bent á að póstgírónúmer okkar er
44442-1, sagði Anna M. Hreins-
dóttir að lokum.
Drætti frest-
að í Happ-
drætti IOGT
FRESTAÐ hefur verið drætti í
happdrætti IOGT til 20. marz, en
ágóði af happdrættinu fer til efl-
ingar barnastarfs innan IOGT.
Frá þessu er skýrt i fréttatilkynn-
ingu, sem Morgunblaðinu barst.
Ólafsvík:
Tölvunámskeið
Olafsvík, 22. febrúar.
ÞESSA dagana gengst
Grunnskóli Ólafsvíkur
fyrir tölvunámskeiðum í
samvinnu við Tölvuskól-
ann Framsýn. Að sögn
Gunnars Hjartarsonar,
skólastjóra Grunnskólans,
hafa þessi námskeið verið
vel sótt og nýjung þessi
mælst vel fyrir.
Boðið er upp á tvenns
konar námskeið: Almennt
grunnnámskeið þar sem
farið er yfir grundvallar-
atriði tölva, tölvuvinnslu,
forritun o.fl. Hins vegar er
svo framhaldsnámskeið
sem nefnist BASIC, en þar
er kennd notkun forritun-
armálsins BASIC.
Námskeiðin eru helgar-
námskeið og standa því
skemur en samskonar
námskeið sem Framsýn
efnir til í Reykjavík.
Fyrirhugað er samskonar
námskeiðshald á Hellis^
sandi.
Helgi
STUÐNINGSFÓLK SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
í REYKJANESKJÖRDÆMI
Takið þátt í prófkjörinu
«g tryggið
ELLERT
EIRÍKSSYNI
öruggt sæti á framboðslista flokksins
SAMTAKA TIL SIGURS
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SÍMI44144