Morgunblaðið - 26.02.1983, Qupperneq 27
I
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1983 27
Sýning
Steingríms
gengur vel
„ÞETTA hefur gengið aldeilis
ágætlega. Hér hefur verið mjög
gestkvæmt og margar myndir hafa
selst,“ sagði Steingrímur Sigurðs-
son, listmálari, í samtali við Morg-
unblaðið, en þessa dagana stendur
vfir sýning hans í Ásmundarsal viö
Freyjugötu. I»ar sýnir listamaður-
inn 79 málverk, olíumyndir, pastel-
og vatnslitaverk, og eru flestar
myndirnar málaðar á síðustu mán-
uðum. Sextíu og þrjú verkanna
voru til sölu.
Sýning Steingríms stendur til
þriðjudagskvölds í næstu viku,
nema hvað dagurinn í dag dettur
út vegna fundahalda arkitekta í
Ásmundarsal. „Á þriðjudags-
kvöldið klukkan 21 fæ ég góða
Hjónin Ágústa Ágústsdóttir og Gunnar Björnsson ásamt Steingrími Sig-
urðssyni, en þau munu leika og syngja á sýningu Steingríms á þriöju-
dagskvöld.
gesti í heimsókn," sagði Stein-
grímur, „því ég hef komið mér
hér upp „ragtimepíanói", og þau
hjónin séra Gunnar Björnsson
og Ágústa Ágústsdóttir ætla að
koma hingað og leika og syngja
fyrir gesti þetta síðasta kvöld.
Gunnar hefur áður leikið á sýn-
ingum hjá mér, svo sem á Isa-
firði og í Sjómannastofunni á
Bolungarvík, þetta er öðlings-
maður og tónsnillingur."
Prófkjör Sjálfstæðisflokks-
ins á Reykjanesi um helgina
Kádstefna Heimdallar um atvinnumál í dag kl. 14.00:
Ellefu framsögumenn
fjalla um möguleika
á atvinnurekstri
I’RÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins f
Reykjaneskjördæmi fer fram í dag,
laugardag, og á morgun, sunnudag.
Kjörstaðir eru opnir í dag frá kl.
13—19 og sunnudag kl. 10-20. Atkvæð-
isrétt í prófkjörinu hafa allir stuðn-
ingsmenn Sjálfstæöisflokksins sem
búsettir eru í Reykjaneskjördæmi og
hafa kosningarétt í þeim kosningum til
Alþingis sem í hönd fara. Auk þeirra
þeir félagsmenn sjálfstæðisfélaganna í
Reykjaneskjördæmi er náð hafa 16 ára
aldri prófkjörsdagana og búsettir eru í
kjördæminu.
Kosning fer þannig fram að kjós-
andinn kýs ákveðinn mann í ákveðið
sæti framboðslistans. Skal þetta
gert með því að setja tölustaf fyrir
framan nöfn manna á prófkjörsseðl-
inum og tölusetja í þeirri röð, sem
óskað er að þeir skipi framboðslist-
ann. Kjósandi skal á þennan hátt
kjósa 5 frambjóðendur, hvorki fleiri
né færrí. Ef út af er brugðið er sá
atkvæðaseðill ógildur.
Kjörstaðir eru: Kjósarsýsla: Ás-
garður, Kjós. Þar er aðeins kosið
laugardag. Fólkvangur, Kjaiarnesi,
þar er aðeins kosið sunnudag. Hlé-
garður, Mosfellssveit, báða dagana.
Seltjarnarnes: í félagsheimilinu,
Kópavogur: Hamraborg 1, 3. hæð.
Garðabær og Bessastaðaheppur:
Lyngás 12, Garðabæ. Hafnarfjörður:
Sjálfstæðishúsið, Strandgötu 29.
Keflavík: Sjálfstæðishúsið Hafnar-
götu 46. Njarðvík og Hafnarhreppur:
Sjálfstæðishúsið Hólagötu 15.
Grindavík: Festi. Gullbringusýsla:
Miðneshreppur, leikvallarhúsið,
Gerðahreppur: samkomuhusið.
Vatnsleysustrandarhreppur: Glað-
heimar Vogum, þar er aðeins kosið
sunnudag.
HEIMDALLUR, samtök ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík,
gengst í dag, laugardag, fyrir ráð-
stefnu um möguleika ungs fólks á
atvinnurekstri í Reykjavík. Ráð-
stefnan veröur haldin í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1 og hefst hún klukkan
14 og stendur til klukkan 19.
Að sögn Árna Sigfússonar,
formanns Heimdallar, er ráð-
stefnan öllum opin, en þó er sér-
staklega vænst þátttöku ungs
fólks sem hugleiðir að stofna til
atvinnureksturs í einhverri mynd
í Reykjavík. Sagði Árni að á ráð-
stefnunni myndu framsögumenn
leitast við að kynna möguleika á
stofnun atvinnufyrirtækja í ein-
staka atvinnugreinum, en auk
þess verða kynnt ýmis undirstöðu-
atriði sem nauðsynlegt er að gera
ráð fyrir, þegar stofnað er til at-
vinnureksturs.
Sagði Árni að stefnt væri að því
að hafa framsöguræður stuttar,
en að þeim loknum myndu starfa
upplýsingahópar, þar sem þátt-
takendur gætu leitað frekari svara
hjá einstaka framsögumönnum.
Að setningu ráðstefnunnar lok-
inni talar Sigmar Ármannsson,
lögfræðingur Landsambands iðn-
aðarmanna, um gildi smáfyrir-
tækja fyrir atvinnureksturinn, en
að máli hans loknu talar Jón Er-
lendsson verkfræðingur, forstöðu-
maður upplýsingaþjónustu Rann-
sóknarráðs, en hann mun í erindi
sínu leita svara við spurningunni
um það, hvernig menn fara að því
að finna hugmyndir. Næstur mun
Haukur Þór Hauksson kaupmað-
ur, fjalla um stofnun og uppbygg-
ingu fyrirtækja. Að lokinni um-
fjöllun um lánamöguleika fyrir-
tækja, mun Magnús L. Sveinsson,
formaður atvinnumálanefndar
borgarinnar, ræða um hlutverk
Reykjavíkurborgar við uppbygg-
ingu atvinnurekstrar. Síðan mun
Sigurður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fræðslu- og út-
breiðsludeildar Iðntæknis, fjalla
um verktakaiðnað, en að máli
hans loknu mun Guðlaugur Stef-
ánsson, hagfræðingur Lands-
sambands iðnaðarmanna, fjalla
um þj'onustuiðnað. Síðan mun dr.
Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri
Iðntæknistofnunar, ræða um
framleiðsluiðnað, þá mun dr. Jak-
ob Sigurðsson ræða um fisk-
vinnslu og útgerð og loks ræðir
Jón Ragnar Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
loðdýraræktenda, um loðdýra-
rækt. Þá verður fjallað um heil-
dverslun, umboðsverslun og smá-
söluverslun og mun Magnús
E. Finnsson, framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtaka Islands sjá
um þá umfjöllun, en síðan mun
Pétur J. Eiríksson, hagfræðingur,
ræða um Reykjavík sem þjónustu-
miðstöð.
Að loknum framsöguerindum
mun þátttakendum verða skipt
niður í umræðuhópa eftir áhuga-
sviði, þar sem þeir geta leitað upp-
lýsinga hjá framsögumönnum.
Áætlað er að ráðstefnunni ljúki
klukkan 19. Ráðstefnustjóri verð-
ur Sigurbjörn Magnússon.
Sjálfstæöisflokkurinn:
Síðari hluti
prófkjörs á Aust-
urlandi í dag
SÍÐARI dagur prófkjörs sjálfstæð-
ismanna í Austurlandskjördæmi er í
dag, en fundur hefur verið boðaður í
kjörnefnd og kjördæmisráði flokks-
ins á morgun, sunnudag, kl. 16 í
Vegaveitingum, en þar verður geng-
ið frá framboðslista flokksins við
næstu alþingiskosningar.
Kjörstaðir hafa verið auglýstir,
en hægt verður að kjósa utan-
kjörstaðar í Valhöll í Reykjavík og
skrifstofum Sjálfstæðisflokksins á
Akureyri að Kaupangi.
KJÖRSEDILL
í prófkjöri Sjáltstæðistlokksins i Reykjaneskjördæmi26.—27. tebtúar 1983
Töiusetiiö hér NAFN STAOA HEIMIL^/
Albert K. Sanders bæjarstjóri Hraun^végi 19. Nfárðvik
Bragi Míchaelsson framkvæmdastjón BrfKigrund46, Kópavogi
Ellert Eirfksson sveitarstjóri / Melþráut 3, Geróahreppi
GunnarG. Schra-n prófessor yS /^rostaskjóli 5, Reykjavik
Kristjana Milla Thorsteinsson viósklptafmstíingur yr Haukanesi 28, Garóabæ
MatthíasÁ. Mathiesen alþipgísmaóur,/ Hringbraut 59. Hafnarfirói
ólaturG. Einarsson ✓alpingispyáóur Stekkjarflöt 14. Garóabæ
Rannveig Tryggvadóttir yS kepdari Vallarbraut 20. Seltjarnarnesi
Salome ÞorkelsdóJMf / alþingismaóur Reykjahlló, Mosfellssveit
Sigurgeir Sujtífðsson bæjarstjóri Mlóbraut 29. Seltjarnarnesi
jCjósa skpf5 frambjóóendur, hvorki flelrl ni fmrri,
ymeó þvýtti tölusetja iþeirri röö sem óskaó er
aö þptrskiþi framboöslistann.
______________merktur fleiri eöa fmrrl nöfnum en 5 erógildur.
Sýnishorn af prófkjörsseðli í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi.
Númera skal framan við nöfn frambjóðenda með tölustöfunum 1—5, hvorki má
númera við fleiri eða færri, þá er seðillinn ógildur.
A,
Kynning á
kaffi
Við kynnum nú um helgina nýju 300 línuna frá
BMW, sem ber þýskri þekkingu, nákvæmni og
hugviti gott vitni.
Komið og kynnist þessum frábæru bílum.
Kynnum BMW-315, -316, -318i,
-320i, - 323i, -518, og -520i
KRISTINN GUÐNASON
SUÐURLANOSBRAUT 20. SÍMI 86633
BÍLASÝNING
Sýnum laugardag 26. feb. og sunnudag 27. feb. frá kl. 1 -6
H^enn
fullkomnari