Morgunblaðið - 26.02.1983, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1983
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
Svíþjóð 1982:
Vöruskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um
6.200 m. sænskra kr.
ÚTFLUTNINGUR Svía jókst um í námunda vió 16% á síðasta ári og var að
verðmæti liðlega 168.000 milljónir sænskra króna, samkvæmt upplýsingum
sænsku hagstofunnar.
Innflutningur Svía jókst hins
vegar um nærri 19% og var að
verðmæti um 174.200 milljónir
sænskra króna. Vöruskiptajöfnuð-
ur Svía var því óhagstæður um
6.200 milljónir sænskra króna,
borið saman við 1.300 milljónir
sænskra króna á árinu 1981. Hins
vegar var vöruskiptajöfnuður Svía
óhagstæður um 10.700 milljónir
sænskra króna.
Langstærstur hluti vöruskipta-
hallans á síðasta ári kom fram á
síðasta ársfjórðungi, eða um 5.900
milljónir sænskra króna. Aðal-
ástæður þess eru afleiðingar 16%
gengisfellingar sænsku krónunnar
í október og síaukinn innflutning-
ur þegar leið á árið.
A síðasta ári voru skráðir um
221.000 nýir bílar, sem er um 15%
aukning frá árinu á undan, þegar
alls voru skráðir um 191.500 bílar.
Skráningin í fyrra er sú mesta síð-
an árið 1977, þegar alls voru
skráðir um 247.300 bílar í landinu.
Hins vegar var árið 1976 metár í
skráningu nýrra bíla í Svíþjóð,
þegar samtals voru skráðir um
321.300 bílar.
Heildarfjöldi bíla í umferð er nú
2.936.000, sem er um 1,5% aukning
frá árinu á undan. Þessar tölur
jafngilda því, að 353 bílar séu á
hverja 1.000 íbúa, en sú tala var
348 á árinu 1981.
Útflutningur dróst
saman um 19% 1982
Verðmætaaukningin um 30%, en verðlagsbreytingar voru liðlega 60%
HEILDARÚTFLUTNINGUR íslendinga dróst saman um 19%, í magni talið,
á síðasta ári, þegar flutt voru út 549.873,2 tonn, borið saman við 675.466,0
tonn á árinu 1981. Verðmætaaukning útflutningsins var hins vegar um 30%
milli ára, eða um 8.478,9 milljónir króna í fyrra, borið saman við liðlega
6.536,2 milljónir króna árið 1981. Almennar verðlagsbreytingar voru hins
vegar vel yfir 60% á síðasta ári.
Vöruskiptajöfnuður
neikvæður í janúar
Vöruskiptajöfnuður íslendinga
var óhagstæður um tæplega 340,9
milljónir króna í janúarmánuði sl.
Verðmæti útflutnings landsmanna
var tæplega 777,4 milljónir króna, en
verðmæti innflutnings var hins veg-
ar liðlega 1.118,2 milljónir króna.
Til samanburðar var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður um
tæplega 176,5 milljónir króna í
janúar 1982, en verðmæti útflutn-
ings var þá liðlega 363,6 milljónir
króna, en verðmæti innflutnings
hins vegar liðlega 540,1 milljón
króna.
í útflutningi vegur þyngst ál og
álmelmi frá íslenzka álfélaginu,
sem var að verðmæti tæplega
133,4 milljónir króna, en til sam-
anburðar var verðmæti þess út-
flutnings á sama tíma í fyrra lið-
lega 103,4 milljónir króna.
Innflutningur fyrir íslenzka ái-
félagið vegur þyngzt í innflutn-
ingi, en hann var að verðmæti lið-
lega 197,8 milljónir króna í janúar
sl. Verðmæti innflutnings fyrir-
tækisins á sama tíma í fyrra var
Heildsöluverð
lækkaði í Japan
í janúarmánuði
HEILDSÖLUVERÐ lækkaði um
0,9% í Japan í janúarmánuði sl., mið-
að við desember og um 0,1% miðað
við janúar á síðasta ári, vegna stöð-
ugrar styrkingar japanska yensins á
gjaldeyrismörkum.
Þessi 0,1% lækkun milli ára er
fyrsta lækkunin frá því í apríl
1981, þegar heildsöluverð lækkaði
um 0,9% milli ára. Vísitala heild-
söluverðs var 101,8 stig í janúar
miðað við grunntölunar 100 á ár-
inu 1980.
Talsmaður Seðlabanka Japans
sagði styrkingu japanska yensins
ótvírætt vera ástæðuna fyrir þess-
ari þróun og gat þess jafnframt,
að japanska yenið hefði styrkzt
um 4,2% gagnvart Bandaríkja-
dollar í janúarmánuði.
hins vegar liðlega 24 milljónir
króna.
Við samanburð við utanríkis-
verzlunartölur 1982 verður að
hafa í huga, að meðalgengi erlends
gjaldeyris í janúar 1983 er talið
vera 82,8% hærra en það var í
sama mánuði 1982.
IÐNAÐARVÖRUR
Heildarútflutningur iðnaðar-
vara dróst saman um 3%, í magni
talið, á síðasta ári, þegar flutt
voru út 159.386,2 tonn, borið sam-
an við 163.903,4 tonn á árinu 1981.
Verðmætaaukning iðnaðarvöru-
útflutningsins var hins vegar
nærri 50% á síðasta ári, eða tæp-
lega 1.898,3 milljónir króna, borið
saman við liðlega 1.269 milljónir
króna á árinu 1981.
ÁL OG ÁLMELMI
Útflutningur á áli og álmelmi
dróst saman um 3% á síðasta ári,
í magni talið, þegar flutt voru út
61.531.5 tonn, borið saman við
63.187.5 tonn á árinu 1981. Verð-
mætaaukning ál- og álmelmis-
útflutningsins var hins vegar um
34%, eða liðlega 852,1 milljón
króna, borið saman við tæplega
634,3 milljónir króna á árinu 1981.
KISIUARN
Kísiljárnútflutningur jókst á
síðasta ári um 31%, í magni talið,
þegar flutt voru út 42.173,9 tonn
borið saman við 32.081,7 tonn á
árinu 1981. Verðmætaaukning kís-
iljárnútflutningsins var í
námunda við 97% milli ára, eða
tæplega 243,3 milljónir króna,
borið saman við liðlega 123,4
milljónir króna á árinu 1981.
ULLARVÖRUR
Útflutningur ullarvara dróst
saman um 6% á síðasta ári, í
magni talið, þegar út voru flutt
1.487.4 tonn, borið saman við
1.574.5 tonn á árinu 1981. Verð-
mætaaukning ullarvöruútflutn-
ingsins var um 58%, eða liðlega
388,2 milljónir króna, borið saman
við 246,5 milljónir króna á árinu
1981.
Olíuútflutningur Sovét-
manna jókst um 40% 1982
Aðeins 3 ríki af 13 í OPEC með meiri útflutning
Olíuútflutningur Sovétmanna
jókst um 40% á síðasta ári, sam-
kvæmt heimildum „Wall Street
Journal“, sem segja ennfremur að
Sovétmenn búist við að auka út-
flutning sinn enn frekar á þessu ári.
Efnahagssérfræðingar telja
ástæðurnar fyrir þessum aukna
útflutningi Sovétmanna vera
mildan vetur þar í landi, með
minni innanlandsnotkun, auk þess
sem iðnaðarframleiðsla hafi held-
ur dregizt saman á síðasta ári í
Sovétríkjunum.
Þótt engar opinberar tölur hafi
verið gefnar út um útflutning Sov-
étmanna til Vesturlanda segja
sérfræðingar að hann hafi verið á
bilinu 1,4—1,5 milljónir tunna á
dag, og hafi aukizt um 4—500 þús-
und tunnur á dag frá árinu 1981.
Sérfræðingar reikna enn fremur
með, að útflutningurinn verði
kominn í námunda við 2 milljónir
tunna á dag á þessu ári.
Sovétmenn flytja nú út svipað
magn af olíu og Mexíkóbúar, en
þeir flytja hins vegar tæplega
þrisvar sinnum meira út af olíu en
Bretar. Sérfræðingar telja þennan
aukna útflutning Sovétmanna
ganga nokkuð hart að Bretum,
sem eiga í töluverðum erfiðleikum
með sölu á sinni olíu.
Þá má geta pess, að aðeins 3 ríki
af 13 innan OPEC, Samtaka olíu-
útflutningsríkja, voru með meiri
útflutning á síðasta ári, en það
voru Saudi-Arabía, íran og Venez-
uela.
SKINNAVORUR
Skinnavöruútflutningurinn
dróst saman um 19% á síðasta ári,
í magni talið, þegar flutt voru út
485,2 tonn, borið saman við 601,4
tonn á árinu 1981. Verðmæta-
aukning skinnavöruútflutningsins
var hins vegar aðeins um 9%, eða
100.9 milljónir, borið saman við
92.8 milljónir króna á árinu 1981.
VÖRUR TIL
SJÁVARÚTVEGS
Útflutningur á vörum til sjávar-
útvegs jókst um 53% á síðasta ári,
í magni talið, þegar flutt voru út
1.693.9 tonn, borið saman við
1.104,4 tonn á árinu 1981. Verð-
mætaaukningin milli ára var um
90% milli ára, eða liðlega 51 millj-
ón króna, borið saman við liðlega
26.8 milljónir króna á árinu 1981.
NIÐURLAGÐAR
SJÁVARAFURÐIR
Útflutningur á niðurlögðum
sjávarafurðum jókst á síðasta ári
um 40%, í magni talið, þegar flutt
voru út 2.427,9 tonn, borið saman
við 1.738,1 tonn á árinu 1981.
Verðmætaaukningin milli ára var
um 147%, eða 157,4 milljónir
króna, borið saman við 63,6 millj-
ónir króna á árinu 1981.
KÍSILGÚR
Útflutningur á kísilgúr jókst um
26% á síðasta ári, i magni talið,
þegar flutt voru út 24.965,5 tonn,
borið saman við 19.836,1 tonn á
árinu 1981. Verðmætaaukningin
milli ára var um 106%, eða tæp-
lega 70,2 milljónir króna, borið
saman við liðlega 34 milljónir
króna.
MÁLNING OG LÖKK
Útflutningur á málningu og
lökkum dróst saman um 80% á
síðasta ári, í magni talið, þegar
flutt voru út 404,0 tonn, borið
saman við 2.008,8 tonn á árinu
1981. Verðmætasamdrátturinn
milli ára er um 67%, eða liðlega
6,85 milljónir króna, borið saman
við liðlega 21 milljón króna á ár-
inu 1981.
VIKUR
Vikurútflutningur dróst saman
um 48% á síðasta ári, í magni tal-
ið, þegar flutt voru út 17.524,6
tonn, borið saman við 33.945,4
tonn á árinu 1981. Verðmætasam-
drátturinn var um 10%, eða lið-
lega 5,24 milljónir króna, borið
saman við liðlega 5,84 milljónir
króna á árinu 1981.
1‘ANGMJÖL
Þangmjölsútflutningur dróst
saman um 20% á síðasta ári, í
magni talið, þegar flutt voru út
2.170,7 tonn, borið saman við
2.698,1 tonn á árinu 1981. Verð-
mætasamdrátturinn var um 11%,
eða liðlega 6,87 milljónir króna,
borið saman við tæplega 7,7 millj-
ónir króna á árinu 1981.