Morgunblaðið - 26.02.1983, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1983
• Stórskytta V-Þjóðverja, Erhard Wunderlich, skoraði níu mörk í gærkvöldi gegn Frökkum og bar hann af
í þýska liðinu.
Leikur lið Hauka í úrvalsdeildinni?
Gífurleg spenna þegpr
Haukar sigruðu lið IS
Lögreglumenn
keppa á skíðum
á Ítalíu
íþróttasamband lögreglu-
manna hefur valið eftirtalda
þátttakendur: Kristján Rafn
Guðmundsson, lögreglu-
varðstjóri ísafiröi: 15 km
ganga og boðganga. Einar
Olafsson, lögreglumaður
ísafirði: 15 km ganga og 3x5
boöganga. Valur Jónatans-
son, lögreglumaður ísafirði:
Alpagreinar og 3x5 km boð-
ganga. Einar Karl Kristjáns-
son, lögreglumaður ísafirði:
Alpagreinar.
Fara þeir til Austurríkis til
æfinga í viku og síðan til
Trento á ítalíu þar sem haldiö
er heimsmeistaramót al-
þjóöalögreglu. Mótið hefst i
borginni Trento á ítalíu þann
26. febrúar og stendur til 5.
mars. Keþpt veröur á skíða-
stööum sem eru í útjaöri
Trento. Svig verður í Monte
Bondone, stórsvig í S. Valent-
ino di Berntonico, ganga og
boðganga verður í Passo del
Lavazé.
í fyrra var mótið haldið á
sama stað, en þá var aðeins
einn keppandi frá íslandi. Það
var Kristján Rafn Guð-
mundsson frálsafirði, og náöi
hann mjög góðum árangri á
þessu móti. Má því segja að
Kristján hafi þá rutt brautina
fyrir íslenska lögreglumenn. Á
mót þetta koma nokkur
hundruð lögreglumanna úr
öllum heimsálfum, og er það
talið mjög gott á alþjóölega
mælikvarða og gefur það
meðal annars FlS-stig.
Margir leikir
eru eftir í
3. deildinni
NOKKUO mörgum leikjum
er enn ólokiö í 3. deildar-
keppninni í handknattleik
karla. Mörgum leikjum hefur
verið frestað og eitt iið hefur
leikíð 13 leiki á meðan annað
hefur aöeins leikið 9. Nokkrir
leikir hafa farið fram að und-
anförnu og hafa úrslit í þeim
leikjum orðið þessi:
Akranes — Skallagr. 34—10
Týr — Reynir, Sandg. 28—18
Akranes — Keflavík 27—22
Reynir — Dalvík 28—17
Keflavík — Dalvík 22—26
Reynir — Keflavík 24—23
Eins og sjá má á stöðunni
hér að neöan er lið Fylkis
efst þrátt fyrir að liðið hefur
aðeins leikið 11 leiki. Fylkir
er nær öruggt með sigur í
deildinni en Ijóst er að bar-
áttan um annað sætið veröur
hörð.
STAÐAN
Staðan í 3. deild er nú
þessi:
Fylkif 11 10 0 1 235—165 20
Reynir, S. 13 9 1 3 328—156 19
Akranes 11 7 1 3 305—208 15
Þór, Ak. 9 5 2 2 234—165 12
Týr, Ve. 10 5 1 4 225—192 11
Keflavík 12 5 1 6 278—244 11
Dalvík 9 3 0 6 207—215 6
Skallagrímur 12 2 0 10 202—328 4
Ogri 11 0 0 11 111—352 0
Handknaltlelkur
_________________/
HAUKR sigruðu stúdenta í klass-
iskum úrslitaleik á fimmtu-
dagskvöldið í 1. deild karla í
körfubolta. Darraðardansinn und-
ir lokin var gífurlegur.
1 mínútu og 4 sekúndum fyrir
leikslok misstu Haukar Webster
út af með 5 villur og var staðan þá
64—61 fyrir Hauka. Bock minnk-
aöi muninn í 1 stig, síðan fékk
Gísli 2 vítaskot og hitti úr öðru og
var staðan þá jöfn, 64—64, og allt
bókstaflega á suðupunkti í hús-
inu. Svo þegar 3 sekúndur voru til
leiksloka fékk Hálfdán 3 vítaskot,
hitti ekki úr því fyrsta en hin röt-
uöu örugglega ofan í og sann-
gjarn sigur Hauka var í höfn,
66—64.
Haukar hafa nú næstum örugg-
lega tryggt sér sæti í úrvalsdeild-
inni næstkomandi vetur. Þór og
ÍS eiga ennþá fræöilegan mögu-
leika á því að ná Haukum að stig-
um en þá verða Haukar aö tapa
bæði fyrir Skallagrími, sem hefur
ekki hlotið stig ennþá í deildinni
og Þórsurum.
Haukar komust í 8—2 í upphafi
leiksins, síöan 25—22, en ÍS hafði
forystu í leikhlé, 38—35.
Haukarnir komu síöan eins og
grenjandi Ijón til síðari hálfleiks,
KA SIGRAÐI Ármann auðveld-
lega í 2. deild í handknattleik á
Akureyri sl. miövikudagskvöld
með 26 mörkum gegn 21. Ár-
menningar gerðu fyrsta mark
leiksins og var það í fyrsta og
eina skiptið sem þeir voru yfir í
leiknum.
KA-menn spiluðu oft ágætlega
í fyrri hálfleik og var staöan um
miðjan hálfleikinn 10—5 KA í vil. í
leikhléi var staðan 16 mörk gegn
7.
Seinni hálfleikurinn var heldur
slakur hjá KA-mönnum og náðu
Ármenningar aö minnka muninn
niður í þrjú mörk, 22—19, er 10
mín. voru til leiksloka. En KA-
menn voru sterkari á lokamínútun-
um og sigruðu örugglega, 26—21.
Mörk KA-manna aerðu: Friðjón
Haukar — IS
66:64
skoruðu 6 stig í röð og breyttu
stöðunni í 41—38. Stúdentar kom-
ust síðan yfir, 56—52, en Hauka-
strákarnir gáfu hvergi eftir. Náðu
aö komast yfir, 62—59, og loka-
mínúturnar voru síðan eins og áð-
ur segir.
Stúdentar spiluöu leikinn mjög
skynsamlega, lögðu áherslu á að
stöðva Pálmar og Webster. En það
dugöi ekki til því aörir leikmenn
sýndu þá hvað í þeim bjó. Sér-
staklega Hálfdán, Ólafur og Kári
sem voru mjög góöir í leiknum.
Einar Bollason hefur gert mjög
góða hluti með Haukaliðiö, breytt
því úr efnilegu liöi í gott. Verður
fróölegt að sjá hvernig Haukarnir
spjara sig í úrvalsdeildinni næsta
vetur.
Hjá ÍS var Benedikt frábær í
vörninni, hann tók stjörnuna hjá
Haukum, Pálmar, svo vel að hann
skoraöi aöeins 4 stig í seinni hálf-
KA efst í 2. deild:
Jónsson 7, Guðmundur Guð-
mundsson 5, Þorleifur Ananíasson
5, Flemming Bevensen 2, Erlendur
Hermannsson 4, Keld Mauritsen 3.
Mörk Ármenninga geröu: Björn
Jóhannsson 8, Einar Nábeje 4, Jón
Viöar Sigurösson 3, Einar Eiríks-
son 2, Haukur Haraldsson 2 og
Bragi Sigurösson og Kristinn Ing-
ólfsson 1 hvor.
Meö sigri KA í þessum leik sigr-
uöu þeir jafnframt 2. deildina og
höfðu þá halaö inn 21 stig, þremur
meira en næsta lið.
Fjögur efstu liöin í deildinni, KA,
Haukar, Breiðablik og Grótta,
munu nú leika fjórar umferöir um
tvö sætin sem í 1. deild fara. Stig
þau er liöin hafa nú fengiö fylgja
liöunum i úrslitakeppnina og hafa
KA-menn þrigqja stiga forskot.
leik. Guömundur og Bock voru
einnig atkvæöamiklir hjá ÍS.
Leikinn dæmdu Kristinn Al-
bertsson og Siguröur Valur.
Stia Hauka: Hálfdán Markússon
21, Ólafur Rafnsson 17, Pálmar
Sigurðsson 12, Kári Eiríksson 8 og
Dacarsta Webster 8 stig.
Stig ÍS: Pat Bock 24, Guömund-
ur Jóhannsson 23, Gísli Gíslason
11, Benedikt Ingþórsson 2, Árni
Guðmundsson 2 og Eiríkur Jó-
hannesson 2 stig.
- IHÞ.
Staöan í 1. deild karla:
Haukar 14 12—2 1284—1012 24
ÍS 14 10—4 1222—1001 20
Þór 11 7—4 912—859 14
UMFG 13 2—11 964—1181 4
UMFS 10 0—10 693—1022 0
ÍR VANN Hauka í 1. deild kvenna
í körfubolta á miðvíkudagskvöld-
iö. Fyrri hálfleikurinn var mjög
jafn en ÍR-stelpurnar höföu yfir í
hálfleik, 25—23.
Hinn gamalreyndi leikmaður KA,
Þorleifur Ananíasson, sem er fyrir-
liöi KA-liösins, var spuröur um
möguleika þeirra aö 1. deildar-
sæti. „Þetta verður erfitt en ég
held samt að KA og Haukar fari
upp. Breiðablik gæti þó komið á
óvart.
Við stöndum verr að vígi en hin
liöin aö því leyti að þau eru öll af
Reykjavíkursvæöinu og má því
segja að þau leiki þrjár umferöir á
heimavelli, við aöeins eina.“
Þorleifur sagöi að lokum að
styrkur KA-liðsins fælist mest í því
að mjög mikil breidd væri í liöinu
og ekki neinar stjörnur, heldur
jafnt og góö liösheild. Ennfremur
sagöi hann að þjálfari liösins, Dan-
inn Jan Larsen, væri að gera góöa
hluti meö liöið og væru liösmenn
ánægðir meö hann. AS.
B-keppnin:
Úrslitin
ÚRSLIT leikja í B-keppn-
inni í Hollandi í gærkvöldi
uröu þessi:
A-riðill:
Ungverjar — ísrael 28—13
Svíþjóð — Búlgaría 27—16
B-riðill:
V-Þjóðv. — Frakkl. 22—18
Holland — Tékkó. 16—27
C-riðill:
Sviss — Belgía 26—19
ísland — Spánn 16—23
Það vakti mikla athygli í
gær hversu Frakkar stóðu
sig vel gegn V-Þjóðverjum
í B-riðlinum. Tékkar höfðu
yfir í hálfleik gegn Hol-
lendingum, 11—2. Næstu
leikir fara fram á sunnu-
dag. Þá leikur ísland gegn
Sviss.
— ÞR
Austri ræður
þjálfara og
fær liðsstyrk
AUSTRI á Eskifirði hefur ráðið
Hjört Jóhannsson sem þjálfara
knattspyrnumanna félagsins. en
Austri leikur í þriðju deild. Hjört-
ur hefur um árabil verið meöal
sterkari leikmanna Reynis, Sand-
gerði, og auk þjálfunar á Eskifirði
hyggst hann leika með Eskfirð-
ingum. Þá hefur markaskorarinn
Bjarni Kristjánsson ákveðið aö
leika með félögum sínum á Eski-
firöi í sumar. Hann reyndi fyrir sér
í Sandgerði í fyrra með ágætum
árangri. Tveir aðrir Eskfirðingar
eru á heimleið, þeir Guðmundur
Árnason, sem í fyrra lék með
Sindra á Hornafiröi, og Friörik
Árnason, sem skipt hefur í Austra
úr Snæfelli, Stykkishólmi.
í seinni hálfleik höfðu ÍR-döm-
urnar ávallt yfirhöndina og unnu
sanngjarnan sigur, 51—41.
Hjá ÍR voru þær bestar Þóra
Steffensen, Guðrún og Margrét,
en hjá Haukum var Sóley Indriða-
dóttir langbest.
KR hefur sama sem tryggt sér
sigur í deildinni nú þegar en hörö
barátta verður um annað sætið á
milli ÍR og UMFN. Bæði liðin eru
með 12 stig en ÍR hefur leikið
tveimur leikjum færra.
Stig ÍR: Þóra Steffensen 15,
Guörún 10, Margrét 10, Þóra 8,
Elsa 6 og Ellý 2. '
Stig Hauka: Sóley 24, Sólveig 8,
Ragnheiður 3, Anna 4 og Svanhild-
ur 1 stig.
Lokastaðan
í 2. deild
NU ER 2. deildar-keppninni í
handknattleik lokiö. Liö KA sigr-
aði í deildinni, hlaut 21 stig. Þau
fjögur lið sem koma til með að
leika til úrslita um sæti í 1. deild
eru KA, Haukar, Breiðablik og
Grótta. Lokastaðan í 2. deild varö
þessi:
KA 14 9 3 2 344—303 21
Haukar 14 8 2 4 331—300 18
Breiðablik 14 6 4 4 273—258 16
Grótta 14 8 0 6 328—335 16
HK 14 6 1 7 302—314 13
Þór Ve. 14 4 4 6 292—301 12
Afturelding14 3 3 8 284—309 9
Ármann 14 2 3 9 280—314 7
ÞR.
Auðyeldur KA-sigur
yfir Armanni 26—21
ÍR vann Hauka