Morgunblaðið - 13.11.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983
53
skmbmi
nuumBn
HÚSGAGNAHÖLLINNI BÍLDSHÖFÐA HX-
HúsgagnahtöUin Bíldshölða
Tölvusýningin Skrifstofa Framtíðar verður í Húsgagna-
höllinni Bíldshöfða dagana 10.-16. nóvember.
Opið kl. 15—21 hvern dag, fimmtud. 10. nóv. kL 19 — 21
Slaðilisýnir
það nýjasta á tölvumarkaðmum.
Margir sýningargripir hafa sérstaklega verið fluttir til
landsins í tilefni af sýningunni. Sýningaraðilar eru:
Benco hf. Bókaverslun Sigfúsar Eymimdssonar,
Félag íslenskra iðnrekenda, Hagtala hf., Heimilistæki
hf., IBM á íslandi, íslensk tæki hf., Kristján
Siggeirsson hf., Kristján Ó. Skagflörð hf., Konráð Axels-
son, Magnús Kjaran hf., Microtölvan, Míkró hf., Ólafur
Gíslason 6? Co. hf., Optima hf., Póstur og sími, Radíó-
búðin, Rafrás hf., Skrifstofuvélar hf., Tölvuútgáfan hf.
og Örtölvutækni sf.
Sýningargripir
eru af öllum sviðum tölvutækninnar, p.á m. eru
glænýjar uppfinningar áður óþekktar hérlendis.
Nefna má eftirtalin svið: Smátölvur, nettengingar,
húsgögn, skrifstofutæki og -áhöld, gagnaþjónustu,
skrifstofusj álfvirkni.
Fjölskyldan
En hvað hefúr fjölskyldan að gera á sýningu sem þessa?
Jú, allir hafa, nú þegar, komist í kynni við tölvur i ein-
hverri mynd. En hvað ber framtíðin í skauti sér? Er
tölvutækni skrifstofunnar í dag undanfari tölvuvæð-
ingar skóla, hins almenna vinnustaðar og heimilanna?
Skrifstofan
Fullyrða má að flestöll skrifstofuvinna verði tölvuvædd
á næsta áratug eða svo. Hverjum starfsmanni er því
nauðsynlegt að átta sig sem best á tölvuþróuninni,
enda líklegt að sú þekking verði honum til framdráttar
í starfi. Á sýningunni gefst líka að líta hvernig framtíðar
vinnustaður hans gæti litið út.
Tölvan og framtíð þin
Hvort sem tölva vekur áhuga þinn eða ekki er það
staðreynd að hún kemur víða við í lífi þínu nú þegar.
J afn víst er að þú verðir hennar enn meira var í næstu
framtíð, það er óumflýjanlegt.
rn inni framtíð okkar aUra
^STJÓRNUNARFÉIAG
ISLANDS IK
ULA23
Ml 82930
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS
Pósthólf 681
121 Reykjavík