Morgunblaðið - 13.11.1983, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.11.1983, Blaðsíða 36
J 84 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983 Sigrfður Thorlacius — Afmæliskveðja í dag er Sigríður Thorlacius fyrrverandi formaður Kvenfélaga- sambands íslands, 70 ára. Við sem höfum starfað með Sig- ríði um langt skeið vitum hve mik- ið hún hefur lagt af mörkum til starfsemi Kvenfélagasambands íslands. Okkur finnst oft sem sambandið hljóti að hafa átt hug hennar allan, en þó vitum við sem þekkjum til starfa Sigríðar að hún hefur einnig helgað mörgum öðr- um mikilvægum málefnum krafta sína og starfsorku og ótaldar vinnustundir af sömu samvisku- semi og einlægni. Öll þau verðugu verkefni kunnum við vel að meta, þótt eðlilegt sé að konur um landið allt beri fyrst og fremst vinarhug og þakklæti til hennar fyrir ómet- anleg og margvísleg störf á vegum Kí. Sigríður er fædd að Völlum í Svarfaðardal 13. nóvember 1913. Foreldrar hennar voru Stefán Baldvin Kristinsson, prófastur, og kona hans Sólveig Pétursdóttir Eggerz. Látlaus og hlýleg framkoma Sigríðar, geðró og glaðlegt viðmót vekja traust og virðingu og bera æskuheimili hennar og uppeldis- áhrifum fagran vitnisburð og sýna að menningarbragur hefur ríkt að Völlum og góðvild til allra manna. Hún á gott með að bianda geði við fólk og er félagslynd að eðlisfari. Á unglingsárunum var hún þó sannfærð um að hún vildi ekki líkjast móður sinni að einu leyti, en hún var virk kvenfélagskona. Sigríður ætlaði ekki að taka þátt í ANNE œ G\RÐAR ásamt Magnúsi Kjartanssyni og úrvali sænskra hljóðfæraleikara. Á hljómplöt- unni eru þrettán lög, þar af fjögur, sem falla einkar vel aö jólahátíðinni. Þetta er jólaplatan, sem endist þér allt árið rÍLADELrfA TORLAG Pöntunarsími 91—20735. neinu félagsstarfi. Móðir hennar átti bara eitt svar við því. „Bíddu bara þar til þú færð áhuga á ein- hverju sérstöku málefni, og sjáðu til hvað gerist," en eins og allir vita urðu áhugamálin fjölmörg og félagsannir hafa krafist mikils af henni. Kvenfélagasamband íslands er landssamband kvenfélaga og mynda hin ýmsu félög minni heildir eftir landshlutum. Héraðs- samböndin eru 22 og félögin sam- tals 248. Sigríður var kosin í stjórn KÍ árið 1965 í formannstíð Helgu Magnúsdóttur á Blikastöðum. Hún hafði stjórnað af mikilli framsýni og atorku. Er Helga lét af formennsku 1971 var Sigríður kosin formaður, en þær höfðu átt ágætt samstarf um sex ára skeið og var hún þá þegar orðin vel kunnug starfsemi KI. Konur höfðu þekkt til starfshátta Sigríðar og framlags hennr til eflingar kven- félagasambandsins. Áður en hún kom í stjórn hafði hún verið full- trúi Félags framsóknarkvenna á þingum KÍ. Formannsstarfinu gegndi hún í 8 ár, en sat síðan áfram í varastjórn, og lagði ný- kjörinni stjórn lið. Ritstjóri Hús- freyjunnar, tímarits KÍ, var hún frá 1968-1971 og aftur frá 1978, en lætur af þeim störfum um nk. áramót. Þegar hún tók við rit- stjórn af Svövu Þorleifsdóttur hafði hún verið 10 ár í útgáfu- stjórninni. Sigríður hefur ferðast víða um landið og haldið félags- málanámskeið og fyrirlestra hjá hinum ýmsu félagsdeildum og hafa þau tengsl síður en svo rofn- að eftir að hún lét af stjórnunar- störfum, því enn er sóst eftir henni til þessara leiðbeininga- starfa. Ritleikni hefur auðveldað henni að vekja athygli félagskvenna á baráttumálum og hugðarefnum kvenfélagasambandsins. Á því sviði hefur hún ekki látið sitt eftir liggja, heldur verið mikilvirk. Auk fjölda ritgerða hefur hún skrifað fræðsluþætti, frásagnir, frum- samdar og þýddar sögur í tímarit okkar, Húsfreyjuna. Rit hennar um sögu Kvenfélagasambands Is- lands, Margar hlýjar hendur, er mikið verk, fróðlegt og skemmti- legt, einkum fyrir þá, sem annt er um sambandið og velferð þess. Fjallar það einnig um héraðssam- böndin og öll félög innan þeirra og kunnum við vel að meta það mikla starf sem hún lagði í upplýsinga- söfnun um öll aðildarfélögin. Henni hefur tekist að draga sam- an meginþættina í traustan sögu- þráð, og gera ritið um leið að- gengilegt. Er þar að finna á einum stað ótrúlega mikinn fróðleik um hin fjölbreyttu og fórnfúsu störf kvenfélaganna. Einnig eru þar upplýsingar um KÍ og ACWW, Al- þjóðasamband húsmæðra, og um aðild KÍ að öðru erlendu félag- asambandi, Nordens Husmorfor- bund (NHF), en þar var Sigríður formaður frá 1976—1980, og hafði þá verið varaformaður undanfarin 4 ár. Vafalaust hefur frásagnargleði létt henni starfið, en ekki skorti hana þjálfun, svo mikið og fjöl- breytilegt sem eftir hana liggur í rituðu máli. Um árabil ritaði hún greinar fyrir dagblaðið Tímann, sá líka um útvarpsþáttinn „Við sem heima sitjum" 1962—1964. Hún hefur skrifað nokkrar bækur og þýtt á annan tug bóka. Þessa dagana koma út tvær bækur sem Sigríður hefur unnið að undanfarið. Önnur þeirra er 60 ára saga Bandalags kvenna í Reykjavík. Hina bókina hefur hún þýtt og heitir hún Augliti til aug- litis, er eftir norska konu, Elínu Bruusgaard, og fjallar um konur í þróunarlöndum. Ótal mörg nefndarstörf hafa henni verið falin, bæði í ríkisskip- uðum nefnum og af ýmsum fé- lagasamtökum innanlands og utan. Við sem höfum unnið með henni þekkjum vel þann drjúga og þaulhugsaða skerf sem hún hefur ávallt lagt til mála, hvort sem fjallað hefur verið um málefni barna, aldraðra, orlof húsmæðra eða fullorðinsfræðslu, svo ekki sé nefnt starf hennar fyrir þroska- heft börn. Á 50 ára afmæli Kl var hún gerð að heiðursfélaga. Sigríður er gift Birgi Thorlacius fyrrv. ráðuneytisstjóra í mennta- málaráðuneytinu. Eru þau hjón einstaklega samhent og hafa kunnað að sameina hamingjuríkt heimilislíf með virkri þátttöku í hinum ýmsu málum þjóðfélagsins. Þau hafa ferðast mikið saman og haft margt að miðla öðrum úr þeim ferðum, svo glögg sem þau eru bæði á menn og málefni, enda eru þau vinmörg og frændrækin með ágætum. Því munu margir samgleðjast þeim á þessum tímamótum og senda þeim hugheilar þakkir og árnaðaróskir. Sérstakar kveðjur og þakkir verða henni færðar á afmælisdaginn frá kvenfélagskon- um um land allt. F.h. Kvenfélagasambands íslands, María Pétursdóttir. Guðmundur Sölvi ÆT Asgeirsson 90 ára Níræður verður á morgun — mánudaginn 14. nóvember — Guð- mundur Sölvi Ásgeirsson, fyrrum skipstjóri á Flateyri og víðar. Hann er Djúpmaður og byrjaði sjósókn barn að aldri og var það ævistarf hans fram í elli. Sölvi var einstaklega góður sjómaður og fengsæll — með afbrigðum ötull og dugmikill. Hann er föðurbróðir Ásgeirs aflakóngs á Guðbjörgu og þeirra bræðra, og allt er þetta rakið úrvalskyn í átt afla og sjó- mennsku. Kona Sölva var Fanney Annas- dóttir, mætiskona, sem hann missti í fyrra. Þau eignuðust 8 börn; 4 stúlkur og 4 drengi, sem allir urðu dugandi sjómenn. Einn þeirra var Torfi heitinn stýrimað- ur á Sandey II. Nú eru aðeins fimm barnanna á lífi; hjónin hafa misst tvo syni sína í sjóinn; Torfa og Berg — og eina dætra sinna, Guðbjörgu, barn að aldri. Afmælisbarnið var fyrir nokkr- um dögum hér syðra, en gat samt ekki fylgt syni sínum til grafar sökum lasleika. Sölvi er þó kominn aftur vestur, heim í Bolungarvík, þar sem hann dvelur í Sjúkraskýl- inu við beztu aðbúð. Vinur 0»v»'»Vt9,V' Leik'°ng Stórglæsilegur köku- og jólamarkaöur í Fáksheimilínu v/Breiðholtsbraut í dag kl. 13.30—16.00. Stórkostlegt úrval af jólagjafa- og jólahalds- vörum á mjög lágu verði. Missið ekki af þessu. Allur ágóði rennur til líknarmála. . , Kiwaniskiúbburinn Elliði. J0/s Otf jó\aPapp'T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.