Morgunblaðið - 03.02.1984, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984
íslenska óperan:
Fjölskylduóperan
Örkin hans Nóa
frumsýnd á morgun
Dansað og sungið við örkina.
Fjölskylduóperan Örkin hans
Nóa eftir Benjamin Britten verður
frumsýnd á morgun, laugardag,
hjá íslensku óperunni i Gamla
bíói. í kringum 130 manns taka
þátt í hverri sýningu, að langmest-
um hluta börn og unglingar, en
þeim til aðstoðar eru fáir en reynd-
ir atvinnumenn. Auk þess eru flest
hlutverkin tvísetin, sem þýðir að
hátt á þriðja hundrað börn koma
við sögu í þessari uppfærslu.
Tónlistaruppeldi barna er eitt
af aðalsmerkjum verka Brittens,
og er skemmst að minnast í því
sambandi Litla sótarans, sem
sýndur var í íslensku óperunni
síðastliðinn vetur. Sjálfur var
Britten mjög fljótur til; fimm
ára gamall var hann farinn að
semja og árið 1923, þegar hann
var tíu ára, átti hann í poka-
horninu sex verk fyrir strengja-
sveit og tíu píanósónötur. Örkina
hans Nóa samdi Britten árið
1957.
Það er óþarfi að rekja söguna
af syndaflóðinu og Örkinni hans
Nóa, hana þekkja flestir, en þess
má geta að Britten notar nær
óbreyttan texta ensks undraleiks
frá miðöldum, sem þá hét Noyes
Fludde.
Jón Stefánsson stjórnar
hljómsveitinni, sem telur um 60
börn, en leikstjórn er í höndum
Sigríðar Þorvaldsdóttur. Þau
Jón og Sigríður sögðu að það
hefði ekki reynst þeim mikið
vandamál að stjórna krökkun-
um, þau væru gífurlega áhuga-
söm og ákveðin í að spjara sig.
Hátt í 300 börn voru prófuð í
aðalhlutverkin, sem eru synir
Nóa og tengdadætur, ásamt fjór-
um skrafskjóðum. í hlutverkin
völdust Guðmundur Hafsteins-
son, Lárus ísfeld og Júlíus Páls-
son, sem synir Nóa, Hrafnhildur
Morifunblaðið/ KÖE
Örkin þéttskipuð dýrum jarðarinnar
r\
”o/ '
■>f
PUHBP
STORMARKAÐSV
Gerid verðsamanburð
Wc pappír 12 rúllur Kr. 75.90
Elshúsrúllur Leni 2 stk. 36.70
Kellogs kornfleks 1. kg. 81.75
Juvel hveiti 2 kg. 24.90
Strásykur 2 kg. 29.00
Gevalía kaffi 24.90
Ritz kex 29.70
Þykkvabæjar franskar 750 gr. 48.50
Kjúklingar tilboösverð 1 kg. kr. 115.50.
Þorramatur, þorrabakkar.
Emmess ís 20%
afsláttur þessa helgi.
Qpiö:
Mánudag—
miövikudag 9—18
Fimmtudaga 9—-19
Föstudaga 9—21
Laugardaga 9—16
m^m
STORMARKAÐURINN
SKEMMUVEGI 4A KÓPAV0GI
Vöruskiptajöfnuður óhag-
stæður um 2 milljarða
HAGSTOFAN hefur reiknað
verðmæti út- og innflutnings á
síðastliðnu ári. Niðurstaðan er
sú að vöruskiptajöfnuður lands-
manna er óhagstæður á árinu
um tæpa 2 milljarða króna, en
var á öllu árinu 1982 óhagstæður
um 3,2 milljarði. í samanburði
við þessar tölur verður að hafa í
huga, að meðalgengi erlends
gjaldeyris á árinu 1983 er 89,2%
hærra en á árinu 1982, þannig
að mismunurinn mllli ára ætti
að vera mun meiri, en áður-
nefndar milljarðatölur gefa til
kynna.
Útflutningurinn á árinu 1983
nam 18,6 milljörðum króna en inn-
flutningurinn nam 20,6 milljörð-
um. Stærstu liðir í útflutningi
voru ál og álmelmi fyrir 3,3 millj-
arða og kísiljárn fyrir 0,6 millj-
arða. Af innflutningi voru stærstu
liðir skip fyrir 0,5 milljarða, inn-
flutningur til íslenzka járnblendi-
féiagsins nam 0,2 milljörðum og
til íslenzka álfélagsins var inn-
flutningur 1,5 milljarðar króna.
Selfoss:
Þorrablót
sjálfstæðis-
félaganna
Sjálfstæðisfélögin á Selfossi hafa
nú ákveðið að taka upp þá nýjung í
félagsstarfinu að halda þorrablót. Gr
það þáttur í að auka fjölbreytni fé-
lagsstarfsins að sögn forsvarsmanna
félaganna.
Þorrablótið verður haldið föstu-
daginn 17. febrúar og þurfa þátt-
tökutilkynningar að hafa borizt
stjórnendum sjálfstæðisfélaganna
fyrir 10. febrúar. Blótið verður opið
öllu sjálfstæðisfólki og gestum þess,
og verður það kynnt nánar í dreifi-
bréfi um næstu helgi.
Úts aia — Út r saia — Utsala
vlv Gólfteppi — UIU VI - teppabútar - vUIU vlvUIU - veggstrigi — veggmyndir —
veggdúkur- (Wkof - vinylkorkflísar
Grensásvegi, sími 83500.