Morgunblaðið - 03.02.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984
Til sölu er jörö
Miklaholt í Borgarfirði. Jörðin er 700 ha og vel girt.
Silungsveiði er í Másvatni. Ræktuð tún eru 18 ha.
íbúöarhús er 172 fm, 2ja hæða steinhús frá 1964 í
góöu ásigkomulagi. 300 kinda fjárhús og 24 hesta
hesthús eru á jörðinni ásamt hlöðum. 30 hross
geta fylgt jörðinni.
Til greina koma skipti á fasteign á Reykjavíkur-
svæðinu.
Steingrímur Þormóðsson hdi.,
Lágmúla 5, sími 81245.
SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR
Árshátíð
SVFR
verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu föstu-
daginn 10. febrúar.
Aögöngumiöasala og boröapantanir á morgun
(laugardag) á skrifstofu SVFR frá kl. 13 til 16.
Félagsmenn fjölmenniö og takiö meö ykkur
gesti á þessa glæsilegu árshátíö.
Skemmtinefnd SVFR
SVFR SVFRSVFR SVFR SVFR SVFR
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
LESEOE
Nýjung i Þórbergsfræðum
Sigfús Daðason skáld skrifar i tilefni nýrra upplýsinga um
Þórberg í Bréfum til Sólu.
Gróöurhúsið Jörö
Þótt harðindi séu óvenjuleg viöa um heim. halda vísinda-
menn áfram að spá stórauknum hlýindum meö batnandi
hag fyrir noröurhjarann.
Fjör og forvitni í
morgunsáriö
Aö sjálfsögöu varö uppi fótur og fit á Morgunblaöinu,
pegar Ijóst var aö brezkur her var aö taka landi, en frá þvi
segir Pétur Ölafsson.
Spænskar kvikmyndir
undir Frankó
Nú stendur yfir kvikmyndahátiö og þar eru sýndar 7
spænskar myndir. Spænskur sendikennari hér skrifar aö
þvi tilefni um spænskar kvikmyndir.
Vöndud og menningarleg helgarlesning
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ARNE OLAV BRUNDTLAND
Hver voru áhrif
Ame Treholts?
Arne Treholt er líklega skóladæmi um útsendara í áhrifa-
stöðu á vegum KGB. Allar gjörðir hans staðfesta lýsingar
þeirra sem komist hafa vestur fyrir járntjald úr kommúnista-
ríkjunum á því hvernig KGB nær í slíka útsendara. Treholt
hefur sýnt mikla starfshæfni í stjórnmálalífi. Mönnum hefur
verið Ijóst að hann fylgdi róttækri vinstristefnu í utanríkis-
málum. Unnt er að gagnrýna og berjast gegn þeirri stefnu á
stjórnmálavettvangi. Treholt aöhylltist minnihlutaviðhorf að
þessu leyti.
Málið verður hins vegar
flóknara þegar til þess er
litið að stjórnmálamaðurinn
Arne Treholt og útsendarinn
Arne Treholt eru einn og sami
maðurinn. Viðhorf hans sem
stjórnmálamanns eiga rétt á sér
í lýðræðisríki. Aðgerðir hans
sem launaðs útsendara í áhrifa-
stöðu verður að flokka sem land-
ráð. Þar með er komið að spurn-
ingunni: Hve mikil áhrif hafði
hann?
EB og „grátt svæði“
Það sýnist liggja ljóst fyrir að
áhrifamáttur Arne Treholts
kann að hafa verið meiri þegar
hann lagði sig fram um að koma
í veg fyrir aðild Noregs að Evr-
ópubandalaginu (Efnahags-
bandalagi Evrópu) og við gerð og
samþykkt samningsins við Sov-
étríkin um „grátt svæði" í Bar-
entshafi en þegar Verkamanna-
flokkurinn mótaði stefnu sína
um kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum og tók afstöðu til
hinnar tvíþættu ákvörðunar
NATO um Evrópueldflaugarnar.
Hann hélt greinilega uppi
þrýstingi þegar tvö síðarnefndu
málin voru til umræðu og af-
greiðslu, en niðurstaðan í þeim
báðum innan Verkamanna-
fiokksins var að veruiegu leyti
önnur en hann vildi. Þá er þess
einnig að gæta að það þurfti
varla á Arne Treholt að halda til
að koma af stað umræðum um
þessi mál. Einhverjir aðrir hefðu
tekið til við að ræða um þau inn-
an flokksins, þótt Arne Treholt
hefði aldrei verið til.
Bréf frá Treholt
Á meðan Arne Treholt starf-
aði sem sendiráðunautur í
norsku nefndinni hjá Sameinuðu
þjóðunum ieit hann svo á að sér
hefði verið ýtt til hliðar í mörgu
tilliti. Af bréfum sem hann sendi
til fyrrum samstarfsmanna
heima í Noregi má sjá að hann
var bitur og vansæll. Eg hef lesið
nokkur þessara bréfa. í þeim er
víða kveðið mjög fast að orði í
reiði og jafnvel hatri vegna
stefnu Verkamannaflokksins í
öryggismálum og á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna. Hann er
einnig ómyrkur í máli um andúð
sína á ýmsum sem hann var áður
nákominn í stjórnmálum og
hafði vonast eftir að stæðu með
sér í því að sveigja ríkisstjórn-
arstefnu Verkamannaflokksins
rækilega til vinstri á árunum
1979 og 1980. Svo sýnist sem út-
sendarinn hafi að minnsta kosti
við þessar aðstæður verið orðinn
næsta áhrifalaus í stjórnmála-
baráttunni.
Arne Olav Brundtland er mag-
ister í stjórnmálafræðum og
stundaði nám við Oslóarhá-
skóla og Harvard-háskóla. Sem
starfsmaður Norsku utanrík-
ismálastofnunarinnar hefur
hann sérhæft sig í rannsóknum
á öryggis- og afvopnunarmálum.
Hann er ritstjóri tímaritsins Int-
ernasjonal Politikk sem stofn-
unin gefur út. Arne Olav
Brundtland skrifar um alþjóða-
mál, öryggismál og afvopnun-
armál fyrir mörg norsk blöð og
nú einnig fyrir Morgunblaðið.
1 stjórnmálafræðinni lærum
við að það er ótrúlega erfitt að
mæla raunveruleg póiitísk áhrif.
Mörg atvik Treholt-málsins
minna okkur á þessa staðreynd.
Klókindi KGB
Öryggislögreglan sem hefur
eftirlit með erlendri undirróð-
ursstarfsemi varar okkur við út-
sendurum í áhrifastöðum og því
hve KGB getur beitt mikilli
slægð og klókindum. Auðvitað á
að taka mark á slíkum viðvörun-
um. Hins vegar eigum við ekki í
höggi við ofurmenni.
Réttlætanlegt samband við
fulltrúa hinna ýmsu greina í sov-
éska þjóðfélaginu, til dæmis á
sviði viðskipta, lista og rann-
sókna, getur í raun verið sam-
band við ósvikna fulltrúa KGB.
Allir þeir sem stunda slík sam-
skipti ættu að hafa þessa stað-
reynd í huga. En þar með er ekki
sagt, að ekki beri að leggja rækt
við nein slík sambönd. KGB hef-
ur yfirsýn og vaid.
Sjálfur hef ég öðlast betri sýn
en ella inn í sovéskan þankagang
með því að ræða við menn sem
voru greinilegir fulltrúar KGB.
Til að mynda hef ég í slíkum
samtölum kynnst því hve gífur-
lega áhersiu Sovétstjórnin legg-
ur á að viðhalda yfirráðum sín-
um í Austur-Evrópu. Fyrir þá
sök er ég ekki ginnkeyptur fyrir
lítt rökstuddum fullyrðingum
um að unnt sé að vinna að
endurbótum í Austur-Evrópu í
samvinnu við Sovétmenn gegn
því að Vesturlönd slái af sjón-
armiðum sínum og iáti hjá líða
að taka nauðsynlegar ákvarðan-
ir um varnarmál.
Hugtakið útsendari í áhrifa-
stöðu ber að skilgreina af yfir-
vegun og nákvæmni, en það á
ekki að hræða okkur til aðgerða
eða skapa hjá okkur viðhorf sem
grafa undan þeim lýðræðislegu
stjórnarháttum sem við viljum
vernda.
Norska öryggislögreglan sendi þessa mynd frá sér þegar hún gaf út
fréttatilkynningu um það í síðustu viku hvernig henni hefði tekist
að sannreyna að Arne Treholt væri útsendari KGB. Myndin er
tekin með leynd í Vínarborg 20. ágúst 1983 og sýnir Arne Treholt
(t.v.) með KGB-stjórnendum sínum, Gennadij Titov, í miðið, og
Alexander Lopatin.