Morgunblaðið - 24.07.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1984
7
Stykkishólmur:
Fegrun umhverfísins
Stykkisbólmi, 16. JÚIC.
SKRÚÐGARÐUR bæjarins, Hólmgarður, var stækkaður mjög
í fyrra og hefir verið unnið mikið í að fegra hann og bæta í
sumar, unglingar hafa unnið þarna undir stjórn fullorðinna og
hefir mikið áunnist og framundan er með tíð og tíma að auka
fjölbreytni gróðurs.
Hólmgarður er við Aðal-
götu og er með því fyrsta
sem mætir ferðamanninum
þegar hann heimsækir
Stykkishólm. Kvenfélagið
ásamt hreppsfélaginu ann-
ast og sér um garðinn.
Kvenfélagið bvrjaði fyrir
löngu þessa starfsemi og
girti ákveðið svæði af, en
mjög erfitt var að koma upp
trjágróðri að nokkru ráði og
töldu margir starfið von-
laust. Nú virðist gæta auk-
innar bjartsýni í þessu og
vonandi á þessi staður eftir
að veita bæði bæjarbúum
og ferðamönnum mikla
ánægju.
Árni.
*
Guðrún Gunnarsdóttir sér um garðinn af hálfu Stykkishólmshrepps, en Auður Júlíusdóttir af hálfu kvenfélags-
ins, en hún hefir um mörg ár unnið mikið verk í að prýða þennan stað.
íslenskir
unglingar
tefldu til
sigurs í
Banda-
ríkjunum
ÍSLENSKIR skákmenn á aldrinum
11—17 ára, 25 talsins, tóku í síðustu
viku þátt í skákkeppnum í New York
í Bandaríkjunum.
íslendingarnir tefldu við ungl-
ingalandslið Bandaríkjamanna á
aldrinum 11—17 ára, sem valið
var af bandaríska skáksamband-
inu, og tókst íslensku unglingun-
um að bera sigur úr býtum. Þeir
hlutu 44 vinninga gegn 38. Tefldar
voru fjórar umferðir og tefldi hver
íslendingur þrjár skákir. Þremur
þeirra tókst að leggja alla and-
stæðinga sína að velli, þeim Þráni
Sigfússyni, Jóhanni Sigurbjörns-
syni og Sigurði Daða Sigfússyni,
sem allir eru í Taflfélagi Reykja-
víkur.
Þá tóku íslendingarnir einnig
þátt í þriggja þjóða keppni þar
sem íslenskir, bandarískir og ísra-
elskir unglingar tefldu. Þar urðu
úrslit þau að íslendingarnir sigr-
uðu, bandaríska liðið varð í öðru
sæti og ísraelsku unglingarnir
ráku lestina.
Hefur íslenska liðinu verið boð-
in þátttaka í þriggja þjóða keppni
í ísrael næsta sumar.
Að sögn Þorsteins Þorsteinsson-
ar, fararstjóra íslenska hópsins,
voru keppnum þessum gerð mjög
góð skil í fjölmiðlum í New York,
m.a. fjallað um þær í fréttatímum
sjónvarpsstöðva og vakti árangur
íslendinganna verðskuldaða at-
hygli.
Frítt stofngjald
að American
Express
— fyrir þá sem sækja
um fyrir 31. júlí
Ferðaskrifstofan Útsýn, sem
hefur einkaumboð fyrir American
Express-greiðslukortin hér á
landi, býður þeim sem sækja um
kortin fyrir 31. júlí næstkomandi
frítt stofngjald.
í fréttatilkynningu frá ferða-
skrifstofunni segir að umsóknar-
eyðublöðum um greiðslukortin og
skriflegu leyfi Gjaldeyriseftirlits
Seðlabanka Islands skuli skilað til
ferðaskrifstofunnar fyrir 31. júlí
næstkomandi.
Tvær kvennaferðir til fröken Parísar með Henríettu og Rósamundu
11. ágúst (1 vika) og 17. ágúst (1 vika)
í París ætlum vlð að:
Fara í tyrkneskt kvennabað
Skoða stærsta markað í París, þar sem konur geta skoðað
allar þær tuskur sem þær vilja
Ganga settlega um skrautgarða Parísarborgar
Fara á skemmtikvöld á veitingastaðnum Chez Felix, þar
sem Henríetta og Rósamunda stela senunni
Horfa á Eiffelturninn (það verður beðið eftir þeim sem
þora upp)
Fara á flot á Signu
Heimsækja Pompidou-safnið
Fara á kvennakaffihús - og fullt af götukaffihúsum
Horfa á sæta stráka bera að ofan og í stuttbuxum
Fara í skoðunarferð um borgina
Þetta er bara brot af því sem hægt er að gera í París. En fyrst og fremst ætlum við kellurnar að hlægja
saman, kjafta saman, borða saman og skoða og skemmta okkur samanl
Verö kr. 13.900
Innifalið: Flug til Luxemborgar, lest til Parísar þar sem konur
hristast saman, og gisting á þægilegu hóteli í latínuhverfinu,
með morgunverði, - og beint flug heim aftur (ásamt
fararstjórum sem seint munu gleymast).
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727