Morgunblaðið - 24.07.1984, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1984
Ferðamál eru ofarlega á baugi
um þessar mundir, sérstaklega
á þessum mesta ferðamanna-
tíma ársins. Þó er einn hluti af
landinu sem ekki hefur fengið
eins mikla umfjöllun og aðrir
þegar verið er að kynna mögu-
leika til ferðalaga á íslandi og
eru það Vestfirðir. Að vísu hef-
ur alltaf verið þó nokkuð um
það að fólk ferðist til Vest-
fjarða, en staðurinn hefur ekki
verið auglýstur sem slíkur
nema að litlu leyti. Að undan-
förnu hefur þó verið reynt að
kynna ýmsa möguleika sem
bjóðast til ferðalaga um Vest-
fírði. Nú hefur Vestfjarðaleið
t.d. tekið upp þá nýjung að hafa
fararstjóra í öllum sínum ferð-
um nema föstudagsferð um
Klofning. Einnig hefur verið
bætt við fleiri ferðum og fjöl-
breyttari, svo að möguleikarnir
aukast til muna.
estfjarðaleið býður upp
á aukna ferðamöguleika
Látrabjarg
ýlega fór
blaðamaður
Morgunblaðs-
ins í ferð um
Vestfirði með
Vestfjarðaleið
til þess að
kynna sér ferðamöguleika á þess-
um slóðum. Um yar að ræða helg-
arferð, og þar á meðal ferð á
Látrabjarg. Ferðin hófst á föstu-
degi og var lagt af stað frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 18.00.
Um kvöldið var ekið í Bjarkarlund
með viðkomu í Borgarnesi og Búð-
ardal. Hægt er að velja um gist-
ingu i Bjarkarlundi eða í Bæ og
koma þeir sem gista í Bæ yfir í
Bjarkarlund til þess að snæða
morgunverðinn. I Bæ eru einungis
svefnpokapláss, en aðstaða þar er
mjög góð. Bjarkarlundur er Eddu-
hótel. Þar er opið 3 mánuði á ári
og eru þar 28 svefnpláss. Boðið er
upp á fullt fæði i Bjarkarlundi og
er á matseðlinum bæði réttur
dagsins og ýmsir smáréttir. Að
sögn Maríu Játvarðardóttur, sem
sér um rekstur Bjarkarlundar í
sumar, hefur verið fullt nú á
mesta annatíma sumarsins. Hún
sagði að ekki væri mikið um pant-
anir, en fólk kemur mikið óvænt.
Frá Bjarkarlundi var lagt af
stað kl. 9.30 á laugardag. Þaðan
var ekið í Flókalund og var komið
þar um kl. 12. Þar var stoppað i
klukkutíma og þar gefst fólki
kostur á að snæða hádegisverð.
Einnig getur fólk notað tímann og
skoðað sig um, því mjög fallegt er
í Vatnsfirðinum. Frá Flókalundi
liggur leiðin um Barðaströnd og
að Brjánslæk, sem er endastöð
flóabátsins Baldurs. Haldið er
áfram sem leið liggur framhjá
Haga og yfir Kleifarheiði. Á þess-
ari leið er margt athyglisvert að
sjá og var Einar Guðjohnsen far-
arstjóri ötull að segja frá. Á leið-
inni út á Látrabjarg er farið fram-
hjá Breiðuvík. Þar er fagurt um að
litast og freistandi að staldra þar
við í einhvern tíma og ganga um
sandströndina í góðu veðri. En
ekki gafst tími til þess að þessu
sinni. Síðan er ekið framhjá
Hvallátrum, vestustu byggð á
landinu. Á Látrabjargi var dvalið
nokkra stund og gafst góður tími
til að mynda fuglana. Lundinn er
svo spakur að hægt er að ganga
næstum alveg að honum. Þarna er
mikið fuglalif eins og frægt er og
komast þeir, sem hafa áhuga á
fuglalífi, í feitt þarna á bjarginu.
Það er skemmtileg tilfinning að
standa á einum vestasta odda í
Evrópu. Ef ferðamenn hafa meiri
tíma, gefst þeim tækifæri til þess
að skoða staðinn betur og þá er
auðvelt að gista eina nótt í Breiðu-
vík. Þar reka þau hjónin Árnheið-
ur Guðnadóttir og Jónas Jónsson
farfuglaheimili. Þetta var áður
upptökuheimili fyrir unglinga og
er húsnæðið mjög stórt. Þau hjón-
in hafa verið að gera það upp
smátt og smátt og er aðstaða nú
orðin mjög góð. Þarna hafa þau
komið sér upp smálager frá kaup-
félaginu og geta ferðamenn birgt
sig upp af nauðsynjavörum. Við
stöldruðum aðeins við þarna í
Breiðuvík og er óhætt að mæla
með þessum stað til dvalar (lengri
eða skemmri tíma.
Næst lá leiðin í átt til Patreks-
fjarðar, en á leiðinni komum við i
byggðasafnið að Hnjóti. Þarna er
lítið en mjög skemmtilegt safn
sem er til húsa í nýrri og fallegri
byggingu. Frá Patreksfirði er
haldið til Tálknafjarðar og þaðan
er farið yfir fjallveginn Hálfdán
og komið niður í Arnarfjörð
skammt frá Bíldudal. Við komum
næst í Dýrafjörð og var aðeins
staldrað við á Þingeyri. Síðan lá
leiðin í Önundarfjörð og var farið
yfir fjörðinn á nýlegri brú sem
styttir leiðina mikið. Þá var farin
Breiðadalsheiði og komum við til
ísafjarðar um kl. 11 um kvöldið.
Næsta morgun var lagt af stað
kl. 8.00. Farin var svokölluð Djúp-
leið og er þá þrætt fyrir alla firð-
ina við ísafjarðardjúp. Á þessari
leið er margt fallegt að sjá. Firð-
irnir eru langir og þröngir og er
langt á milli bæja. Áð er í skála
Djúpmannafélagsins f Heydal í
Mjóafirði. í ísafjarðardjúpi eru
eyjarnar Æðey og Vigur og hin
snjóþunga Snæfjallaströnd blasir
við ferðamönnunum. Við ókum inn
Langadal og upp á Þorskafjarð-
arheiði. Mjög fallegt er að líta
niður f Langadal þegar upp á
brúnina er komið. Sfðan er ekið
suður heiðina og komið niður f
Þorskafjörð og ekið í Bjarkarlund.
Þá er þessari hringleið lokið, því
nú er farin sama leið suður um
Búðardal og Borgarnes.
Þegar til Reykjavíkur kom kl.
20.00 á sunnudagskvöld voru far-
þegarnir hans Sigurjóns Karls-
sonar bílstjóra allmiklu fróðari en
áður en lagt var af stað. Því má
þakka góðri leiðsögn Einars Guð-
johnsen og einnig má bæta því við
að bílstjórinn sjálfur er mjög
fróður um menn og málefni á
þessari leið, enda hefur hann ekið
hana í mörg ár og kynnst mörgu
fólki.
Eftir ferðina átti blaðamaður
spjall við Jóhannes Ellertsson,
sem rekur Vestfjarðaleið. Hann
sagði að fyrst hafi verið gerð til-
raun með að hafa leiðsögumann í
fyrrasumar. Hefði þetta mælst vel
fyrir hjá farþegunum, svo ákveðið
var að hafa þennan hátt á f tvo
mánuði í sumar, júlí og ágúst.
Einnig hefur Véstfjarðaleið bætt
við ferðum og reynt að skipuleggja
þær þannig að þær komi sér vel
fyrir ferðamenn, sem vilja skilja
bílinn eftir heima og aka áhyggju-
laust um Vestfirði. Jóhannes
nefndi nokkra möguleika sem
Vestfjarðaleið býður upp á. I Ferð
1 er farið frá Reykjavík um firði
til ísafjarðar. Hún er farin alla
mánudaga og fimmtudaga og er
lagt af stað kl. 8 frá Reykjavfk og
komið til ísafjarðar um kl. 21.
Helstu áningastaðirnir eru Borg-
arnes, Búðardalur, Bjarkarlundur,
Flókalundur og Þingeyri. Ferð 2 er
farin á þriðjudögum og miðviku-
dögum og er lagt af stað frá fsa-
firði kl. 8 og ekin öfug leið við Ferð
1. Ferð 3 er til og frá Patreksfirði.
Á mánudögum til Patreksfjarðar
og á þriðjudögum frá Patreksfirði.
Ferð 4 er farin frá Reykjavík um
Djúp og til ísafjarðar á þriðjudög-
um. Ferð 5 er frá ísafirði um Djúp
og til Reykjavíkur á föstudögum
og sunnudögum. Ferð 6 er eins-
dagsferð sem farin er á hverjum
föstudegi kl. 8 um Dalabyggðir.
Ferð 7 er helgarferð á Látrabjarg
og er þetta sama ferðin og lýst
hefur verið hér að framan og verð-
ur hún farin allar helgar f sumar.
Ein slík ferð verður farin um
verslunarmannahelgina en með
aðeins öðru sniði. Þá verður farin
bátsferð frá ísafirði í Hornvík og
aftur til ísafjarðar á sunnudegin-
um og verður ekki farið til
Reykjavíkur fyrr en á mánudegin-
um. Ferð 8 er sex daga ferð um
Vesturland og Vestfirði. Þá er lagt
af stað frá Reykjavík með áætlun-
arbílnum til Stykkishólms.
Seinnipart dags getur fólk skoðað
sig um á staðnum og er gist í Hót-
el Stykkishólmi eða f tjaldi eftir
því hvað menn vilja. Næsta morg-
un er lagt af stað kl. 9 og ekið út
fyrir Jökul. Komið er við í
Grundarfirði, Ólafsvík, Rifi, Hell-
issandi, Lóndröngum, Arnarstapa
o.fl. Aftur er gist í Stykkishólmi
næstu nótt, en farið þaðan næsta
dag með flóabátnum Baldri til
Brjánslækjar með viðkomu f Flat-
ey á Breiðafirði. Gist er í Flóka-
lundi næstu nótt. Á föstudegi er
ekið út á Látrabjarg og gist f
svefnpokaplássi í Breiðuvík, sem
getið var um hér að framan. Á
laugardag sameinast hópurinn
Ferð 7 og er ekið til Isafjarðar um
Patreksfjörð, Bíldudal og Þing-
eyri. Þessa nótt er gist á ísafirði
og er lagt af stað þaðan á sunnu-
dagsmorgni og ekið um Djúp og
Þorskafjarðarheiði til Reykjavík-
ur. Ferð 9 er sérstök ferð frá ísa-
Firði á Látrabjarg. Þá er hægt að
fara með Ferð 5 um Djúp í Bjark-
ariund eða Bæ og gista þar. Á
laugardagsmorgni er svo samein-
ast Ferð 7, ekið út á Látrabjarg og
til ísafjarðar um kvöldið. Annar
möguleiki er 4 daga ferð og er þá
farið á miðvikudagsmorgni með
Ferð 2 í Flókalund, gist þar f 2
nætur og sameinast Ferð 8 á
föstudagsmorgni út á Látrabjarg
og i Breiðuvfk og siðan tl ísafjarð-
ar á laugardegi. Einnig er hægt að
fara í Flókalund á fimmtudegi,
fara á Látrabjarg á föstudegi,
gista einn dag i Breiðuvfk og aftur
til ísafjarðar á laugardegi. Rétt er
að benda ísfirðingum á að þeir
geta farið f eins dags ferð um
Vestfirði á þriðjudögum. Þá legg-
ur bíll af stað frá ísafirði kl. 8 að
morgni og fer um firði í Bjarkar-
lund. Þar mætir hann bíl sem
kemur úr Reykjavik og fer Djúp-
leiðina til ísafjarðar. Af þessari
upptalningu má sjá að möguleik-
arnir til ferðalaga eru óþrjótandi.
Þegar Jóhannes Ellertsson var
spurður að þvi hvað hann teldi
hafa valdið því að ekki var á Vest-
firði sem hentugar ferðamanna-
slóðir til þessa, sagði hann að þar
til fyrir nokkrum árum hafi að-
staðan ekki verið fyrir hendi. Að-
alástæðan fyrir því sagði hann
vera þá, að ekki var boðið upp á
gistingu og mat nema á örfáum
stöðum. Þetta er löng leið og fólk
verður að geta treyst því að hægt
sé að fá þessa þjónustu á leiðinni.
Nú hefur þetta breyst mikið til
batnaðar og má í því sambandi
nefna sem dæmi nýja hótelið á ís-
afirði og farfuglaheimilið f
Breiðuvfk. Jóhannes minntist
einnig á vegina. Að hans mati
hafa þeir batnað til mikilla muna
á undanförnum árum og sagði
hann að þetta gerði það að verkum
að öll ferðalög verða miklu
skemmtilegri og auðveldari. Jó-
hannes sagði að þeir hjá Vest-
fjarðaleið hafi alltaf reynt að hafa
góða bíla á þessari leið til þess að
auka þægindin fyrir farþegana.
Hann sagðist vera mjög bjartsýnn
á að ferðamál á Vestfjörðum verði
tekin föstum tökum í framtíðinni,
því nýlega var stofnað Ferðamála-
samband Vestfjarða, sem bundnar
eru miklar vonir við. Fyrir tveim-
ur árum var stofnuð Ferðaskrif-
stofa Vestfjarða og hefur hún að-
setur á ísafirði. Allt þetta verður
væntanlega til þess að litið verður
á Vestfirði sem áhugaverða ferða-
mannaleið. Jóhannes sagðist að
lokum vona að þessar tilraunir
Vestfjarðaleiðar til að auka fjöl-
breytni f ferðum og hafa leiðsögn f
ferðunum verði til þess að fólk
geti notið þess að skoða sig um á
Vestfjörðum. Leiðsögnin gefur
þessari löngu ferð mikið gildi, ekki
aðeins fyrir ferðamennina, heldur
einnig fyrir þá sem eru að fara á
sínar heimaslóðir og vilja fræðast
um landið i leiðinni.