Morgunblaðið - 24.07.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 24. JtJLl 1984
19
LÓÓsm. Mbl./Emilia
Dino Brun Pedersen og David Marlow, í heimsókn hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð, umboðsfyrirtæki Digital á
íslandi.
Að gera flók-
ið mál einfalt
— Rætt við David Marlow, forstjóra
Digital-tölvufyrirtækisins í Danmörku
„MÍN fyrstu kynni af íslend-
ingum og áhuga þeirra á tölv-
um voru árið 1973. Þá starfaði
ég hjá aðalstöðvum Digital í
Massachusetts og þangað
komu aðilar frá háskólanum
ykkar til að kynna sér tölvu-
búnað fyrirtækisins. Þeir urðu
reyndar fyrstir til að kaupa
Digital-kerfi til íslands,“ sagði
David Marlow, forstjóri Digi-
tal-tölvufyrirtækisins í Dan-
mörku. Hann var nýlega
staddur hér á landi ásamt sölu-
fulltrúa sínum fyrir íslands-
markað, Dino Brun Pedersen.
„Frá þvi að fyrsta tölvukerfið
var sett upp f Reiknistofu há-
skólans 1975—76 hafa mörg
bæst við og Digital-tölvubúnað-
ur hefur nú víða verið settur upp
á tslandi. Bæði innan veggja
Vegagerðar ríkisins, í bðnkum,
hjá Pósti og síma og ýmsum
iðnfyrirtækjum."
Hvaða tölvukerfi Digital hefur
mest verið selt á íslandi?
„Það fer nokkuð eftir því við
hvað er átt. Af svokölluðu VAX-
system-kerfi hafa tólf verið sett
upp á íslandi, en það er mjög
stórt og umfangsmikið tölvu-
kerfi. VAX-tölvurnar eru 32 bita
tölvur sem möguleiki er á að
samtengja í eitt kerfi með tölvu-
neti sem við nefnum DECnet.
Slíkt tölvunet er þannig að hver
tölva sem því er tengd getur
unnið sjálfstætt, og ef þess þarf
sótt upplýsingar til annarra
tölva sem eru tengdar netinu. Til
að mynda eru allar tölvur í sölu-
stöðvum og framleiðsluverk-
smiðjum Digital samtengdar í
slíkt net. Fjöldi tölva í þvf er nú
yfir 1000 talsins, víðsvegar um
heim.
Þá seljum við einnig hingað
Rainbow- og Professional-einka-
tölvurnar og allan hugbúnað
sem framleiddur er a vegum
Digital. 16 bita tölvan PDP-11
var sú fyrsta sem sett var á ís-
lenskan markað 1975 og um 100
slík kerfi eru nú á íslandi. PDP-
11 er því mest selda tölvan ef
miðað er við fjölda. Af henni eru
margar gerðir, allt frá ein-
notendatölvum upp í tölvukerfi
með yfir 30 notendur."
Hvað er Digital umfangsmikið
fyrirtæki.
„Umsvif fyrirtækisins hafa
farið ört vaxandi frá þvf að ég
hóf þar störf 1968. Þá störfuðu
hjá því um 2.600 manns, en frá
því að Kenneth H. Olsen stofn-
aði Digital árið 1957 hefur
starfsmannafjöldinn vaxið jafnt
og þétt og nú starfa hjá því um
75.000 manns. Digital hefur unn-
ið sig upp í að vera í öðru sæti á
evrópska tölvumarkaðnum, á
eftir IBM, og heildarvelta ársins
1983 voru 4,8 billjónir Banda-
ríkjadala. Þá var hagnaður árs-
ins 1983 um 300 milljónir Banda-
ríkjadala, sem er tæp 70% af
veltunni og það þykir mjög gott.
Þetta segir nokkra sögu um um-
svif Digital.
— Annast skrifstofan í Dan-
mörku viðskipti Digital á Norð-
urlöndum?
„Nei, hvert Norðurlandanna
hefur sína eigin Digital-
skrifstofu. Samstarf á milli um-
boðsaðila okkar á Islandi,
Kristjáns ó. Skagfjörð, og
dönsku skrifstofunnar hófst árið
1975.“
Á hvaða búnað leggur Digital
mesta aherslu nú?
„Það sem í augnablikinu vekur
mesta athygli af framleiðslu
fyrirtækisins er Micro-VAX-
tölvan, sem um þessar mundir er
að koma á evrópskan markað. Sú
tölva er nýjasti meðlimurinn í
VAX-fjölskyldunni, en Digital
hefur byggt kerfið þannig upp að
ekki þarf að skipta um hugbúnað
þó að breytt sé um VAX-tölvu. í
MicroVAX er hægt er að keyra
forrit frá t.d. stórfi VAX-u/780-
tölvu, sem hefur um 100 notend-
ur, eins og Reiknistofa háskól-
ans er með. Micro-VAX-tölvan
kostar svipað og stór einkatölvu-
kerfi.
DECnet-kerfið er einnig eitt
af okkar stóru trompum á mark-
aðnum. Með því má samtengja
nær ótakmarkaðan fjölda tölva.
Fyrsta DECnet-kerfið á tslandi
verður sett upp nú í sumar hjá
Vegagerð ríkisins. Uppsetning
þess verður þannig að stór
VAX-tölva verður staðsett 1
Reykjavík, sem síðan tengist
tölvum á umdæmisskrifstofun-
um víðsvegar um land með
DECnet-móðurtölvu.
Þá hefur Digital tilkynnt um
komu DECtalk á markaðinn, en
með því gerir Digital-tölvu kleift
að tala á enskri tungu. Reyndar
getur fólk valið um átta mis-
munandi raddtilbrigði. Þróunin í
tölvuheiminum í dag er að gera
flókið mál einfalt og DECtalk er
skref í þá átt að gera sem flest-
um kleift að geta unnið við tölv-
ur.
Þannig getum við velt því
fyrir okkur hvað komi næst.
Ilraumurinn hlýtur að vera að fá
tölvu sem ekki einungis talar
heldur sem hægt er að tala við
og það á venjulegu máli í stað
forritunarmáls. Ég ímynda mér
t.d. að hægt sé að framleiða
tölvu sem gæti lesið úr bréfum,
þannig að maður sem t.d. væri
staddur víðsfjarri sinni skrif-
stofu gæti hringt í tölvuna og
hún lesið til baka þau bréf sem
honum hafa borist. Þetta er
náttúrulega einungis hugmynd
en ég yrði ekki hissa á að sjá
hana á almennum markaði inn-
an skamms tíma!
Tölvutæknin gefur ótrúlega
marga möguleika. Þannig má
t.d. tengja tölvu við myndband í
kennsluskyni. Þetta hefur verið
gert með Digital-tölvur og gefist
vel, bæði varðandi þjálfun bif-
vélavirkja, bilasmiða og flugvél-
virkja. Þá er nemandanum gefið
ákveðið verkefni til að leysa.
Hann sest niður með sjón-
varpsskerm fyrir framan sig þar
sem „viðgerðin“ fer fram. Hann
fylgist með og er spurður hvað
skuli gera næst, hann svarar og
viðgerðin heldur áfram sam-
kvæmt svarinu. Ef hann svarar
rangt sýnir tölvan honum hvað
hann hefði réttilega átt að gera
og hvernig. Vélmenni eru síðan
annað dæmi um samspil tölva
við annars konar tækni.“
Þú talar um DEC-þetta og
DEC-hitt. Hvað þýðir DEC?
DEC er í raun skammstöfun á
„Digital Eguipment Corpora-
tion“. Það má segja að við séum
að koma okkur upp svona DEC-
tölvufjölskyldu. Við erum komn-
ir með DECtalk, DECnet, DEC-
text og DECmate. Það væri því
ekki óhugsandi að „fjölskyldu-
faðirinn" kæmi á markaðinn
fyrir rest undir heitinu „DEC-
man“,“ sagði David Marlow að
lokum.
F0WMIFRI
FEWUMSJMB
FEmMIÐSTÖÐINNI
L0ND0N
Flug, flug og bíll, flug og gisting á góðum
Hótelum í London eða sumarhúsum í
Bretlandi, flug og bátur.
Vikuferð verð frá kr. 10.656.
FRANKFURT
Flug og bíll / flug og gisting - hótel eða
sumarhús 1,2, 3, 4 vikur.
Verð frá kr. 9.805.
PARÍS
Flug og bíll / flug-og gisting.
Vikuferð frá kr. 9.118.
FLUG-BÍLL-
SUMARHÚS
Oberallgau í Suður-Þýskalandi 1,2, 3, 4
vikur. Brottför alla laugardaga.
Verð frá kr. 11.592.
LUXEMB0RG
Flug og bíll / flug og gisting, alla föstudaga.
Vikuferð verð frá kr. 10.100.
KAUPM.HÖFN
Flug - gisting - bíll. Brottför alla föstudaga.
Verð frá kr. 11.600.
s.sos.
9.//S.
/2474.
/o./oo.
//.600.
STOKKHÓLKI EE2
Flug og bíll / flug og gisting. Vikuferðir.
Verð frá kr. 13.097.
0SLÓ
/0.676.
Flug og bíll / flug og gisting. Vikuferðir.
Vcrð frá kr. 10.676.
★
OFANGREINI) VERÐ ERU PR.
MANN OG MIÐAST VIÐ 4 í BÍL
BENID0RM
í leiguflugi eða með viðkomu í London. 1. ágúst - 3. ágúst
22. ágúst - 24. ágúst - 12. september - 14. september og 3.
október 3 vikur. íbúða eða hótelgisting.
ELDRI BORGARAR
Ath. 3. október - eldri borgarar, við bjóðum ykkur fyrsta
flokks gistingu á Hótel Rosamar. Leiðsögumaður og
hjúkrunarkona á staðnum.
Fáðu upplýsingar og lciðbeiningar hjá okkur um ferðamátann
sem hentar þér. _________________
figR FERÐfl
11MHDSTOOIN
AÐALSTRÆTI9 S. 28133
BJARNI DAGUR AUGl TEIKNISTOf A