Morgunblaðið - 24.07.1984, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLl 1984
Innilegt þakkUeti sendi ég öllum þeim sem sendu mér
gjafir og ámaðaróskir á 70 ára afmæli mínu þann 12.
júlí sl.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Lokað
vegna sumarleyfa frá 27. júlí til 3. september.
Fatapressan Úöafoss.
Vitastíg 13.
Kork*o»Plast j£,
Sænsk gæða-
vara
KORK-gólfflísar
með vinyl-
plastáferö.
Kork*o*Plast
í 10 geröum
Og nú er komiö
þaö nýjasta frá
Wicanders
Cork*o*Floor
Kork O Floor er nýjasta gerðin frá Wicanders sem
er ekkert annaö en hiö viöurkendna Kork O Plast
límt á þéttpressaöar viöartrefjaplötur, kantar meö
Nót og gróp, þykkt 9 mm. Leysir vandamáliö fyrir
þig þegar lagt er á gamalt gólf slitiö. Kunnir þú
aö halda á sög getur þú lagt á gólfiö sjálfur. Engin
vandamál. Þú leggur á gamla slitna gólfið án
þess aö þurfa aö laga þaö nokkuö áöur.
Einkaumboð á íslandi fyrir WICANDERS
KORKFABRIKER.
Hringið efftir ókeypis sýnishorn og bæklingi.
bb Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
'Armúla 16 síml 38640
m JtfgnnVI te * íb
* Metsölublad ú hverjum degi!
Við þurfum að
vinna saman
Athugasemd frá Félagi íslenskra danskennara
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi frá Félagi íslenzkra dansk-
ennara:
Þar eð formaður Danskennara-
sambands íslands, DSÍ, hefur kos-
ið að fjalla um deilur danskennara
í fjölmiðlum og með framkvæmd
sinni þar komið með heldur lág-
kúrulegar ásakanir, er rétt á þessu
stigi málsins að leiðrétta hr. for-
manninn.
Við hörmum þá afstöðu, sem þið
hafið tekið og þá ákvörðun ykkar
að fjalla um ágreiningsmál okkar í
fjölmiðlum, þar sem ekki hafa
verið gerðar tilraunir til sátta. En
ykkar er valið.
Formaður DSÍ, Hermann Ragn-
ar Stefánsson, getur þess, að Fé-
lag íslenskra danskennara hafi
verið stofnað í fljótræði á sama
tíma og DSÍ fagnaði tuttugu ára
afmæli. Hann telur stofnun FÍD
hafa verið mikil mistök.
Ástæðan fyrir stofnun FÍD er
einfaldlega ráðríki og einokun-
arstefna ráðamanna DSÍ.
14 félagar úr DSl (ekki 3—4 eins
og Hermann segir) þar með talinn
prófdómari ásamt stjórnarmeð-
limum höfðu gefist upp á að fá
fram lagfæringar og aukna
dansmennt meðal danskennara.
Þessir fyrrum meðlimir DSÍ sættu
sig ekki lengur við þá einokun og
mannréttindaskerðingu sem höfð
var í frammi hjá DSL Ef ungir og
starfsglaðir danskennarar vilja
sýna hvað í þeim býr og reyna að
efla dansmenntun landsmanna er
þeim umsvifalaust stillt upp við
vegg og reynt á allan hugsanlegan
hátt að brjóta þá niður, bæði
opinberlega og með rógburði inn-
an vébanda DSl. Þess vegna komu
þeir saman til að funda um hags-
munamál sín. Að sögn núverandi
formanns DSÍ, hefur hann sjálfur
orðið fyrir slíkri árás og er því
óskiljanlegt að hann skuli lúta svo
lágt að vera með vafasamar að-
dróttanir í fjölmiðlum, sem eiga
sér enga stoð í veruleikanum. Vi
héldum að Hermann væri heil-
steyptur og trúverðugur maður,
sem ynni dansinum og myndi því
berjast fyrir jákvæðu samstarfi
danskennara til að efla og auka
dansmennt landsmanna allra.
Eftir marga fundi þótti full-
reynt að áframhaldandi vera í DSl
kæmi ekki neinu góðu til leiðar og
þess vegna varð sú niðurstaða
þessara aðila að betra væri að
stofna nýtt félag danskennara á
fslandi. Félag íslenskra danskenn-
ara var stofnað 8.4.’84.
Hermann ætti að vita þetta, því
honum var boðið á fund FÍD, enda
hefði hann átt að vita áður um
ósætti í DSÍ, hefði hann mætt á
fundi þar undanfarin ár.
Hermann sat fund FÍD-félaga,
þar sem rætt var um framtíð fé-
lagsins og dansmenntunar al-
mennt. Hann kvaddi sér hljóðs og
lét mörg lofsamleg orð falla um
framtak þessa unga hóps dans-
kennara. Hermann gerði meira,
því hann talaði einnig um DSl og
sagði að það væri ekki hægt að
vinna með því félagi. Margt tíund-
aði Hermann til, sem hægt væri
að skrifa um, en við skulum láta
„Við teljum það eðlileg
mannréttindi að geta
sótt fræðslu erlendis
eða getað fengið er-
lenda danskennara
hingað til landsins til að
auka þekkingu okkar
allra.“
það bíða um sinn. Okkur félögum í
FÍD er það ráðgáta hvers vegna
Hermann snerist svo snöggt.
Gætu það verið persónulegir hags-
munir?
I fjölmiðlum segir Hermann fé-
laga í FlD mestanpart með tak-
mörkuð réttindi, hálft próf. Ákaf-
lega lágkúruleg athugasemd, sem
kemur úr hörðustu átt. Hann segir
einnig að við höfum ekki reiknað
með Alþjóðasambandi danskenn-
ara sem afli til að stöðva okkur.
Stöðva okkur með valdi. Væri ekki
réttast að auka samkeppnina með
kennslu. Nei, það kostar vinnu,
betra er að stöðva okkur öðruvísi.
Við vissum um Alþjóðasamband
danskennara. Við vissum einnig
um þá hótun ykkar og langþráða
ósk um að nú loksins gætuð þið
stöðvað okkur. Hafið þið gert ykk-
ur grein fyrir því hver tilgangur
Alþjóðasambands danskennara
er? Væri ekki tími til kominn að
þið læsuð reglurnar og kynntuð
ykkur tilganginn?
Hermann segir, að Alþjóðasam-
bandið viðurkenni aðeins eitt fé-
lag í hverju landi. Hið rétta er að í
þeim löndum þar sem fleiri en eitt
félag eru starfandi, kjósa þau eina
samstarfsnefnd — nokkurs konar
ráð — sem er síðan viðurkennt af
Alþjóðasambandinu. Síðan leita
félögin til þessa ráðs, ef meðlimir
óska eftir að fara utan til próftöku
og einnig ef ósk er um að fá er-
lendan kennara eða prófdómara
til viðkomandi lands. Einnig segir
Hermann að aðild að Alþjóðasam-
bandinu sé nauðsynleg til þess að
geta farið utan að læra nýja
dansa.
Það er ekki heldur rétt, því hver
sem vill getur sótt nám í dansi
erlendis. Það er einungis próftaka,
sem háð er aðild að Alþjóðasam-
bandinu, sem er í sjálfu sér afar
mikilvægt mál.
Alþjóðasamband danskennara
a) var ekki stofnað til höfuðs
FlD-mönnum né öðrum dans-
kennurum,
b) var ekki stofnað til að einn
kennari gæti kúgað annan,
c) var stofnað til að sameina
danskennara í öllum heiminum,
d) veit að það eru mörg danskenn-
arafélög í hverju landi,
e) telur, að félögin geti komið sér
saman um ráð, sem hefur sam-
skipti við Alþjóðasambandið
fyrir viðkomandi land.
Hafið þið þroska til að axla þá
ábyrgð, sem þið hafið tekið ykkur?
Alþjóðasamband danskennara
var stofnað til að sameina kröfur
danskennara um allan heim —
hvers vegna getið þið ekki skilið
það? Þið kjósið vafasama reglu og
ætlið að hindra eðlilega fram-
þróun dansmenntunar hérlendis.
Við efumst um að Alþjóðasam-
bandið muni halda til streitu
heimild DSÍ, ef þeir vissu allan
sannleikann um vinnubrögð
þeirra DSÍ-manna.
Ef við félagar í FÍD getum ekki
kennt lengur sökum stöðnunar,
munum við hætta. Það er einnig
skoðun okkar að réttu vinnubrögð-
in séu ekki boð og bönn. Ef þið
valdið ekki verkefninu, þá getið
þið ekki ætlast til að aðrir hætti
og minnki kröfur sínar.
Skólar innan FÍD eru í takt við
tímann. Ungir, hressir og kraft-
miklir danskennarar, sem ekki
hafa trassað dansinn. Við teljum
það eðlileg mannréttindi að geta
sótt fræðslu erlendis eða geta
fengið erlenda danskennara hing-
að til landsins til að auka þekk-
ingu okkar allra. Hættið að hugsa
um þessa þrálátu ósk ykkar um
takmörkun, því það er stöðnunar-
merki. Það eru til fleiri spor en
frumspor.
Ekki erum við í neinum vafa
um, að í upphafi, þegar DSl var
stofnað, hafi hugur ykkar stefnt
hátt og ásetningur verið góður.
Aftur á móti hafa mistökin verið
of mörg undanfarin ár og lausn
þeirra ekki fundin í fjölmiðlum.
ViA þurfum að vinna saman.
Heppilegasta lausnin er að halda
fund um málin. Málefnalega er
þetta þras vafalaust leyst með
þeirri tillögu sem kom frá FÍD,
sem er góð lausn. Því ekki að
svara henni?
Ef stofnuð yrði starfsnefnd, sem
Alþjóðasambandið viðurkenndi
hér, eins og í öðrum löndum, þar
sem fleiri en eitt félag danskenn-
ara starfar, væri málum okkar
allra borgið og við sem stundum
danskennslu gætum starfað sam-
an á réttan hátt og eflt dans-
menntun hérlendis til jafns við er-
lendan vettvang.
Sigurður Hákonarson formaður
og Níels Einarsson varaformaður
Félags íslenskra danskennara.
Ferð safnaðar Áskirkju
á Snæfellsnes 28.—29. júlí
Laugardaginn 28. júlí verður
safnaðarferð á vegum Áspresta-
kalls vestur á Snæfellsnes. Lagt
verður af stað frá Áskirkju við
Vesturbrún kl. 10 og ekið vestur
undir Jökul, þar sem víða verður
komið við á athyglisverðum slóð-
um. Aðfaranótt sunnudags verður
gist í Grunnskólanum í Olafsvík.
Eftir messu í ólafsvíkurkirkju,
sem verður kl. 11 á sunnudags-
morgninum, verða merkisstaðir
utan Ólafsvíkurennis skoðaðir og
síðan haldið suður á bóginn á ný
og komið til Reykjavíkur um
kvöldið.
Þátttakendur eru beðnir að hafa
með sér nesti, svefnpoka og vind-
sæng og áríðandi er að þeir til—-
kynni þátttöku sína í sima 685377
eða hjá Þuríði, síma 81742, og
sóknarpresti, síma 33944 og 84035
fyrir 25. júli og veita þau allar
nánari upplýsingar.
(FrétUtilky nníng)
T M Y N
SUÐURLANDSBRAUT 2 S. 82219;
í HÚSI
HÖTEL ESJU
Þú fylgist með litmyndum þlnum
framkallast og kóplerast á 60
mlnútum. Framköllun sem ger-
ist vart betri.
Á eftir getur þú ráöfært þig vió
okkur um útkomuna og hvernig
þú getur tekið betri myndir.
Opiö trá k1. 6 — 16.