Morgunblaðið - 16.12.1984, Page 2

Morgunblaðið - 16.12.1984, Page 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984 sem fæddur er og uppalinn í Hrísey Styttan af Hákarla-Jörundi f Hrísey. „Jú, Hákarla-Jörundur var langafi minn. Hann fékk þetta viðurnefni þar sem hann fiskaði ákaf- lega vel á hákarl, þetta var upphaflega fátækur strákur sem gerðist útgerðarmaður.“ Kaupangur, eitt elsta húsið í Hrísey, byggt af Hákarla-Jörundi. Björn Ólason er fæddur og uppalinn í Hrísey og býr ásamt konu sinni, Sigfríði Jónsdóttur úr Grímsey, í húsinu Selaklöpp þar sem hann er upp- alinn. „Afi bjó í þessu húsi. Ég er fæddur 1912, og alinn upp á út- gerðarheimili. Eg var ekki nema 7 ára gamall þegar mamma dó, og pabbi dó seint á árinu sem ég var fermdur. Við vorum tveir bræður og afi og amma tóku okkur að sér, amma dó svo stuttu síðar en afi ól okkur upp. Við bræðurnir fórum snemma út í útgerð, þegar pabbi deyr, verð- ur Garðar bróðir minn formaður og ég landformaður, því gamli maðurinn var orðinn svo gamall. Þannig gekk þetta fram að stríði. I þá daga voru flestir hér í Hrísey landróðrabændur, hver með sína bryggju og menn verk- uðu sinn fisk sjálfir. Ég man eft- ir 19 bryggjum hér í Hrísey, þetta voru gamlar timburstaura- bryggjur, við eina bryggjuna voru að vísu 7 bátar. Það er ann- að en í dag, nú erum við bara með eina bryggju og einn hafn- argarð! Við bræðurnir byrjuðum að gera út 1939, þá byggðum við 26 tonna bát sem hét Björn Jör- undsson í höfuðið á afa. Á síld- arárunum stofnuðum við hluta- félag um 105 tonna bát sem smíðaður var í Svíþjóð, en stuttu síðar losna ég úr viðjum útgerð- arinnar, og var í 30 ár ferðamað- ur um landið, í síldarmati og fiskmati. f þessu starfi var ég óslitið þar til Síldarmat ríkisins var lagt niður, vann þá hér f ferskfiskmati þar til fyrir 2—3 árum, er ég fór að vinna i frysti- húsinu hérna, vinn við að brýna hnífa og þess háttar. Ég var oft lítið heima þessi ár sem ég var í síldarmatinu. Fór yfirleitt í júní og júlí, kom stundum ekki heim fyrr en í apr- íl, nema rétt um jólin. Þó man ég eftir einum jólum þar sem ég komst ekki heim. Þetta var gam- an ! fyrstu, en það fór fljótt glansinn af þessu. Með góðri samvisku get ég sagt að ég er sáttur við alla þessa karla, fiskseljendur og aðra, sem ég kynntist á þessu tímabili. Það var ánægjulegt og þroskandi að ræða við þá og ég hafði iíka mikið samband við sjómennina. Það var gaman að alast upp hér í eyjunni, og það var skemmtilegt hérna á síldarárun- um. Hér var mikið af aðkomu- fólki, ég man eftir 60 stúlkum á einni söltunarstöðinni, hér var dansað mikið, ég man eftir því að eitt sinn voru böll hér 13 kvöld í röð og oftast á tveim stöðum, en þá var landlega oj? skipin lágu í tugum á legunni. Á þeim tíma varð þessi vísa til: Eyjan er afskekkt og fögur og afdrepin skínandi góð, en móarnir segja ekki sögur um seiðandi vorkvöldin hljóð. Það var aðallega spilað á harmonikku, Færeyingar döns- uðu mikið hér á tréklossum á bryggjunni. Þeir voru spilandi á harmonikkur út um allt, ég man t.d. eftir norsku skipi sem kom eitt sinn til Siglufjarðar. Þeir voru með tvo bjarnarhúna um borð í skipinu, og straumur af fólki um borð að skoða þá. Og þá sem oftar var harmonikkan dregin upp við mikinn fögnuð. Hvort ég kunni á nikku. Nei, ég gæti ekki unnið mér til lífs að spila á nokkurt hljóðfæri! Á veturna stóð leiklistar- starfsemin í blóma. Ég man eftir uppfærslu á Ævintýri á göngu- för, það gekk mjög vel og kom meira að segja fullt skip af far- þegum frá Akureyri á eina sýn- inguna. Páll gamli Bergsson fað- ir Gests Pálssonar lék kammer- ráðið og Gestur sonur hans Skrifta-Hans, og þóttu leika með snilld. Fyrst við erum að tala um ævintýri, langar mig að segja þér frá einu ævintýri sem gerðist einu sinni á balli hér í Hrísey. Hér var ungur maður sem hét Vilhjálmur, sem seinna varð einn fremsti bóndinn í Svarfað- ardal. Á einu ballinu sem hér var haldið lendir honum saman við norskan skipstjóra. Það end- ar með því að hann óskar þeim öllum ófarnaðar, en undanskilur einn þeirra sem var kunningi hans og stóð með honum. Nors- ararnir urðu alveg brjálaðir, en afi minn kom Vilhjálmi undan og fór með hann að Ystabæ. Þetta var löngu áður en ég fædd- ist, nánar tiltekið 12. september 1884, nóttina sem faðir minn fæðist, en á móti honum tók norskur skipslæknir. Og það var eins og við manninn mælt, þessa sömu nótt farast hér 19 bátar, þar af 15 norskir, skip kunningja Vilhjálms slapp alveg. Eftir þetta gekk Vilhjálmur undir nafninu Galdra-Villi. Þetta voru flest seglskip og viðurinn sem rak á land notaður, m.a. til bygg- inga. Kaupangur, húsið sem langafi reisti var þiljað innan með timbri úr einni seglskút- unni. 12. september sl. voru hundrað ár iiðin frá þessum atburði. Ég hafði sagt norskri konu sem var hér á ferð þessa sögu, og umrætt kvöld þegar hundrað ár voru lið- in frá þessari örlaganóttu, hringir síminn hjá mér, þar sem ég er einn heima með dóttur- dóttur minni. í símanum var fréttastjóri norska útvarpsins og spurði hann mig hvort ég vildi segja þessa sögu af Galdra-Villa í útvarpið. Ég féllst á það og sagði söguna, á einhverskonar skandinavísku eða sjóaramáli og veit enn ekki hvort nokkur hafi skilið þetta! Það er stutt síðan það var fá- tækt hér í Hrísey og atvinnu- leysi, ég var alinn upp á efna- heimili en það áttu margar fjöl- skyldur í miklum þrengingum, og margir atvinnulausir frá hausti til vors. Ég man t.d. eftir að hafa verið sendur með jóla- mat til þeirra fjölskyldna sem verst voru settar. En í kjölfarið fylgdu mikil velsældarár, og mikið aflað bæði af síld og öðr- um fiski. Þegar ég var strákur að alast upp var enginn floti til í landinu. Ég held að fiskrækt sé framtíð- in, við eigum að grafa upp sand- inn hérna og koma upp aðstöðu til fiskræktar. Við eigum að koma upp vinnsluaðstöðu í öllum bestu togurum okkar og selja hina. Þannig getum við lifað ágætislífi."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.