Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
Guðmundur g
skipherra I
Rjæmested p
fyrra bindi
skráð ef Sveini Sæmundssyni
Hver er eiginlega þessi commander Kjærnested? Hver er þessi
maður sem berst við ofureflið eins og það sé ekki til og gefst
aldrei upp? Þannig spurðu erlendir blaðamenn sem voru hér
staddir um það leyti sem baráttan um 50 og síðar 200 mílna
HskveiðilögSögu íslendinga stóð sem hæst. Það voru fleiri en
blaðamenn sem spurðu um Guðmund Kjærnested. Sjóliðarnir á
freigátunum, sem ekki gátu orða bundist yfir áræðni Guðmundar,
þreki hans og staðfestu. Hann gafst aldrei upp við að verja
fiskveiðilögsöguna. Þetta var þeim undrunarefni.
SVEINlí SÆMUNDSSON
Það er ekki fjarri sanni að segja að Guðmundur hafi á þessum
árum verið átrúnaðargoð æði margra, sem áttu í baráttu við
kúgunaröfl, því fregnir um athafnir hans fóru víða. En hver er þá
þessi maður, sem vakti virðingu og aðdáun þeirra sem studdu
málstað fslendinga ogýmissa þeirra sem háðu baráttu við ofurefli
og magnstola reiði þeirra, sem níddust á lítilmagnanum?
Saga Guðmundar er baráttusaga allt frá barnæsku. Saga sem
hann segir skrásetjara sínum, Sveini Sæmundssyni, og lesendum
án allrar tilgerðar og tæpitungu, hvort heldur það snertir hann
sjálfan eða helstu ráðamenn þjóðarinnar.
KJMSTÍD
It
SÖLUHÆSTA BOKIN
□ SKV. KÖNNUN KAUPÞINGS
ævintýri, ráðgátur og spenna
Gefðu þig
fram Gabríel
eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk
íslenska sveitabarnið Linda, sem verður kjördóttir bresks
blaðakóngs og síðan þekktur blaðamaður með allan heiminn að
vettvangi, virðist eiga sér verndarengil. Hver er hinn dularfulli
Gabríel, sem alltaf fylgist með henni og gerir vart við sig á
ólíklegustu stöðum?
Eftir flugslys dvelst Linda um hríð hjá innfæddum á Tristan da
Cunha og getur síðan ekki gleymt námaverkamanninum Tony.
En starfið krefst hennar á ný, hún fer víða og kynnist fleiri mönnum .
Steve Raynor, auðugum glaumgosa, sem hún hyggst fletta ofan af
semstórböfa . . . Santor, frægum listmálara, sem felursig bak við
dulnefnið . . . cn Tony flytur í nágrennið oggerir henni erfltt fyrir.
SÖLUHÆSTA BÓKIN
□ SKV. KÖNNUN KAUPNNGS
Úr ritdómi í Morgunblaðinu 4.12. 1984 eftir Jóhönnu
Kristjónsdóttur: „En hraðinn í frásögninni og skemmtilega
óþvingaðar lýsingar á þeim stöðum sem heimsóttir eru vítt og
breitt um veröldina, Ijá bókinni þekkilegt aðdráttarafl. . . En hvað
sem hnökrunum líður er hér á ferðinni afþreyingarbók eins og mér
finnst þær gerast hugnanlegastar."
BOKAUTGAFAN ÖRN & ORLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866