Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
C 51
Hundur beit svo
að segja
hálft andlitið af
COSPER
JOAN
COLLINS
Farin að vera
tíður gestur í
Hvíta húsinu
Joan Collins ætlar að gera það
gott á síðunni okkar þessa dag-
ana. Hún hefur ekki aðeins verið
valin fallegasta kona Bandaríkj-
anna, heidur einnig komist á hinn
eftirsótta gestalista Hvíta húss-
ins. Frú Nancy Reagan er sögð
mikill aðdáandi Dynasty-þáttanna
og einnig „Alexis“. Er Joan Collins
var boðið fyrst til Hvíta hússins
var það vegna þess að forseti Ven-
ezuela hafði sett hana á óskalist-
ann yfir gesti. Er Joan var spurð
út í ferðir sínar til Hvíta hússins
sagði hún: „Ég er glöð og stolt yfir
boðinu. Og þó að ég hafi verið dá-
lítið taugaóstyrk fyrst, varð þetta
indælt kvöld með heimsins bestu
gestgjöfum."
Hún og Nancy töluðu um kvik-
mynda- og sjónvarpspersónur og
Nancy lofaði að íhuga möguleik-
ann á að heimsækja þau í Dynasty
þætti. Joan hefur síðan verið
tvisvar í miðdegisverðarboði og
einu sinni i kvennamorgunverði
hjá frú Reagan og hún segir:
„Maður verður aldrei þreyttur á
að hitta nýtt fólk.“
Frankie, drengurinn á með-
fylgjandi myndum, er ellefu
ára gamall, kemur heim úr skól-
anum og fagnar hundunum sínum
sex, sem flaðra upp um hann og
sleikja. Þetta gæti samt verið
öðruvísi og drengurinn þá hatað
hunda, því fyrir fimm árum réðst
hundur á hann og beit svo að segja
hálft andlitið af honum. Þegar
komið var með drenginn á spítala
í Florida fengu læknarnir næstum
áfall. Það eina sem skýrt var hægt
að greina í andlitinu voru tennur
og tunga. Lýtalæknirinn hans þá-
verandi, Robert Fabric sagði að
það hefði á þeirri stundu ekkert
verið hægt að fullyrða um hvort
drengurinn myndi lifa hörmung-
arnar af. En hann lifði. Það átti
samt ekki að linna ógnaratburðum
hjá drengnum, því aðeins mánuði
seinna hurfu móðir hans og
stjúpfaðir af sjónarsviðinu og létu
þau skilaboð eftir liggja, að þau
gætu ekki afborið að sjá Frankie
aftur. Þau gátu þó þegið pen-
ingana sem komu frá eigend-
um hundsins. Sorgin var
mikil og drengurinn fékk
létt hjartaslag, sem gekk
þó fljótt yfir er hjón
komu og tóku Frankie
í fóstur. Þekktur
Bandarískur lýta-
læknir Felix
Freshwater
I
bauð honum að gera allt sem í
hans valdi stæði til að hann fengi
nýtt andlit án endurgjalds. Hann
gerði á drengnum alls 28 aðgerðir
og segir nú allt ganga vonum
framar. Frankie verður þó að
gangast undir tvo til þrjá upp-
skurði hvert ár, þangað til hann
verður 18 ára.
Fósturforeldrarnir fóru strax að
leita að hinum raunverulega föður
Frankie og er hann fannst vildi
hann gera allt sem í hans valdi
stóð til að létta undir. Ákveðið var
að Frankie skyldi búa hjá föður
sínum i Alabama i sjö mánuði á
ári, en hjá fósturforeldrum sínum
hina fimm. Það er einmitt faðir
hans sem átti sex hunda og vildi
selja þá, en Frankie mátti ekki
heyra minnst á það. Hann sagðist
elska hunda og ekkert gæti breytt
því. Hundurinn sem hefði bitið
hann hefði aðeins verið mikið
veikur. Fyrstu þrjú árin eftir slys-
ið var Frankie alltaf með hettu til
að illt kæmist ekki í sárið og enn
hefur honum ekki vaxið hár og
vinstra eyrað vantar.
Frankie kvartar aldrei,
segir fósturmóðir hans.
Hann segir ekkert þegar
að nýjum uppskurði
kemur. Það er ótrú-
legt hvað drengur-
inn hefur mikinn
viljastyrk.
Nei, kemur þú þá ekki, óg hélt aö þú sætir hér inni hjé mér.