Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984 C 39 FÖNG Bolli Gústavsson nú eru menn hættir að hlæja á báðum stöðum, fyrir sunnan og norðan. Helst þurfa menn að koma hingað. Þeir fara þá með aðra hugmynd. Samvinna við Ríkisútvarpið í Reykjavík er mjög góð. Ég sit þar fundi, þegar fjallað er um sumar- og vetrardagskrár. Mæti þar eins og skreiðarkaup- maður, sem fær ákveðinn kvóta. Síðan ræð ég því hverjir koma fram í útvarpi hér fyrir norðan. Við höfum haft þann hátt á, að afmarka útsendingar héðan greinilega, með ákveðnu „signali". Ég var lengi að semja það stef, sem nú er notað. Og dagskrárat- riðum fjölgar. Nú er í ráði að taka hér upp leikrit eftir áramót í sam- ráði við Jón Viðar Jónsson leiklist- arstjóra. Þá er það draumur minn, að koma á fót kennsluútvarpi. Hefi ég haft samráð við Tryggva Gíslason skólameistara um það. Gerum við ráð fyrir, að það geti staöið í stundarfjórðung í senn, ákveðna daga í viku hverri yfir vetrarmánuðina. Þegar eru sendir fimmtán út- varpsþættir héðan, auk þátttöku okkar í morgunútvarpi og einnig í síðdegisútvarpi fjóra daga vikunn- ar. Fastir starfsmenn auk mín eru Sigrún Sigurðardóttir kona mín, sem annast allt skrifstofuhald, Erna Indriðadóttir fréttamaður og tæknimennirnir Björn Sig- mundsson, er starfað hefur frá upphafi deildarinnar, og Berg- steinn Gíslason, sem er hér í hálfu starfi. Annars eru hér þegar alls nítján dagskrárgerðarmenn að störfum. VIII Engin kyrrstaöa Ennþá hef ég fengið neitun um, að deildinni verði jafnframt breytt í staðbundið útvarp, sem flytur dagskrá og fréttir fyrir nágrennið. Ég hef þegar gert a.m.k. þrjár alvarlegar tilraunir til þess að fá því framgengt, en þeim hefur verið hafnað. í sam- bandi við sjálfstæðan fréttatíma var ég spurður að því fyrir sunn- an, hvað við gætum sagt hér, sem aðrir mega ekki vita. En hinsvegar trúi ég því, að sá dagur sé ekki langt undan, þegar þessi ósk mín rætist. Raunar hef ég gengið með þetta útvarp eins og fóstur. Það hafa komið þær stundir, að hvarfl- að hefúr að mér að láta eyða því, en sem betur fer stríðir það gegn samvisku minni og sterkustu löng- un. Aðstaðan hér í húsinu býður upp á ótal möguleika. Ennþá hefur helmingur þess ekki verið innrétt- aður. Þar verður góð aðstaða, bæði fyrir hljóðritun á tónlist og leik- ritum. Einnig verða þar skilyrði fyrir upptökur á sjónvarpsefni. Það er svo sem engin ástæða til þess að láta sér leiðast eða að hjakka í sama farinu. Það á engan veginn við mig. Ég er ákaflega „impulsivur". Stundum finnst mér heimurinn vera að falli kominn um hádegisbilið, en það bregst ekki, að þá er kominn nýr heimur um kaffileytið. Þegar við horfum út um glugg- ann á skrifstofu deildarstjóra RÚVAK, niður yfir óræktarmóa milli nýbygginga, þá blasir við dá- lítið kjarr, sem einhver gleymdur maður hefur plantað forðum. Kannski hefur hann ætlað sér að reisa sér sumarbústað þarna þeg- ar hér var sveit. Nú standa þessar hríslur og naktar greinar ber við fölan skammdegishimin. Þær eru lifandi og njóta skjóls af nýjum veggjum og athafnalífi, sem forð- ar þeim frá því að verða bitnar af búfé. Við vonum, að hin nýja út- varpsstöð njóti þess einnig, hve vel hefur verið að henni hlúð og að enginn biti nýgræðinginn lffvæn- lega. atvinna — atvinna — atvinna — atvinna KÓS tölvudeild _>fer andi 4 4-^ SÖLU- OG MARKAÐSSVIÐ: X ♦ Markaðsfulltrúi fyrir DIGITAL-tölvubúnað. ■ Starfssviö: Markaössetning, kynning og sala á PDP-og VAX-tölvukerfum. Fjölbreytt starf í góöum félagsskap og í nánum tengslum viö hinn ört vaxandi hóp DIGITAL-tölvunot- ■ " enda. Þú hefur áhuga og staögóöa þekkingu á tölvum, ert röggsamur, fljótur aö tileinka þér ® nýjungar, samningalipur og hefur yndi af mannlegum samskiptum. Upplýsingar veitir Gísli Már Gíslason í síma 24120. X X Starfssviö: Viöhald á tölvuskjám, prenturum og einkatölvum hjá viöskiptavinum okkar. ■ Þú ert menntaöur á rafeindasviði, þægilegur í umgengni og hefur áhuga og helst ♦ þekkingu á einkatölvum. ■ 2. Tæknímaður (DIGITAL/ERICSSON-búnaður) ♦ Starfssviö: Viögerðir á tölvuskjám, prenturum og einkatölvum á verkstæði. Þú ert menntaður á rafeindasviöi, vandvirkur og vanur viögeröum á „component level“. Æskileg þekking á stýrikerfum einkatölvu. \ 3. Tæknimaður (ERICSSON-búnaöur) ■ Starfssviö: Viögeröir á stjórneiningum og útstöövum tengdum IBM tölvubúnaöi. Þú ert menntaöur á rafeindasviöi og lipur í samskiptum. Æskileg þekking á fjarvinnslu- ■ tengingum og IBM umhverfi. Upplýsingar veitir Jóhann Þ. Jóhannsson í síma 24120. ^ t t t t t t t t t t t ÞJONUSTUSVIÐ: 1. Tæknimaður (DIGITAL-búnaður) E23 ericsson 5 TfeRtronix ■ mMMI Tf O TO ( xaLKNC* KRISTJÁN Ó. f SKAGFJÖROHF. j Hólmaslóð 4 P.O. BOX 906 — 121 Reykjavík. BONDIER BUSTOLPI Guðmundur Jónsson, fyrrverandi skólastjóri á Hvanneyri, gjörþekkir sögu íslensks landbúnaðar, og sér nú um útgáfu fimmtu bókarinnar í bókaflokknum Bóndi er bústólpi. í þessari bók eru frásagnir af tíu bændum, skráðar af jafnmörgum höfundum. Allir voru þeir „bústólpar" meðan þeir lifðu, mörkuðu spor í sögu íslensks landbúnaðar eða voru þekktir af félagsstörfum. . v $ - - ■ II. . Þessir menn eru: Björn Hallsson á Rangá, Einar Eiríksson á Hvalnesi, Gísli Helgason í Skógar- gerði, Jónas Magnússon í Stardal, Júlíus Björnsson í Garpsdal, Ketill Indriðason á Ytra-Fjalli, Oddur Oddsson á Heiði, Ólafur GUÐMUNDUR JÓNSSON ITiTTJ I •íi BÚSTOLPI SAGTFRA NOKKRUM GOÐBÆNDUM Finnsson á Fellsenda, Skúli Gunnlaugsson í Bræðra- tungu og Þorleifur Eiríksson í Bæ. Bókhlaðan Maður, kona, bam er eftir höfund „Love Story“ Erich Segal. Fullkomnu hjónabandi, sem allir öfunda, er skyndilega og óvscnt ógnað af rödd frá fortíðinni. Bob Beckwith stærðfræðiprófessor er hamingjusamur Qölskyldufaðir, þar til í ljós kemur að eina hliðarspor hans í hjónabandinu hefur haft óvæntar afleiðingar. Maður, kona, barn er langbesta skáldsaga Erich Segals, og jafnvel ennþá áhrifameiri en „Love Story“. Skáldsagan TIM er eftir Colleen McCullough höfund Þymifuglanna sem nú er framhaldsmynd í sjónvarp- inu. Bókin segir frá Mary sem var komin yfir fertugt, menntuð kona sem naut velgengni í starfi og bjó ein. Tim 'var tuttugu og fimm ára og glæsileg- ur eins og grískur guð en með bams- huga.... Hjartnæm og fullkomlega trúverðug saga sem yljar manni um hjartaræt- umar án þess að verða væmin. Margir þeirra, sem hlustað hafa á bamasögur Guðrúnar Sveinsdóttur í útvarpinu á liðnum árum, hafa beðið þess meðóþreyju að sögur hennar birt- ust á prenti. Jólasveinafjölskyldan á Grýlubæ segir frá Grýlu, Leppalúða og jólasveinunum. Þetta er auðvitað alþekkt fjölskylda, en við verðum þess þó vör, þegar við lesum söguna, að okkur hefúr verið margt óljóst um lífið á Grýlubæ og annars staðar í Trölla- byggð. Margar myndir prýða bókina og gerir það hana enn skemmtilegri fyrir yngstu lesenduma. ÍSAFOLD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.