Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 56
56 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
//FjórtAn. dwzc gamaU Og L&ikur íer "
ást er ...
... að snyrta sig fyrir
partíið
TM Rm U.S. PlL 0*1-1* rtghti rewvw)
•1984 Lot Angitit Tknn Symttciti
Með
morgunkaffínu
J í n
Ég sem sótti karate-námskeið. I'ú
ættir að liggja hér í svaðinu.
HÖGNI HREKKVlSI
Víðistaðaskóli í Hafnarfirði.
Bætum aðstöðu skóla-
barna í Hafnarfirði
Foreldri í Ilafnarfirði skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa
þetta bréf er sú að mér svíður sú
aðstaða sem skólabörnum er búin
í Hafnarfirði.
Þannig er að ég bý í gamla Vest-
Inga . Einarsdóttir sjúkraliði á
Kleppsspítala hringdi:
Ég bý í stærsta hverfi borgar-
innar, Breiðholtinu, og þarf að
fara til vinnu á Kleppsspítalann á
hverjum degi. Þessi leið virðist í
fljótu bragði bein og greið, en er
það ekki ef maður þarf að ferðast
Enn um
vítamín
Anna hringdi:
Ég vil taka undir það sem kom
fram í þessum dálki miðvikudag-
inn 12. desember í sambandi við
verðmun á vítamínum. Ég hef
keypt Gingsoplex og er verðmunur
á einu slíku glas allt að 114 krón-
um. Ég athugaði hvort um sömu
sendingu væri að ræða og reyndist
svo vera. Mér finnst þessi verð-
munur mjög mikill og ráðlegg
fólki eindregið að athuga þetta vel
áður en það kaupir vítamín.
Formið yrkir
Velvakandi.
Formið yrkir er fyrirsögn á
ritdómi Sveinbjarnar Bald-
vinssonar um Ljóðabók mína í
Morgunblaðinu 11. des. sl. Af
því tilefni varð eftirfarandi
vísa til:
Listin efld við orðastorm
ýmsu þarf að hafna;
því vill ekkert ærlegt form
yrkja fyrir Nafna.
Sveinbjörn Beinteinsson,
Draghálsi.
urbænum í Hafnarfirði og sex ára
dóttir mín sækir Víðistaðaskóla.
Sex ára börnum er ætlaður sér-
inngangur á suðurhlið skólahúss-
ins en aðrir ganga inn að norðan-
verðu. Fyrir börnin úr Vesturbæn-
um er um dálítið langa leið að fara
með strætisvagni. Raunin er sú að
það gengur enginn strætisvagn úr
Breiðholtinu og niður í Elliðavog,
þar sem eru fjöldamörg fyrirtæki
auk Hrafnistu og Kleppsspítala.
Það segir sig sjálft að fjöldi fólks
úr Breiðholti þarf að fara þessa
leið. En eins og málum er háttað í
dag, þarf að taka tvo vagna og
ganga auk þess drjúgan spöl til
þess að komast til vinnu.
Ég hef oft skrifað Strætisvögn-
um Reykjavíkur, en þeir svara
mér ekki. Það eru margir sam-
mála mér í þessu, þar sem okkur
finnst þetta vera bein lína úr
Breiðholtinu og niður í EUiðavog
og Kleppsveg.
Ég spyr því þá hjá Strætisvögn-
um Reykjavíkur hvort þeir vilji
ekki svara mér?
Jóna Guðmundsdóttir hringdi:
Hjartans þakkir til Sveins
Sveinssonar á Hrafnistu fyrir
notaleg orð í okkar garð í Velvak-
anda. Við konurnar í Ellimála-
nefnd Bandalags kvenna í Reykja-
vík höfum verið með dagskrá í
kvöldvökuformi í þrjú ár og farið
með hana á milli dvalarheimila
aldraðra í borginni. Einnig höfum
við fengið til liðs við okkur ýmsar
konur og menn og reynt að hafa
með okkur harmónikkuleikara,
svo hægt sé að dansa á eftir. í
yfir hraun gamla Víðistaðatúnsins
að þessum dyrum. Þessi leið er
ómalbikaður en akfær vegarslóði,
vart svo breiður að hægt sé að
mæta bíl þar. En það sem verst er,
er að vegur þessi er algjörlega
óupplýstur og það á reyndar einn-
ig við um allan innganginn í skól-
ann. Þar er ekki einu sinni útiljós.
Ég hef ekki treyst dóttur minni
að ganga þessa leið í skólann í
svartasta skammdeginu og ek
henni því á morgnana. Ég sé að
þannig er með fleiri foreldra að
þau fylgja börnum sínum. En leið-
inlegt finnst mér^ að sjá alla
glampana frá endurskinsmerkjun-
um á veginum þegar ég ek þar um
og veit að krakkarnir sjá vart
niður fyrir fætur sér vegna myrk-
urs.
Manni svíður einnig þegar barn-
ið kemur heim úr skólanum með
sundurhöggvið hnéð á buxunum
og segist hafa dottið um stein við
skólann vegna þess „að það eru
engin ljós hjá okkur".
Ég vona að bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði og rafveitan sjái nú
sóma sinn í því að lýsa upp þessa
leið og skólaanddyrið og láti ekki
minnstu skólabörnin paufast
þetta áfram í myrkrinu mikið
lengur. Það virðist alltaf hallað á
þá sem minnst mega sín og mynda
ekki þrýstihópa en það gera sex
ára börn ekki.
þessu tilfelli, sem Sveinn Sveins-
son minnist á, var með okkur Sig-
ríður Hannesdóttir leikari, sem
söng gamanvísur við undirleik
Aage Lorange við mikinn fögnuð
fólksins. Við bandalagskonur
skemmtum okkur alltaf mjög vel
og kannski ekkert síður en eldra
fólkið.
Einnig vil ég færa Rafni Sig-
urðssyni forstöðumanni á Hrafn-
istu og starfsfólkinu þar mínar
bestu þakkir fyrir móttökuna.
Strætó úr Breið-
holti í Elliðarvog
Góðar móttökur
á Hrafnistu
Misskilningur leiðréttur
Jóhann Þórnlfsson skrifar:
Ég tel nauðsynlegt að leiðrétta
þann leiða misskilning, sem fram
kemur í viðtali DV við Guðmund
Einarsson frá Eskifirði nú nýlega.
Þar nefnir hann bágborna læknis-
þjónustu sem orsök brottflutn-
ings. Ég þekki vel til þessara mála
og vil upplýsa að einn og sami
læknir þjónar bæði á Eskifirði og
Reyðarfirði og við mjög góðan orð-
stír á báðum stöðum. Hann hefur
það umfram aðra lækna suma
hverja, að ef hann getur ekki
vegna tækjaleysis eða annarrar
aðstöðu rannsakað sjúkling nógu
rækilega, þá sendir hann viðkom-
andi til sérfræðings, á Norðfjörð
eða til Reykjavíkur. Ef læknir sá
sem sonur minn leitaði til hefði
sent hann á sínum tíma í rann-
sókn suður, þá hefði ég ekki misst
hann svo sviplega. Orð margra
hefi ég fyrir þessu. Ómaklega árás
á lækninn á Éskifirði er því furðu-
leg.
Umdæmið er fjölmennt og þar
eiga lögum samkvæmt að vera
tveir læknar. Það er engum einum
lækni ætlandi að komast yfir það
starf, sem því tengist. Hversu góð-
ur sem læknirinn er er það útilok-
að.
Það eru takmörk fyrir því álagi
sem hægt er að leggja á einn
mann og hve lengi hann þolir slíkt
álag. Ég veit ekki betur en Helgi
Seljan hafi fengið samþykkta
lagabreytingu um tvo lækna í stað
eins. Á fjárlögum þarf því nú þeg-
ar að bæta úr þessu og fá tvo
lækna að heilsugæzlustöðinni á
Eskifirði.